Lilja skipar Lárus sem stjórnarformann Menntasjóðs námsmanna

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur skipað Lárus Sigurð Lárusson lög­mann sem stjórn­ar­for­mann nýs Mennta­sjóðs náms­manna. Hann leiddi lista Fram­sóknar í Reykja­vík norður til síð­ustu alþing­is­kosn­inga.

Lárus Sigurður Lárusson er fyrsti stjórnarformaður nýs Menntasjóðs námsmanna.
Lárus Sigurður Lárusson er fyrsti stjórn­ar­for­maður nýs Mennta­sjóðs náms­manna. Mynd: Aðsend

Lárus Sigurður Lárusson lög­maður hefur verið skip­aður stjórn­ar­for­maður nýs Mennta­sjóðs náms­manna, sem kemur í stað Lána­sjóðs íslenskra náms­manna (LÍN). Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra skipar í stjórn sjóðs­ins.

Lárus starfar hjá lög­manns­stof­unni Sævar Þór & Partners. Hann starf­aði áður sem lög­fræð­ingur hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu í rúm fimm ár áður en hann fór að leggja stund á lög­mennsku. Þar áður var hann lög­fræð­ingur hjá Per­sónu­vernd. Alls starf­aði Lárus sem lög­fræð­ingur hjá rík­inu í meira en ára­tug.

Hann hefur setið í stjórn LÍN frá 2018 og verið vara­for­maður stjórn­ar­innar. Lárus situr einnig í stjórn um heið­urs­laun lista­manna og er vara­maður í stjórn lista­manna­launa. Í þessar stjórnir var hann einnig til­nefndur eða skip­aður í af Lilju Alfreðs­dóttur.

Oddviti Framsóknar í Reykjavík norður árið 2017

Lárus hefur lengi verið virkur í starfi Fram­sókn­ar­flokks­ins. „Ég hef verið í Fram­sókn­ar­flokknum í meira en 20 ár. Það liggur við að það hafi stundum verið feimn­is­mál að vera í Fram­sókn­ar­flokknum og oft verið mjög erfitt,“ sagði hann í við­tali við Vísi árið 2016.

Þá var Lárus í 2. sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður fyrir alþing­is­kosn­ingar. Ári seinna, er boðað var að nýju til kosn­inga, var Lárus odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu og voru það því hann og Lilja Alfreðs­dóttir sem fóru fyrir flokknum í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur.

Mannaráðningar Lilju til umfjöllunar

Töluvert hefur verið fjallað um skip­anir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra í nefndir og emb­ætti und­an­farnar vikur, eftir að kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu að Lilja hefði farið gegn jafn­rétt­islögum er hún skip­aði Pál Magn­ús­son, fyrr­ver­andi vara­þing­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í ráðu­neyti sínu. Umboðs­maður Alþingis er einnig með skip­un­ina til skoð­unar.

Lilja hefur síðan þá farið í mál við Hafdísi Helgu Óla­dóttir, kon­una sem kærði ráðn­ing­una, til þess að reyna að fá úrskurð­inum hnekkt. Ráðu­neytið hefur sagt þá ákvörðun byggja á lög­fræði­á­litum sem ráð­herra afl­aði sér, sem hefðu bent á laga­lega ann­marka í úrskurði kæru­nefnd­ar­innar og laga­lega óvissu, sem Lilja vilji eyða.

Kjarninn hefur reynt að fá lög­fræði­á­litin afhent, en ráðu­neytið synj­aði beiðn­inni síð­asta föstu­dag. Sú ákvörðun hefur verið kærð til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Í kjöl­far frétta um nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar mál kom fram í fjöl­miðlum að for­maður hæf­is­nefnd­ar­innar sem fjall­aði um ráðn­ingu í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra var lög­fræð­ing­ur­inn Einar Hugi Bjarna­son.

Lilja hefur valið hann til ýmissa trún­að­ar­starfa í ráð­herra­tíð sinni og fram kom hjá RÚV að ráðu­neytið hefði greitt honum alls 15,5 millj­ónir króna fyrir lög­fræði­ráð­gjöf og nefnd­ar­setu á vegum ráðu­neyt­is­ins síðan árið 2017.

Rík­is­fjöl­mið­ill­inn greindi einnig frá því að Lilja hefði farið gegn til­lögu sér­fræð­inga í ráðu­neyti sínu er hún fól Einari Huga for­manns­hlut­verkið í fjöl­miðla­nefnd í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár