Stefnt að því að Logi leysi Helgu Völu af hólmi sem þingflokksformaður

Stefnt er að því að fyrr­verandi formaður Samfylk­ing­ar­innar taki við hlutverki þing­flokks­formanns flokksins, samkvæmt heimildum Kjarnans. Helga Vala Helga­dóttir hefur gegnt því hlutverki í um það bil eitt ár.

Stefnt er að því að Logi Einarsson taki við sem þingflokksformaður Samfylkingar, samkvæmt heimildum Kjarnans.
Stefnt er að því að Logi Ein­ars­son taki við sem þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ingar, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Mynd: Bára Huld Beck

Stefnt er að því að Logi Einarsson verði næsti þing­flokks­formaður Samfylkingarinnar, samkvæmt heimildum Kjarnans.

Í hádeginu sagði RÚV frá því að Kristrún Frosta­dóttir, nýr formaður Samfylkingar, ætlaði að skipta Helgu Völu Helga­dóttur út sem þing­flokks­formanni. Helga Vala vísaði fyrir­spurn RÚV um þetta efni áfram til Kristrúnar, sem hvorki játaði því né neitaði að til stæði að skipta um þing­flokks­formann.

Í samtali við RÚV sagði Kristrún að þing­flokks­fundur hefði ekki enn verið haldinn frá því að Samfylkingin lauk sínum lands­fundi og þing­flokks­fundur, þar sem ákvarðanir af þessu tagi eru teknar, hefði því ekki enn farið fram.

Þar sem engin að engin ákvörðun hefði verið tekin af þing­flokknum, hefði hún lítið að segja um málið.

„Þetta er bara málefni sem þarf að eiga sér stað og ræða inni í þing­flokknum. Það er kosið um það og farið með þetta inn í umræðu í þing­flokknum. Þannig það er bara ekki tímabært að vera að tjá sig um það,“ sagði Kristrún.

Þaulsetnasti formaður Samfylkingarinnar frá stofnun

Helga Vala, sem hefur setið á þingi sem alþingis­maður Reyk­víkinga frá árinu 2017, hefur verið formaður þing­flokks Samfylkingarinnar frá því í fyrra.

Logi hefur verið þingmaður Norðaustur­kjördæmis frá 2016 og formaður Samfylkingarinnar allt frá því að hann settist á þing og þar til um síðustu helgi, sem gerir hann að þaulsetnasta formanni flokksins frá því að Samfylkingin var stofnuð um aldamót.

Með því að segja af sér embætti formanns sagðist Logi, sem kunn­gjörði þá ákvörðun sína í samtali við Frétta­blaðið í júní, vera að axla ábyrgð á slælegu gengi flokksins í síðustu þing­kosningum, en flokkurinn tapaði fylgi og fékk einungis 9,9 prósent atkvæða á landsvísu og sex þingmenn kjörna.

Á flokks­­stjórn­­­ar­fundi Samfylkingarinnar í mars flutti Logi ræðu þar sem hann gerði upp von­brigð­in.

„Ef við horfum gagn­rýnum augum inn á við er vafa­­laust hægt að leita skýr­inga víða; aðferðir við val á lista, mótun skila­­boða, sam­­skipta­hátt­um, mannauð og for­ystu flokks­ins. Og þar ber ég að sjálf­­sögðu ábyrgð,“ sagði Logi.

Hann sagði við Frétta­blaðið í sumar að hann hefði viljað hætta strax eftir síðustu kosningar, en að hann hefði verið sann­færður um að halda áfram, sem hann gerði, fram að lands­þingi sem fram fór um liðna helgi.

Þar var forysta Samfylkingarinnar endurnýjuð. Kristrún var kjörin nýr formaður, Guðmundur Árni Stef­ánsson oddviti flokksins í Hafnar­firði var sjálf­kjörinn vara­formaður og Arna Lára Jóns­dóttir bæjar­stjóri Ísafjarðar­bæjar var kjörin ritari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár