Fjöldi fræðimanna á Kjöl að leita að heilögu grali

Metfjöldi kemur 10 .árið í röð til Íslands til að fylgja eftir vísbendingum frá 13. öld. „Vitum ekki hvort um er að ræða verald­lega hluti".

Visku leitað
Visku leitað Jarð­sjár­mæl­ingar á vett­vangi á hálendi Íslands í grennd við Kjöl.

Þetta er 10. árið sem við leitum á hálendinu,“ segir Þórarinn Þórarinsson arkitekt, sem hefur ásamt fræði­mönnum leitað að hinu heilaga grali á hálendi Íslands í grennd við Kjöl. Metfjöldi vísinda­manna og sjónvarps­manna  mætti til leiks í fyrra­sumar og von er á öðrum eins fjölda í sumar. Í hópnum, sem er undir forystu Ítalans Giancarlo Gianazza, eru jarð­eðlis­fræðingar, jarð­fræðingur, fornleifa­fræðingur auk áhuga­manna frá Íslandi, Banda­ríkjunum og Evrópu. Sjónvarpslið mun fylgja hópnum eftir í sumar. Aldrei frá upphafi leitar munu jafn margir mæta til leitar en verður í sumar. 

Vísbendingar er að finna í ljóðum Alighieri Dantes frá 13. öld um að á hálendi Íslands sé að finna eitthvað sem kallað er hið heilaga gral. Þá eru vísbendingar í málverki Leonardo Da Vinci af Síðustu kvöld­máltíðinni. Hugmyndirnar ganga út á það að umrædda hluti sé að finna í grennd við Skip­holtskrók á Kili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár