365 miðlar hafa sagt sig úr akademíunni sem heldur Edduverðlaunin

365 miðlar hafa sagt sig úr Íslensku kvikmynda- og sjónvarps­akademíunni (ÍKSA), sem halda hina árlegu Eddu­verðlauna­hátíð. Þetta stað­festir Brynhildur Ólafs­dóttir, framkvæmda­stjóri ÍKSA/Eddunnar í samtali við Kjarnann.

Eddu­verðlaunin munu samt sem áður fara fram og hátíðin verður haldin um mánaðar­mótin febrúar/mars 2016. Óvissa er um hvort 365 miðlar muni tilnefna efni sem fyrir­tækið fram­leiðir innanhúss til Eddu­verð­launanna en Brynhildur gerir ráð fyrir því að sjálf­stæðir fram­leiðendur, sem framleiða efni sem sýnt er á stöðvum 365 miðla, muni halda áfram að tilnefna það til verð­launanna. Á meðal þeirra er SagaFilm, sem fram­leiðir hina vinsælu þætti Rétt, sem sýndir eru á Stöð 2.

Kjarninn reyndi að ná sambandi við Sævar Frey Þráinsson, forstjóra 365 miðla, til að fá skýringar á því að fyrir­tækið hafi sagt sig úr ÍKSA, en án árangurs.

Stöð 2 vann engin verðlaun á síðustu hátíð

Eddu­verðlaunin voru síðast veitt 21. febrúar síðastliðinn. Sjón­varpað var beint frá viðburðinum á Stöð 2 og hitað var upp með beinni útsendingu frá rauða dreglinum, líkt og tíðkast á stærstu kvikmynda- og sjónvarps­verðlauna­hátíðum heims. Góður rómur var gerður af hátðinni, hún þótti skemmtileg og sérstak­lega vel útfærð.

Það vakti hins vegar athygli að Stöð 2, stærsta einka­rekna sjónvarpsstöð landsins, vann ekki ein einustu verðlaun. Mörg af helstu flaggskipum stöðvarinnar voru tilnefnd en ekkert þeirra hlaut náð fyrir augum akademíunnar. Eina verkið með tengingu við Stöð 2 sem vann til verðlauna var heimildar­myndin Höggið, sem var sýnd á stöðinni í janúar.

Sjónvarps­þættir og –fólk helsta samkeppnis­aðila Stöðvar 2, RÚV, sópuðu hins vegar til sín verð­launum. RÚV vann nánast alla flokka sem stöðin gat unnið. Ævar vísinda­maður vann sem besta barna- og unglinga­efni ársins, Landinn sem frétta- eða viðtals­þáttur ársins, Hraunið sem leikið sjónvarps­efni ársins, Hæpið sem lífstíls­þáttur ársins, Vestur­farar sem menningar­þáttur ársins, Orðbragð sem skemmtiþáttur ársins og Brynja Þorgeirs­dóttir frá RÚV var valin sjónvarps­maður ársins. Þá fékk Ómar Ragnarsson, sem undan­farin ár hefur unnið fyrir RÚV, heiðurs­verðlaun Eddunnar árið 2015.

Kvik­myndin Vonar­stræti sópaði síðan til sín kvikmynda­verðlaunum Eddunnar 2015. Alls fékk hún tólf verðlaun, meðal annars sem kvikmynd ársins, fyrir leik­stjórn, handrit, kvik­myndatöku og klippingu. Báðir aðal­leikararnir í Vonar­stræti, þau Þorsteinn Bachmann og Hera Hilmars­dóttir hlutu Eddu­styttuna. Edduna fyrir auka­hlutverk fengu þau Helgi Björnsson og Nanna Kristín Magnúsdóttir fyrir hlutverk sín í kvik­myndinni París norðursins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár