Leynilegar viðræður milli Kína og Bandaríkjanna um tollamál sagðar hafnar

Donald Trump ætlar sér að nýta tolla á innflutning til að efla bandaríska hagkerfið. Hans nánustu efna­hagas­ráð­gjafar eru sagðar algjör­lega á móti áformum hans.

Leynilegar viðræður milli yfirvalda í Kína og Banda­ríkjunum, um leiðir til að liðka fyrir viðskiptum milli landanna, eru hafnar. Þær fara fram í skugga áforma Donalds Trumps, forseta Banda­ríkjanna, um að setja á sértæka tolla á ýmsar vöru­tegundir sem fluttar eru í stórum stíl til Banda­ríkjanna, ekki síst frá Kína.

Frá þessu greinir Wall Street Journal, og fullyrðir að Liu He, yfir­ráðherra viðskipta­samninga Kína, leiði viðræðurnar fyrir hönd kínverska yfirvalda, en Steven Mnuchin, fjármála­ráðherra Banda­ríkjanna, leiði þær fyrir hönd Banda­ríkjanna.

Óhætt er að segja að miklir hagsmunir séu í húfi þegar kemur að viðskipta­sambandi þessara ríkja. Ekki er langt síðan að efnahags­ráðgjafi Trumps, Gary Cohn, hætti störfum fyrir forsetann, og var ágrein­ingur um alþjóða­viðskipti og tolla­áform sögð megin­ástæða þess að hann hætti störfum.

Trump hefur þegar boðað tolla á stál og ál, og einnig fleiri vörur, eins og þvotta­vélar og fleiri heimilis­tæki. Tollarnir á stál verða 25 prósent og á ál 10 prósent, en þeir munu ekki ná til allra landa. Evrópu­sambandið hefur þegar fengið undanþágu frá þessum áformum og Kanada og Mexíkó einnig. Þær eru hins vegar tíma­bundnar, en Trump hefur sagt, að hann vilji að bandarísk fyrirtæki noti bandaríska fram­leiðslu í sinni starfsemi. Loka­markmiðið með tollunum á innflutning sé að styrkja við sköpun starfa í Banda­ríkjunum.

Í umfjöllun Wall Street Journal segir að viðræðurnar milli Kína og Banda­ríkjanna taki til marg­víslegra geira atvinnu­lífsins, þar á meðal fjármála­þjónustu og fram­leiðslu af ýmsu tagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár