„Takmörk fyrir því hvað hægt er að verja“

Formaður VR veltir fyrir sér stöðu álversins í Straumsvík en hann hefur miklar áhyggjur af stöðu stór­iðjunnar og vel launuðum störfum sem hún skapar.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck/Samsett mynd

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fjallar um stöðu álversins í Straumsvík í stöðu­uppfærslu á Facebook í dag. Fram kom í fréttum í síðustu viku að Lands­­virkjun ætti í sam­tali við Rio Tin­to, eig­anda álver­s­ins í Straum­s­vík, en fyr­ir­tækið hefur tilkynnt að það ætli að hefja sér­­­staka end­­­ur­­­skoðun á starf­­­semi álver­s­ins til að meta rekstr­­­ar­hæfni þess til fram­­­tíð­­­ar­.

Hann segist hafa miklar áhyggjur af stöðu stór­iðjunnar og vel launuðum störfum sem hún skapar en það séu takmörk fyrir því hvað hægt sé að verja.

Ragnar Þór segir að eftir að hafa skoðað rekstrar­tölur fyrir­tækisins komi margt áhugavert í ljós. Sérstak­lega þegar skoðað sé hvaða liðir í rekstri orsaki þetta mikla tap síðastliðin 10 ár. „Árið 2011 voru afskriftir 2,77 prósent af eignum og hafa hækkað jafnt og þétt síðustu ár og voru komnar upp í 10,52 prósent af eignum árið 2018 og voru rúmir 45,6 milljónir dollarar það árið á meðan tapið var rúmir 44,6 milljónir dollarar. Þetta þýðir að samkvæmt rekstrar­reikningi verður verksmiðjan verðlaus með öllu eftir um 10 ár,“ skrifar hann.

Þannig að tapið liggi að mestu í háum afskriftum þó markaðs­aðstæður hjálpi þar ekki til.

„Ýmsum brellum beitt“

Ragnar Þór bendir á að á árinu 2018 hafi Ísal greitt 15,4 milljónir dollarar í þóknun til móður­félags um 2 milljarðar króna á meðan að allar launa­greiðslur með launa­tengdum gjöldum hjá fyrir­tækinu hafi verið 46,6 milljónir dollara eða um 6 milljarðar króna.

Ef veltufé frá rekstri sé skoðað þá sé það jákvætt fyrir öll árin. Þannig sé ljóst að fyrir­tækið sé ekki eins illa statt og búið hafi verið að fullyrða í „hræðslu­áróðri gagnvart starfs­fólki og stjórn­völdum.“

Auk þess taki móður­félagið um 2 milljarða í þóknun á hverju ári út úr rekstrinum á Íslandi. Þá sé ótalið að fyrir­tækið sitji beggja megin borðs þegar kemur að hráefnis­kaupum og sölu afurða sem álverið fram­leiðir og geti þannig haft áhrif á afkomu þess eftir hentisemi.

„Það er ýmsum brellum beitt til að græða meira og borga minni skatta. Og eru alþjóðleg stór­fyrirtæki alræmd í þeim efnum. Ekki er líklegt að Rio Tinto sé undan­tekning í þeim efnum,“ skrifar hann.

Starfsfólki haldið í gíslingu

Þá telur Ragnar Þór að það ógeð­fellda í þessu öllu saman sé að Rio Tinto neiti að gefa stjórn­endum Ísal og SA leyfi til að skrifa undir kjara­samning sem aðilar hafi komið sér saman um og ætli sér að nota starfs­fólkið í pólitískri refskák í samninga­viðræðum við stjórn­völd og Lands­virkjun. „Ógeð­felldari aðferð er ekki hægt að hugsa sér að halda starfs­fólki í gíslingu með þessum hætti ásamt gegndar­lausum hræðslu­áróðri með tilheyrandi óvissu fyrir starfs­fólk og fjöl­skyldur þeirra.“

Hann lýkur færslu sinni á að segja að tryggja verði að öllum samninga­viðræður stjórn­valda og Lands­virkjunar við Rio Tinto um hugsanlega endur­skoðun á raforku­samningi verði frestað þangað til búið sé að semja við fólkið sem þar starfar.

Verið að sturta niður lífsviðurværi fólksins niður í holræsið

Sjá má að ekki eru allir verkalýðs­foringjar á sama máli er varðar vandræði álversins en Vilhjálmur Birgisson, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, telur að ef af verður og álverinu verði lokað þá sé verið að sturta niður lífs­viðurværi fólksins sem þar starfar niður í holræsið.

Hann greindi frá því í stöðu­uppfærslu í síðustu viku að álverið væri í dauða­teygjunum vegna „græðgisvæðingar Lands­virkjunar.“ Hann sagði að á meðan álverið í Straumsvík hefði tapað tæpum 25 milljörðum hefði Lands­virkjun skilað tæpum 70 milljörðum í hagnað.

„Eins og margir tóku eftir þá fagnaði álverið í Straumsvík 50 ára afmæli í fyrra, en Lands­virkjun hélt upp á 50 ára afmæli sitt árið 2015.

Það er rétt að nefna að Lands­virkjun var í raun stofnuð vegna byggingu Búrfells­virkjunar, fyrstu stór­virkjun landsins, sem sá og sér álverinu fyrir rafmagni og því sé fróðlegt að bera saman afkomu fyrir­tækjanna síðustu árin,“ skrifaði hann.

Hann telur því að álverið í Straumsvík hafi markað upphafið að því stórveldi sem Lands­virkjun sé nú orðið, en „rétt er að geta þess að álverið í Straumsvík er næst stærsti viðskipta­vinur Lands­virkjunar. Það er því eilítið fróðlegt að skoða fjárhags­stöðu þessara tveggja fyrir­tækja síðustu 7 ára í ljósi þess að bæði fyrir­tækin hafa fagnað 50 ára afmæli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár