Hvorki gert ráð fyrir endurgerð á húsnæði gamla spítalans né tækjakaupum fyrir nýja spítalann

Stjórn­endur Land­spítalans segja fjármála­áætlun benda til þess að ríkis­stjórnin vilji færa heilbrigðis­þjónustu til veitenda utan sjúkra­húsa. Fjármála­ráðherra telur einka­rekstur jákvæðan fyrir sjúklinga og heilbrigðis­ráðherra sagði allt tal um niður­skurð vera „fals­fréttir“.

Hvorki er gert ráð fyrir tækja­kaupum vegna nýs Land­spítala né nauðsynlegri endurgerð eldri húsa við Hringbraut í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar. Sú forgangs­röðun sem birtist í áætluninni bendir til þess að ríkis­stjórnin vilji kynda undir þeirri þróun að heilbrigðis­þjónusta færist frá sjúkra­húsum og til veitenda utan sjúkra­húsa, svo sem á einka­reknum lækna­stofum.

María Heim­is­dóttirfjár­mála­stjóri Land­spít­al­ans.

Þetta kemur fram í umsögn forstjóra og fjármála­stjóra Land­spítalans um áætlunina. Eins og Stundin greindi frá í gær þurfa sjúkrahús á Íslandi að skera niður í rekstri um tæpa 5,2 milljarða á næstu fimm árum til að skapa svigrúm til nýrra verkefna. María Heimis­dóttir, framkvæmda­stjóri fjármála­sviðs, fjallaði um þetta á ársfundi spítalans. Óttarr Proppé heilbrigðis­ráðherra hefur hins vegar afgreitt tal um niður­skurð í heilbrigðis­þjónustu sem „fals­fréttir“ (e. fake news). „Það eru hreinlega fals­fréttir að niður­skurður sé í heilbrigðis­málum vegna þess að það er verið að auka við í heilbrigðis­þjónustu og eins og við vitum er gert ráð fyrir því í fjármála­áætlun að það sé aukið með forgangs­röðun á velferðarmál eftir því sem líður á tímabilið,“ sagði ráðherra þegar rætt var um fjármála­stefnu ríkis­stjórnarinnar á Alþingi þann 6. apríl síðastliðinn.

„Það eru hreinlega fals­fréttir að
niður­skurður sé í heilbrigðis­málum“

Þegar Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, vakti athygli á gagnrýni Land­spítalans og ummælunum um 5,2 milljarða hagræðingu í rekstri sjúkra­húsa á Alþingi í dag svaraði Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra: „Það er nú einu sinni þannig að þó að einhver segi að meira sé minna þá verður það ekkert minna við það. Það er ennþá meira, og framlög aukast mjög mikið til heilbrigðis­mála og þau munu aukast líka til Land­spítalans.“

Vantar 10 milljarða á næsta ári

Umsögn Maríu og Páls Matthíassonar, forstjóra Land­spítalans, hefur að geyma ítarlega gagnrýni á fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar. Benda þau meðal annars á að strax á næsta ári vantar um 10 milljarða til rekstrar, nauðsynlegra tækja­kaupa og annars stofn­kostnaðar á Land­spítalanum. 

Þau furða sig sérstak­lega á áformum stjórn­valda um að auka fjár­veitingar til þjónustu utan sjúkra­húsa margfalt á við það sem bætt er við rekstrar­grundvöll sjúkra­húsa. Þetta gefi til kynna að ríkis­stjórnin vilji kynda undir þeirri þróun að þjónusta færist frá sjúkra­húsum og til veitenda utan sjúkra­húsa.  

Birgir Jak­obs­sonland­læknir

Aðeins fáeinir dagar eru síðan land­læknir sendi út frétta­tilkynningu þar sem hann sagði að túlkun heilbrigðis­ráðuneytisins á heilbrigðis­lögum opnaði á aukinn einka­rekstur og einka­væðingu í íslensku heilbrigðis­kerfi og vandséð væri hvernig heilbrigðis­yfirvöld gætu haft stjórn á því hvert opinber heilbrigðis­útgjöld rynnu. 

Í umsögn Páls og Maríu kemur fram sams konar gagnrýni á heilbrigðis­stefnu stjórn­valda. „Nýja frum­varpið boðar meira af því sama þrátt fyrir að kalla eftir skýrari skilgreiningum á þjónustu­framboði sem lykil­atriði í skynsamlegri forgangs­röðun. Samningur SÍ við sérgreina­lækna hefur verið nefndur sem skólabókar­dæmi um óskilgreind og ótakmörkuð kaup á þjónustu fyrir almannafé. Samt er sífellt bætt við fjár­framlög til þessa, jafnvel á fjár­aukalögum enda virðist lítil sem engin stjórn sé á þessum útgjöldum. Ef litið er til rekstrar á miðlægri stjórn­sýslu SÍ sést svipað mynstur - endur­tekinn halli og sívaxandi kostnaður við rekstur, m.a. 33% hækkun ríkis­framlaga bara milli áranna 2014 og 2015. Og enn á að bæta í,“ segir í umsögninni.

Telur einkarekstur í heilbrigðiskerfinu jákvæðan fyrir sjúklinga

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra sem lagði fram fjármála­áætlunina, er sjálfur fyrr­verandi stjórnar­formaður Sjúkra­trygginga Íslands. Hann var skipaður af Guðlaugi Þór Þórðar­syni, þáverandi heilbrigðis­ráðherra og núverandi utan­ríkis­ráðherra, þegar stofnunin var sett á laggirnar árið 2008.

Í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma á Alþingi fyrr í vikunni var Benedikt inntur eftir afstöðu sinni til tvöfalds heilbrigðis­kerfis. „Hugnast honum það? Telur hann það samræmast ábyrgri ráðstöfun opinbers fjár að ótakmarkað fjármagn geti runnið úr ríkis­sjóði í einka­geirann þar sem um er að ræða jafnvel fólk og aðila og fyrirtæki sem hagnast á heilsu­bresti?“ spurði Svandís Svavars­dóttir, þing­flokks­formaður Vinstri grænna. Benedikt svaraði á þá leið að Sjúkra­tryggingar Íslands hefðu borgað marg­víslega starfsemi einka­lækna, einka­rekinna lækna­stöðva, að hluta til á móti sjúklingum. „Ég veit ekki annað en mjög margir sjúklingar hafi fengið góðan bata þar. Þetta hefur stytt biðlista. Ég tel að það sé jákvætt fyrir sjúklinga.“ Þá sagði hann einnig að fara þyrfti vel með fjár­munina sem rynnu til heilbrigðis­mála „Ég held að við getum verið sammála um það að hér á landi hefur verið einka­rekstur í heilbrigðis­kerfi um langa hríð. Hann hefur að stórum hluta verið borgaður af opinberu fé. Ég held að það sé sjúklingum til góðs að hér séu fleiri aðilar sem geta læknað þá. Ég held það hafi stytt biðlista í kerfinu að hér eru nú nokkrar stöðvar sem geta gert bæklunar­aðgerðir og aðrar slíkar aðgerðir. Ég held að það sé sjúklingum til góðs. Ég held að við verðum alltaf að horfa á það þannig að við eigum að setja sjúklinginn í öndvegi.“

„Einkennileg forgangsröðun“

Páll Matth­í­as­sonfor­stjóri Land­spít­al­ans

Í umsögn Land­spítalans um ríkis­fjármála­áætlunina er fundið að áherslu sem lögð er á kaup á erlendri sjúkrahús­þjónustu. Einkennilegt sé að forgangs­raða verulegum fjármunum til þjónustu utan Íslands þegar unnt er að veita sömu þjónustu hérlendis fyrir mun minna fé:

„Undir erlenda sjúkrahús­þjónustu fellur annars vegar mjög sérhæfð þjónusta sem ekki er hægt að veita hérlendis og hins vegar þjónusta sem sjúklingar hafa rétt á að sækja erlendis vegna óhóflegs biðtíma hér eða á grund­velli ESB tilskipunar um rétt sjúklinga til að leita sér þjónustu utan heima­lands. Það er einkennilegt að sjá svo miklu fé ráðstafað til þessa verkefnis í ljósi þess að alger óvissa ríkir um eftir­spurn eftir þessari þjónustu, og þess að biðlista­átak stjórn­valda mun væntanlega draga úr þeirri eftir­spurn. Þetta fé væri betur nýtt í uppbyggingu þjónustu innanlands sem enn frekar myndi draga úr þessari meintu eftir­spurn. Þetta er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að fyrir liggur að sjúkrahús­þjónusta á LSH er miklum mun hagkvæmari en gerist t.d. á sænskum samanburðar­sjúkrahúsum. Sjúklingar sem kjósa að sækja þjónustu erlendis á grund­velli ESB tilskipunarinnar fá ekki allan kostnað við þjónustuna greiddan, heldur einungis sem samsvarar því sem þjónustan kostar í þeirra heima­landi. Þannig fengi sjúklingur sem færi til Svíþjóðar til meðferðar aðeins greiddan um helming raun­kostnaðar við meðferðina þar (ef marka má greiningu McKinsey) og þyrfti sjálfur að standa straum af hinum helmingnum. Það er því bjarnar­greiði við neytendur að forgangs­raða verulegum fjármunum til þjónustu utan Íslands þegar unnt er að veita sömu þjónustu hérlendis fyrir mun minna fé. Þetta verður að teljast mjög einkennileg forgangs­röðun þegar markmið stjórn­valda hlýtur að vera að fá sem mesta og besta þjónustu á sem hagkvæmustu verði.“

Í umsögninni eru farið yfir ýmis atriði sem ekki er gert ráð fyrir í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar. Þennan kafla má lesa hér að neðan, en umsögnina í heild má nálgast á vef Alþingis. 

Í fyrsta lagi er ekki gert ráð fyrir neinum kostnaði við endurgerð eldra húsnæðis LSH samhliða byggingu NLSH. Eins og kunnugt er voru byggingar­áform um NLSH endur­skoðuð rækilega í kjölfar banka­hrunsins og verulega dregið úr þeirri framkvæmd sem áður hafði verið fyrir­huguð. Á móti var gert ráð fyrir að eldra húsnæði LSH yrði nýtt að verulegu leyti með hinum nýju byggingum. Endurgerð eldri bygginga er því forsenda þess að rekstur LSH rúmist innan NLSH og skili þeim rekstrar­ábata sem erlendir sérfræðingar svo og Hagfræði­stofnun HÍ hafa reiknað með. Í öðru lagi virðist ekki vera gert ráð fyrir neinum kostnaði við kaup á tækjum og búnaði vegna NLSH en sá kostnaður mun að hluta til falla til innan tíma­bilsins  sem tillagan tekur til. Í tillög­unni er mikil áhersla lögð á að hraða uppbyggingu við Hringbraut en ef ekki er hugað að öðrum þáttum, svo sem tækjum og endurgerð eldra húsnæðis, er hætt við að niður­staða verk­efnisins og notagildi þess verði með öðrum hætti en lagt var upp með. Land­spítala hefur ekki tekist að finna í tillög­unni nokkurt fjármagn til rekstrar sjúklinga­hótels né heldur til kaupa á búnaði fyrir hótelið. Samkvæmt áætlun á sjúklinga­hótelið að hefja rekstur haustið 2017. 

Hvergi er minnst á kostnað vegna lögbundins hlutverks LSH á sviði vísinda og mennta þó svo í tillög­unni sé sérstak­lega rætt um mikilvægi þessara þátta fyrir samfélagið. Sama gildir um fjölmörg önnur atriði sem LSH lagði fram í mati sínu á fjárþörf næstu 5 ára sem stjórn­völd kölluðu eftir í aðdrag­anda þessarar áætlana­gerðar - ekkert fé virðist til þeirra ætlað. 

Í fjár­veitingum til SÍ virðist gert ráð fyrir nokkrum kostnaði vegna innleiðingar nýs greiðslu­þátttöku­kerfis sem taka á gildi 1. maí nk. Fyrir liggur að breytingin mun leiða til lækkunar sértekna LSH. E f Land­spítala fær þetta ekki leiðrétt að fullu mun leiða til hagræðingar­kröfu á spítalann. 

Fjár­heimildir til S-lyfja vekja einnig áhyggjur ekki síst í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu sem nú er uppi í þeim mála­flokki. Frá því skipulagi umsýslu S lyfja var breytt árið 2015 hefur kostnaður vegna þeirra aukist hratt, einkum vegna notkunar eldri lyfja og lítið svigrúm hefur verið til innleiðingar nýrra lyfja. Land­spítali hafði varað sterklega við þessari breytingu m.a. vegna aukins kostnaðar við dreifingu í almennum apótekum. Nú hafa þær spár því miður gengið eftir og eru verulegur hluti þess fjárhags­vanda sem blasir við. 

Land­spítali fagnar þeim vilja sem fram kemur í tillög­unni að sérstak­lega skuli nýta upplýsinga­tækni og opinber innkaup til að ná fram hagræðingu. Það er því ákaflega mikil vonbrigði að sjá að til upplýsinga­tækni­verkefna (falla undir lýðheilsu og stjórn­sýslu velferðar­mála í tillög­unni) í heilbrigðis­þjónustu eru aðeins ætlaðar að hámarki 355 milljónir á fimm ára tíma­bilinu sem samsvarar um 70 milljónum á ári að jafnaði. Þetta er ekki í neinu samræmi við þörfina varðandi rafræna sjúkra­skrá og þær áherslur sem lagðar eru í tillög­unni á nýtingu upplýsinga­tækni til að ná fram hagræðingu og aukinni fram­leiðni. Ekki virðist gert ráð fyrir neinum kostnaðar­auka við að þróa opinber innkaup og byggja upp nauðsyn­lega innviði á því sviði. Því er hæpið að þau skili þeirri hagræðingu sem vænst er. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár