Ráðherrar Viðreisnar töldu mál upplýst og fullskoðuð þótt ráðuneytið hefði ekki veitt þinginu umbeðin gögn

Formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar segir skoðun á embættis­færslum ráðherra í málunum sem urðu til þess að ríkis­stjórnar­samstarfinu var slitið vera lokið.

Dómsmála­ráðuneytið afhenti stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd Alþingis í dag gögn sem óskað var eftir um máls­meðferð ráðuneytisins ímálunum sem urðu til þess að ríkis­stjórnar­samstarfinu var slitið.

Uppfært kl. 22:30: Í upphaflegri útgáfu fréttar kom fram að gögnin hefðu ekki verið afhent nefndinni. Það byggði á upplýsingum sem Stundin hafði þá fengið frá nefndar­mönnum. Gögnin bárust hins vegar í dag og hefur fréttinni verið breytt í samræmi við það.

Farið var fram á afhendingu gagnanna að frumkvæði Þórhildar Sunnu Ævars­dóttur, þingkonu Pírata, með stuðningi Jóns Þórs Ólafs­sonar og Svandísar Svavars­dóttur, vara­formanns nefndarinnar. Var meðal annars óskað eftir minnis­blöðum og lista yfir málsgögn er varða uppreist æru kynferðis­brota­mannanna Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar og Roberts Downey auk dag­bók­ar­færslna eða sam­bæri­legra gagna sem stað­festu sím­tal Sig­ríðar And­er­sen dóms­mála­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra um að faðir Bjarna hefði skrifað meðmæla­bréf fyrir Hjalta.

Stundin sendi ráðuneytinu einnig ítarlega upplýsinga­beiðni þann 29. september á grund­velli upplýsinga­laga. Enn hafa engin viðbrögð komið frá ráðuneytinu þrátt fyrir skýr ákvæði upplýsinga­laga um að ef upplýsinga­beiðni hafi ekki verið afgreidd innan sjö daga beri stjórn­völdum að skýra frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta. Aðeins fáeinar vikur eru síðan úrskurðar­nefnd um upplýsingamál komst að þeirri niður­stöðu að sama ráðuneyti hefði gengið lengra í upplýsinga­leynd en lög heimila þegar fjöl­miðlum og brota­þolum var synjað alfarið um upplýsingar um uppreist æru Roberts Downey.

Tveir ráðherrar fullyrða að málinu sé lokið og allt upplýst

Tveir ráðherrar Viðreisnar hafa haldið því fram undan­farna daga að embættis­færslur dómsmála­ráðherra og forsætis­ráðherra í málinu sem felldu ríkis­stjórnina hafi verið full­rannsakaðar og málin séu nú upplýst. „Við erum öll sammála um það,“ sagði Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar og starfandi fjármála­ráðherra, í Forystu­sætinu á RÚV í gær. „Það er búið að upplýsa málið.“

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttis­ráðherra, tók í sama streng í svari við fyrir­spurn Stundarinnar sem birtist á vefnum í morgun.

„Tel ég það vera upplýst að öll meðferð málsins hafi verið í samræmi við meðferð sambærilegra mála og tengsl eins af meðmælendum við þáverandi fjármála­ráðherra hafi ekki haft nein áhrif þar á svo séð verði,“ sagði hann þar.

Nefndarformaður segir málinu lokið

Jón Steindór bendir á það í svari við tölvu­pósti Stundarinnar að upplýsinga­beiðni frá Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, sem studd var af Jóni Þór Ólafssyni og Svandísi Svavars­dóttur, um málsgögn – minnis­blöð dómsmála­ráðuneytisins í tveimur málum er varða uppreist æru – hafi verið send ráðuneytinu. „Svar hefur ekki borist þegar þetta er ritað,“ skrifar hann.

Jón Steindór Valdi­mars­sonfor­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar

Jón telur þó að í ljósi ummæla umboðs­manns Alþingis um að ekki væri tilefni til frumkvæðis­rannsóknar af sinni hálfu líti hann svo á að málinu sem nefndin fjallaði um undir heitinu uppreist æru, reglur og framkvæmd, sé lokið. „Komi fram nýjar upplýsingar eða umboðs­maður Alþingis taki málið upp með einhverjum hætti er komin upp ný staða sem nefndin mun þurfa að taka afstöðu til þegar þar að kemur,“ segir Jón Steindór. 

Jón vísar til sameiginlegrar bókunar nefndar­manna og skýrslu um málið sem var skilað fyrir þinglok. „Nefndin fékk Umboðs­mann Alþingis á sinn fund til þess að fara yfir helstu álitaefni í samskiptum tveggja ráðherra vegna upplýsinga sem voru þáttur í stjórnsýslu­meðferð upplýsinga er vörðuð tiltekið mál um uppreist æru,“ skrifar Jón.

„Niður­staða hans var skýr. Hann taldi ekki ástæðu til frumkvæðis­rannsóknar af sinni hálfu. Í ljósi þess ákvað nefndin að gera sérstaka bókun um málið á fundi sínum og í framhaldi af því að ganga frá skýrslu sinni um uppreist æru, reglur og framkvæmd. Allir nefndar­menn voru sammála bæði um bókunina og skýrsluna. Að þessu leyti er meðferð málsins lokið fyrir nefndinni.“

Hann vitnar til orða Umboðs­manns Alþingis um að ráðherrar séu annars vegar embættis­menn og hins vegar stjórn­málamenn. Það kunni því að gilda mismun­andi sjónarmið og reglur um störf þeirra og athafnir eftir því um hvort hlut­verkið er að ræða. „Stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd fjallar ekki um störf ráðherra sem stjórn­málamanna heldur embættis­manna,“ skrifar Jón Steindór. „Pólitíska ábyrgð bera þeir gagnvart kjósendum, eigin flokks­mönnum og eftir atvikum samstarfs­flokkum sínum í ríkis­stjórn.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár