Menntamálaráðuneytið synjar Kjarnanum um aðgang að lögfræðiálitunum sem Lilja aflaði

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið neitar að afhenda Kjarn­anum lög­fræði­á­litin sem Lilja D. Alfreðs­dóttir afl­aði í aðdrag­anda þess að hún ákvað að stefna skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu til að fá úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála hnekkt.

Lilja D. Alfreðsdóttir er mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir er mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hefur synjað Kjarn­anum um aðgang að þeim lög­fræði­á­litum sem Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála, afl­aði í aðdrag­anda þess að hún ákvað að höfða mál á hendur Haf­dísi Helgu Ólafs­dótt­ur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sem kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála úrskurð­aði nýverið að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög með því að snið­ganga í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í ráðu­neyt­inu.

Þegar greint var frá á RÚV þann 24. júní síð­ast­lið­inn að Lilja ætl­aði að stefna Hafdísi Helgu, með það fyrir augum að fá úrskurð kæru­nefnd­ar­innar ógildan, kom fram að sú ákvörðun hefði verið tekin eftir að ráð­herr­ann hefði aflað sér lög­fræði­á­lita sem bent hefðu á laga­lega ann­marka í úrskurði kæru­nefnd­ar­inn­ar. Úrskurð­ur­inn byði upp á laga­lega óvissu í tengslum við það ferli sem unnið sé eftir við skipan emb­ætt­is­manna. Þeirri laga­ó­vissu vilji Lilja eyða.

Kjarninn óskaði strax sama kvöld eftir því að fá umrædd lög­fræði­á­lit afhent.

Svar við gagna­beiðn­inni barst í dag, 3. júlí, eða níu dögum eftir að gagna­beiðnin var send. Þar segir að Lilja hafi aflað lög­fræði­á­lit­anna vegna athug­unar á því hvort að dóms­mál skyldi höfðað. Í ljós þess vís­aði ráðu­neytið í þriðja tölu­lið sjöttu greinar upp­lýs­inga­laga þar sem segir að bréfa­skipti við sér­fróða aðila í tengslum við rétt­ará­grein­ing eða til afnota í dóms­máli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað séu und­an­þegin upp­lýs­inga­lögum og synj­aði á þeim grund­velli beiðni Kjarnans um aðgengi að gögn­unum.

Kjarninn mun kæra þá nið­ur­stöðu til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál á næstu dögum.

Braut jafnréttislög

Greint var frá því í byrjun mán­aðar að Lilja hefði brotið jafn­­rétt­is­lög við skipun Páls Magn­ús­­sonar í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra í fyrra, sam­­kvæmt úrskurði kæru­­nefndar jafn­­rétt­is­­mála. Hún hafi van­­metið Haf­­dísi Helgu í sam­an­burði við Pál. Hæf­is­nefnd hafði ekki talið Haf­dísi Helgu í hópi þeirra fjög­urra sem hæf­astir voru taldir í starf­ið.

[adspot]Páll, sem var skip­aður í emb­ættið síðla árs í fyrra, hefur um ára­bil gegn trún­­­að­­­ar­­­störfum fyrir Fram­­­sókn­­­ar­­­flokk­inn en hann var vara­­þing­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins í tvö kjör­­tíma­bil í kringum árið 2000 og aðstoð­­ar­­maður Val­­gerðar Sverr­is­dóttur ráð­herra Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins.

Í kjöl­far frétta um nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar fjöll­uðu fjöl­miðlar um for­mann hæf­is­nefnd­ar­innar sem tók um ráðn­ingu ráðu­neyt­is­stjór­ans. For­maður hennar er lög­fræð­ing­ur­inn Einar Hugi Bjarna­son, sem Lilja hefur á tveggja og hálfs starfs­tíma sínum í ráðu­neyt­inu, valið til margra trún­að­ar­starfa. Ráðu­neytið hefur á þeim tíma greitt Ein­ari Huga alls 15,5 millj­ónir króna fyrir lög­fræði­ráð­gjöf og nefnd­ar­setu á vegum ráðu­neyt­is­ins.

Í áður­nefndri frétt RÚV, frá 24. júní, var rakið að í lögum um kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála segi að úrskurðir hennar séu bind­andi gagn­vart máls­að­il­um, en þeim sé heim­ilt að bera úrskurði hennar undir dóm­stóla. Til þess þurfi ráð­herr­ann, Lilja, að höfða mál á hendur kær­and­an­um, Haf­dísi Helg­u.

Lög­maður Haf­dísar Helgu, Áslaug Árna­dótt­ir, sagði við RÚV að þessi ákvörðun ráð­herr­ans hefði komið á óvart. „ Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið gert áður, að ráð­herra hafi höfðað mál per­sónu­lega gegn aðila sem kærir ákvörðun ráð­herra til kæru­nefnd­ar­inn­ar.“

Vill ekki „kælingaráhrif“

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn um málið til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í vik­unni og óskaði eftir afstöðu hennar til ákvörð­unar Lilju um að stefna Hafdísi Helgu per­sónu­lega. „Það er auð­vitað sér­stakt að lögin geri ráð fyrir því að eina leiðin til að fá úrskurði hnekkt sé að fara í mál við ein­stak­ling­inn sem kær­ir,“ sagði í skrif­legu svari for­sæt­is­ráð­herra.

Hún benti á að lögin geri ráð fyrir þess­ari heim­ild ráð­herra og að kær­andi hafi sama úrræði ef málið fer ekki á hans veg. Katrín taldi að full ástæða væri til að skoða þetta „því ekki viljum við að fram­kvæmd lag­anna með þessum hætti hafi kæl­ing­ar­á­hrif, ef svo mætti segja, á vilja fólks til að leita réttar síns. Ferlið er einmitt hugsað til að tryggja rétt fólks sem telur á sér brot­ið.“

For­sæt­is­ráð­herr­ann tók enn fremur undir það með Jafn­rétt­is­stofu að til fram­tíðar litið þurfi að skoða hvort ekki mætti útfæra þetta betur þannig að fólki yrði ekki stefnt fyrir að nýta rétt sinn en báðir aðilar geti áfram látið reyna á úrskurð kæru­nefndar fyrir dóm­stól­um. „Það tel ég um að gera nú þegar end­ur­skoðun á jafn­rétt­islögum fer fram og ég er full­viss um að hægt er að breyta þessu fyr­ir­komu­lagi til betri veg­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár