Sá hluti neyðarlánsins sem var endurgreiddur fór til eigenda og stjórnenda Kaupþings

Deutsche Bank endur­greiddi stóran hluta af þeim fjármunum sem bankinn fékk frá Kaupþingi eftir veitingu neyðar­lánsins fyrir þremur árum síðan. Þeir fjármunir fóru til Kaupþings hf. og hækkuðu verulega bónus­greiðslur starfs­manna og stjórn­enda þess félags.

Höfuðstöðvar Deutsche Bank í Frankfurt.
Höf­uð­stöðvar Deutsche Bank í Frank­furt. Mynd: EPA

Á meðal þeirra greiðslna sem fóru út úr Kaupþingi eftir að Seðla­banki Íslands veitti bankanum neyðarlán upp á 500 milljónir evra 6. október 2008 voru greiðslur til Deutsche Bank. Þýski bankinn ákvað fyrir þremur árum að endur­greiða stóran hluta þeirrar upphæðar sem hann fékk greidda frá Kaupþingi síðustu vikurnar sem bankinn var starfandi.

Sú ákvörðun var tekin eftir að stöðugleika­samningarnir við íslenska ríkið voru undir­ritaðir og frágengnir og því rann greiðslan til Kaupþings ehf., félags utan um eftir­standandi eignir Kaupþings banka. Það félag greiddi stjórn­endum og starfs­mönnum sínum veglega bónus­greiðslu í fyrra vegna árangurs við innheimtu á útistandandi kröfum.

Héldu áfram að hagnast eftir nauðasamninga

Þótt stöðugleika­samningar hafi verið undir­ritaðir og höftum lyft voru enn tækifæri til staðar hérlendis fyrir skammtíma­sjóðina sem sóttust eftir ágóða á Íslandi. Nauða­samningarnir hleyptu þeim beint að eignum sínum. Það gerði þeim kleift að vinna enn betur úr þeim og auka hagnað sinn umtals­vert frá því sem áður var áætl­að. Í nýlegri bók eftir Norð­­mann­inn Svein Har­ald Øygard, sem var Seðla­­­banka­­­stjóri á Íslandi frá febr­­­ú­­­ar­lokum 2009 og fram til 20. ágúst sama ár, sem ber heitið „Í víg­línu íslenskra fjár­­­mála“, kom fram að hægt væri að auka þann hagnað um allt að 65 pró­sent.

Það útskýrir að þessir aðilar voru enn að bæta við nýjum sjóðum á Íslandi á árinu 2017, tæpum tveimur árum eftir að nauða­samn­ingar voru hand­sal­að­ir. Í bókinni er rætt við umsjón­ar­mann eins sjóð­anna sem vildi ekki láta nafn síns getið né fyrir hvaða sjóð hann var að starfa. Hann segir þar: „Við keyptum svo­lítið síðla árs 2011 og sóttum í okkur veðrið í árs­byrjun 2012[...]Árið 2012 keyptum við í nafni aðal­sjóðs­ins okk­ar. Árið 2013, stofn­uðum við sjóð þar sem fjár­festar gátu fjár­fest beint í þrota­búum Glitnis og Kaup­þings. Árið 2016 bætt­ist við sjóður sem átti hluta af ábat­anum af upp­gjör­inu. Árið 2017 bættum við enn einum sjóði við, hann átti einn nýju bank­anna að hluta.“

Sami við­mæl­andi sagði síðar í bókinni að hans sjóður hafi ráðið um 40 pró­sent í einu þrota­bú­anna snemma árs 2018. Lík­legt verður að telja að sjóð­stjór­inn sem um ræðir starfi hjá Taconic Capital, sem átti 46 pró­sent í Kaup­þingi ehf. í byrjun árs í fyrra og 47,7 pró­sent í byrjun yfir­stand­andi árs.

Deutsche Bank endurgreiddi hluta neyðarlánsins

Dæmi um það hvernig var hægt að vinna úr eignum er mála­rekstur sem Kaupþing stóð í gagnvart þýska stór­bankanum Deutsche bank vegna fjármuna höfðu runnið frá Kaupþingi til Deutsche Bank síðustu vikurnar fyrir fall íslenska bankans vegna hins svokallaða CLN-strúktúrs. Alls nam heildar­upphæð þeirra fjármuna sem fóru frá Kaupþingi til þýska bankans vegna þessa 510 milljónum evra. Ekki hafði verið reiknað með að hægt yrði að endur­heimta féð, sem rann frá Kaupþingi á tíma­bilinu 22. september til 7. október 2008. Síðustu greiðslurnar fóru því til Deutsche Bank eftir að Seðla­banki Íslands hafði veitt Kaupþingi neyðarlán, og tveimur dögum áður en að bankinn fór á hausinn.

Nánast níu árum upp á dag frá því að Kaupþing féll, eða snemma í október 2016, náðist skyndi­lega samkomulag, sem síðar var formgert í desember sama ár þegar dómstólar staðfestu það. Deutsche Bank vildi greiða stóran hluta þeirrar upphæðar sem Kaupþing hafði beint og óbeint falast eftir að fá greidda, eða 425 milljónir evra.

Því fékk Kaupþing stóran hluta neyðar­lánsins endur­greiddan frá Deutsche Bank. Sú upphæð rann þó ekki til Seðla­banka Íslands, heldur til eigenda Kaupþings ehf., og að mestu áður­nefndra skammtíma­sjóða.

Fámennur hópur fékk svimandi háa bónusa fyrir innheimtu

Greint var frá því fyrir þremur árum síðan að um 20 manna hóp­ur lyk­il­­starfs­­manna Kaup­­þings gæti fengið allt að 1,5 millj­­arða króna til að skipta á milli sín ef hámörkun á virði eigna Kaup­­­þings myndi nást.

Næð­ust mark­miðin átti að greiða út bón­us­greiðsl­­­urnar eigi síðar en í apríl 2018.

Kjarninn greindi frá því í október síðastliðnum að greiðslur til starfs­manna félags­ins, sem voru 17 tals­ins, hefðu í heild numið rúm­lega 3,5 millj­örðum króna á árinu 2018 og hækk­uðu um 900 millj­ónir króna þrátt fyrir að starfs­fólki hefði fækk­að. Frá árinu 2016 hafa greiðslur til starfs­fólks Kaup­þings auk­ist um 1,9 millj­arð króna en starfs­fólk­inu sjálfu fækkað úr 30 í 17.

Stjórn og for­stjóri Kaup­þings ehf., félags utan um eft­ir­stand­andi eignir þrota­bús hins fallna banka Kaup­þings, voru sam­tals með 1.216 millj­ónir króna í laun í fyrra. Í stjórn Kaup­þings sitja Allan Jeffrey Carr, Paul Copley, Óttar Páls­­­son og Piergiorgio Lo Greco. Copley er einnig for­stjóri Kaup­­­þing. Það fækk­aði um einn í stjórn félags­ins á milli ára, en Bene­dikt Gísla­son hætti í henni í ágúst 2018 og tók þess í stað sæti í stjórn Arion banka, sem þá var að að stóru leyti enn í eigu Kaup­þings. Bene­dikt var svo ráð­inn banka­stjóri Arion banka í sum­ar. Því verður að gera ráð fyrir að greiðslur til Bene­dikts fram að þeim tíma sem hann hætti hjá Kaup­þingi telj­ist með í heild­ar­upp­hæð launa­greiðslna til stjórn­ar.

Launa­greiðslur til stjórnar juk­ust úr 544 millj­ónum króna í 1.216 millj­ónir króna á árinu 2018, eða um 672 millj­ónir króna.

Eini Íslend­ing­ur­inn sem var eftir í stjórn Kaup­þings, lög­mað­ur­inn Óttar Páls­son, hefur setið þar frá árinu 2016 að ósk helstu eig­enda Kaup­þings, sem eru banda­rískir vog­un­ar- og áhættu­sjóð­ir. Hann starf­aði áður sem ráð­gjafi fyrir þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár