Lilja höfðar mál gegn konunni sem kærunefnd jafnréttismála sagði hana hafa brotið á

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur ákveðið að höfða mál til að ógilda úrskurð kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála um að hún hafi brotið jafn­rétt­islög við skipun á ráðu­neyt­is­stjóra.

Lilja D. Alfreðsdóttir er mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir er mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, ætlar að höfða mál gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sem kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála úrskurð­aði nýverið að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög með því að snið­ganga í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Þar segir að með því að stefna Hafdísi Helgu ætli Lilja að reyna að ógilda úrskurð kæru­nefnd­ar­innar.

Greint var frá því í byrjun mán­aðar að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög við skipun Páls Magn­ús­sonar í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í fyrra, sam­kvæmt úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála. Hún hafi van­metið Haf­dísi Helgu í sam­an­burði við Pál. Hæf­is­nefnd hafði ekki talið Hafdísi Helgu í hópi þeirra fjög­urra sem hæf­astir voru taldir í starfið.

Páll, sem var skip­aður í emb­ættið síðla árs í fyrra, hefur um ára­bil gegn trún­­að­­ar­­störfum fyrir Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn en hann var vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í tvö kjör­tíma­bil í kringum árið 2000 og aðstoð­ar­maður Val­gerðar Sverr­is­dóttur ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins.

[adspot]Í kjöl­far frétta um nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar fjöll­uðu fjöl­miðlar um for­mann hæf­is­nefnd­ar­innar sem tók um ráðn­ingu ráðu­neyt­is­stjór­ans. Formaður hennar er lög­fræð­ing­ur­inn Einar Hugi Bjarna­son, sem Lilja hefur á tveggja og hálfs starfs­tíma sínum í ráðu­neyt­inu, valið til margra trún­að­ar­starfa. Ráðu­neytið hefur á þeim tíma greitt Einari Huga alls 15,5 millj­ónir króna fyrir lög­fræði­ráð­gjöf og nefnd­ar­setu á vegum ráðu­neyt­is­ins.

Í frétt RÚV er rakið að í lögum um kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála segi að úrskurðir hennar séu bind­andi gagn­vart máls­að­ilum, en þeim sé heim­ilt að bera úrskurði hennar undir dóm­stóla. Til þess þarf ráð­herr­ann, Lilja, að höfða mál á hendur kær­and­anum, Hafdísi Helgu.

Lögmaður Hafdísar Helgu, Áslaug Árna­dóttir, segir við RÚV að þessi ákvörðun ráð­herr­ans komi á óvart. „ Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið gert áður, að ráð­herra hafi höfðað mál per­sónu­lega gegn aðila sem kærir ákvörðun ráð­herra til kæru­nefnd­ar­innar.“

Ráðu­neytið gaf þá skýr­ingu að ráð­herra hafi aflað lög­fræði­á­lita, sem bentu á laga­lega ann­marka í úrskurði kæru­nefnd­ar­innar. Úrskurð­ur­inn byði upp á laga­lega óvissu í tengslum við það ferli sem unnið sé eftir við skipan emb­ætt­is­manna. Þeirri laga­ó­vissu vilji Lilja eyða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár