Logi kjörinn þingflokksformaður Samfylkingarinnar

Logi Einarsson var kjörinn þing­flokks­formaður Samfylk­ing­ar­innar á fundi þing­flokksins í dag. Hann tekur við því hlutverki af Helgu Völu Helga­dóttur þingmanni flokksins.

Logi Einarsson hefur verið kjörinn þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son hefur verið kjör­inn þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Logi Einarsson var kjörinn þing­flokks­formaður Samfylkingarinnar á fundi þing­flokksins í dag, samkvæmt tilkynningu sem hefur borist frá flokknum.

Hann tekur við þingflokks­formennskunni af Helgu Völu Helga­dóttur sem gegnt hafði stöðunni frá því að þing kom saman eftir alþingis­kosningarnar í fyrra.

Kjarninn sagði frá því á föstudag að stefnt væri að því að Logi, sem var formaður Samfylkingarinnar frá 2016 og þar til Kristrún Frosta­dóttir tók við af honum á lands­fundi flokksins undir lok október­mánaðar, tæki við embættinu af Helgu Völu.

Í tilkynningu frá Samfylkingunni er haft eftir Loga að hann sé „þakklátur fyrir traustið“ og að hann muni gera sitt besta við að leggja nýrri forystu flokksins lið.

Að auki kemur þar fram að Þórunn Svein­bjarnar­dóttir hafi verið kjörin vara­formaður þing­flokksins og Jóhann Páll Jóhannsson hafi verið kjörinn ritari þing­flokksins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár