Smábörn sem hafa búið á Íslandi frá fæðingu verða flutt úr landi í nótt í lögreglufylgd

Hin sex mán­aða gamla Jónína og hinn tveggja ára gamli Hanif verða flutt úr landi nótt ásamt for­eldrum sínum þeim Saad og Fadilu. Bæði Jónína og Hanif fædd­ust hér á landi en Hanif er nýbyrj­aður á leik­skóla.

Flutt með valdi í óvissuna
Flutt með valdi í óviss­una Hinn tveggja ára gamli Hanif og hin sex mán­aða gamla Jónína búa í Reykja­nesbæ og hafa gert frá fæð­ingu. Núna verður þeim vísað úr landi ásamt for­eldr­unum Saad og Fadila sem vita ekk­ert hvað bíður þeirra. Mynd: Haraldur Jónasson/Fréttatíminn

„Þetta er hræði­legt og þá sér­stak­lega út af börn­unum okkar. Ég hef ekki hug­mynd hvað bíður okkar en ég veit að þetta verður ekki auð­velt. Þetta er ekki auð­velt,“ sagði Adelwahab Saad, tveggja barna faðir, þegar blaða­maður Stund­ar­innar náði tali af honum um klukkan sjö í kvöld. Fjöl­skyldan fékk þær upp­lýs­ingar í dag að lög­reglu­menn komi til með að flytja þau upp á Kefla­vík­ur­flug­völl í nótt þar sem þeim verður flogið til Ítalíu. Þetta er gert þrátt fyrir að bæði börn þeirra Saad og eig­in­konu hans Fadilu hafði fæðst hér á landi og þekki ekk­ert annað. Það eru þau Hanif, sem er tveggja ára, og Jónína, sem er sex mán­aða.

Uppfært: Barna­vernd kom í veg fyrir flutn­ing barn­anna úr landi.

Þetta stað­festir lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar, Árni Freyr Árnason.

„Þarna er verið að fram­fylgja úrskurði frá því fyrr á þessu ári sem kvað svo á um að þau upp­fylltu ekki ákveðin skil­yrði og ættu því ekki að fá hæli hér á landi. Þá var lögð fram sú beiðni um að rétt­ar­á­hrifum þess úrskurðar yrði frestað svo hægt væri að láta reyna á vafa­at­riði fyrir dóm­stólum en bæði Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála höfn­uðu því núna í ágúst,“ segir Árni Freyr. Hann viti ekk­ert hvað bíði fjöl­skyld­unnar á Ítalíu, hvort kerfið ytra sjái til þess að fjöl­skyldan fái að vera saman eða ekki. Eitt sé þó víst og það sé að lög­reglu­menn mæta á heim­ili fjöl­skyld­unnar í nótt og hún flutt með valdi upp á Kefla­vík­ur­flug­völl.

Þegar Árni Freyr heyrði af því að senda ætti fjöl­skyld­una úr landi á næstu vikum þá hafði hann aftur sam­band við bæði Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála og lagði hann fram þá beiðni að stofn­unin myndi end­ur­skoða ákvörðun sína varð­andi frestun rétt­ar­á­hrifa. Því var líka hafnað.

Heitir Jónína í höfuðið á ljósmóður

Stundin hefur áður fjallað um fjöl­skyld­una en Abdelwahab Saad flúði frá heima­landi sínu, Togo, fyrir tíu árum síðan vegna póli­tískra ofsókna. Hann og eig­in­kona hans, Fadila, hafa nú dvalið hér á landi í tvö ár og eiga tvö börn, ann­ars vegar tveggja ára son­inn Hanif, sem er nýbyrj­aður á leik­skóla og hins vegar sex mán­aða gamla dóttur sem heitir Jónína. Jónína er nefnd eftir íslenskri ljós­móður sem reynd­ist þeim vel. Bæði Hanif og Jónína eru með íslenska kenni­tölu og hafa búið á Íslandi frá fæð­ingu. Um einmitt þetta snýst umrætt vafat­riði um því í ákvæði útlend­inga­lag­anna er kveðið svo á um að óheim­ilt sé að vísa frá eða úr landi útlend­ingi sem hafi frá fæð­ingu átt hér óslitið fasta búsetu sam­kvæmt Þjóðskrá.

Það liggur skýrt fyrir að börnin hafi átt hér óslitið fasta búsetu en það hafi þau hins­vegar ekki gert sam­kvæmt Þjóðskrá. Hvers vegna samt? Af hverju hafa þau ekki búið hérna óslitið sam­kvæmt Þjóðskrá? Jú því hæl­is­leit­endur fá ekki gefna neina stöðu hjá Þjóðskrá. Börnin hafi fengið það sem kall­ast „utan­skrár kennitala“ og það sé skrán­ing utan Þjóð­skrár og því hafi þau ekki rétt sam­kvæmt þessu ákveðna ákvæði að vera hér á landi.

Börnin fá ekki að njóta vafans

„Þetta er það sem manni finnst svo skrítið. Kerfið fær alltaf að njóta vafans. Þarna er klár­lega vafa­at­riði á ferð­inni og við höfum bent á það og bíðum nú álits umboðs­manns Alþingis en í stað þess að leyfa þeim að njóta vafans, börnum fæddum 2014 og 2016, þá er þetta ekki talið nógu sér­stakt eða aðkallandi til þess að rétt­læta það að bíða með að vísa þessum börnum og for­eldrum þeirra úr landi.“

„Ég er ekki búinn að pakka
og ég ætla ekki að pakka“

Saad segir sig og fjöl­skyldu sína ekki vera byrj­aða að pakka ofan í tösku.

„Nei, ég er ekki búinn að pakka og ég ætla ekki að pakka. Þetta er heim­ilið okkar. Sonur minn er að byrja í leik­skóla í næsta mán­uði og við eigum hér fullt af vinum sem við lítum á sem fjöl­skyld­una okkar. Vinir sem okkur langar að halda áfram að hitta. Þetta er mikið áfall fyrir okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár