Segir Reynisfjöru „stórhættulegan stað“ og vill nýta heimild til lokunar

Lilja Alfreðs­dóttir, ráðherra ferðamála, segir það ekki gott fyrir heildar­hagsmuni ferða­þjónustunnar að á Íslandi séu orðnir „stór­hættulegir staðir og við gerum ekkert í því“. Fimm banaslys hafa orðið í Reynis­fjöru á aðeins sjö árum.

Lilja Alfreðsdóttir er ráðherra ferðamála.
Lilja Alfreðs­dóttir er ráð­herra ferða­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Alfreðs­dóttir, ráðherra ferðamála, viðskipta og menningar, segir það sína skoðun að heimilt eigi að vera að loka Reynis­fjöru sem og öðrum ferðamanna­stöðum ef svo beri undir. „Ég sem ráðherra mála­flokks­ins horfi auðvitað á heild­ar­hags­muni hans. Það er ekki gott fyr­ir heild­ina þegar það eru orðnir ein­hverj­ir stór­hættu­leg­ir staðir og við ger­um ekk­ert í því,“ seg­ir hún í samtali við Morgun­blaðið í dag. Er hún varð ráðherra ferðamála var það eitt hennar fyrsta verk að skipa starfshóp um Reynis­fjöru og hvort það ætti „að loka henni hreinlega.“

Alls hafa tólf alvarleg útköll borist vegna fólks í hættu í Reynis­fjöru síðustu sjö árin. Þar af hafa orðið fimm banaslys. Það fimmta varð á föstudag er erlendur ferða­maður á áttræðis­aldri lést er alda hreif hann með sér í fjörunni. Eiginkona hans var hætt komin en viðstöddum tókst að bjarga henni.

Lilja segir að til ýmissa ráðstafana hafi verið gripið m.a. að setja upp merkingar en að ferðamenn virði þær margir hverjir að vettugi. Land­eigendum og þeim sem hafi afnot af svæðinu hafi ekki tekist að ná utan um málið.

Í Morgun­blaðinu kemur ennfremur fram að tillögur að frekari úrbótum sem höfðu verið fjár­magnaðar hafi ekki orðið að veruleika vegna mótmæla nokkurra land­eigenda. Aðrir land­eigendur hafi hins vegar beitt sér fyrir auknu öryggi.

Jónas Guðmundsson hjá Lands­björg sagði við Vísi árið 2017 er þýsk kona fórst í Reynis­fjöru og barn á leik­skólaaldri var hætt komið að vanda­málið fælist í því að enginn ábyrgðar­aðili væri á staðnum. Nefndi hann nokkur atriði til úrbóta sem væru notuð víða um heim, m.a. svokallaða hand­stýringu; skilti, stíga og girðingar sem og það sem hann kallaði „beina stjórnun“ með lögum, reglu­gerðum, löggæslu og land­vörslu. „Á þessum stöðum á auðvitað að vera land­varsla og virkari löggæsla. Þannig að bæði land­vörður og lögregla komi á þessa staði á svona degi og eru með sitt áhættumat og leggja mat á hvort aðstæður séu erfiðar og hvort þurfi að setja upp borða sem segir að enginn fari neðar en ákveðið viðmið. Svo þarf land­vörður að vera á staðnum til að fylgja þessu eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár