Minniháttar aukning fjárframlaga til loftslagsáætlunar

Útgjöld vegna skóg­ræktar standa í stað og 20 milljónum meira verður varið til aðgerða­áætlunar í loftslags­málum en til stóð samkvæmt fjár­laga­frumvarpi fyrri stjórnar.

50 milljónum verður varið til aðgerða­áætlunar í loftslags­málum og nýs loftslags­ráðs árið 2018 samkvæmt fjár­laga­frumvarpi ríkis­stjórnarinnar, eða 20 milljónum meira en til stóð samkvæmt fjár­laga­frumvarpi Benedikts Jóhannessonar. Þing­flokkur Samfylkingarinnar gagnrýnir þetta í frétta­tilkynningu og hæðist að því að „hið vel kynnta átak ríkis­stjórnarinnar í loftslags­málum [fái] heilar 20 milljónir“. Þá sé ekki gert ráð fyrir aukningu fjár­framlaga til skóg­ræktar frá fyrra frumvarpi.

Eins og Stundin greindi frá í morgun verða tekjur af kolefnis­gjaldi, olíu­gjaldi og vöru­gjaldi af ökutækjum verða samtals 4,5 milljörðum minni í fjár­laga­frumvarpi nýrrar ríkis­stjórnar en til stóð samkvæmt fjár­laga­frumvarpi fyrri stjórnar. Hér vegur þyngst að kolefnis­gjald hækkar helmingi minna en ráðgert var.

Þetta hefur komið nokkuð á óvart í ljósi háleitra markmiða í loftslags­málum sem sett eru fram í stjórnar­sáttmála nýrrar ríkis­stjórnar. Þar kemur m.a. fram að ríkis­stjórnin ætli að „gera betur en Parísar­samkomu­lagið gerir ráð fyrir og stefna að kolefnis­hlutlausu Íslandi í síðasta lagi árið 2040,“ og að skatt­heimta skuli þjóna loftslags­markmiðum.

Svo virðist þó af nýframlögðu fjár­laga­frumvarpi að ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur ætli að leita annarra leiða til grænnar skatt­heimtu en ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hafði í hyggju. 

Samkvæmt stjórnar­sáttmálanum verður lofts­lagsráð sett á laggirnar og „aðgerða­áætlun um samdrátt í losun gróðurhúsa­lofttegunda tímasett og fjár­mögnuð“. 50 milljóna fjár­framlag fylgir þessu verkefni á fjárlaga­árinu 2018, en alls verða útgjöld hins opinbera vegna umhverfis­mála um 330 milljónum meiri en gert var ráð fyrir í fjár­laga­frumvarpi Benedikts Jóhannessonar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár