Jón Gnarr: RÚV var með 70 prósent vægi í dómnefnd Edduverðlaunanna

Jón Gnarr, framkvæmda­stjóri dagskrár­sviðs 365, segir RÚV hafa haft 70 prósent vægi í dómnefnd Eddu­verð­launanna en að 365 beri helming kostnaðar vegna veitingu þeirra. 365 hefðu lagt fram ýmsar tillögur um að auka vægi almennings í kjöri á verðlauna­höfum en þær tillögur hafi ekki hlotið brautar­gengi. Því hafi fyrir­tækið ákveðið að segja sig úr Íslensku kvikmynda- og sjónvarps­akademíunni (ÍKSA), sem heldur Eddu­verðlauna­hátíðina.

Kjarninn greindi frá þeirri ákvörðun fyrr í dag.

Eddu­verðlaunin munu samt sem áður fara fram og hátíðin verður haldin um mánaðar­mótin febrúar/mars 2016. Óvissa er um hvort 365 muni tilnefna efni sem fyrir­tækið fram­leiðir innanhúss til Eddu­verð­launanna en Brynhildur gerir ráð fyrir því að sjálf­stæðir fram­leiðendur, sem framleiða efni sem sýnt er á stöðvum 365, muni halda áfram að tilnefna það til verð­launanna. Á meðal þeirra er SagaFilm, sem fram­leiðir hina vinsælu þætti Rétt, sem sýndir eru á Stöð 2.

Jón segist mikill aðdáandi verðlauna­hátíða á borð við Edduna. Þær séu skemmtilegar og nauðsynlegar uppskeru­hátíðir fyrir geirann. Til greina komi að kanna mögu­leikann á nýrri verðlauna­hátíð sem 365 miðlar myndu taka þátt í að halda. Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin um það.

Á síðustu Eddu­verðlauna­hátíð, sem fór fram í febrúar 2015, fékk Stöð 2 engin verðlaun.Sjónvarps­þættir og –fólk RÚV sópuðu hins vegar til sín verð­launum. RÚV vann nánast alla flokka sem stöðin gat unnið. Ævar vísinda­maður vann sem besta barna- og unglinga­efni ársins, Landinn sem frétta- eða viðtals­þáttur ársins, Hraunið sem leikið sjónvarps­efni ársins, Hæpið sem lífstíls­þáttur ársins, Vestur­farar sem menningar­þáttur ársins, Orðbragð sem skemmtiþáttur ársins og Brynja Þorgeirs­dóttir frá RÚV var valin sjónvarps­maður ársins. Þá fékk Ómar Ragnarsson, sem undan­farin ár hefur unnið fyrir RÚV, heiðurs­verðlaun Eddunnar árið 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár