Evrópusambandið í tollastríðsstellingum

Þjóðar­leiðtogar í Evrópu hafa hvatt til Bandarísk stjórn­völd til að fara varlega í því að innleiða tolla og skatta á vörur sem fluttar eru til Banda­ríkjanna.

Evrópu­sambandið er tilbúið í tolla­stríð, ef það er það sem þarf, að því er fram kemur í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC.

Cecilia Malmström, sem fer með málefni utan­ríkis­viðskipta hjá Evrópu­sambandinu, fundaði með Robert Lightizer, fulltrúa bandaríska viðskipta­ráðuneytisins, og viðskipta­ráðherra Japans, Hioshige Seko.

Samkvæmt umfjöllun BBC þá á Seko að hafa hvatt til þess að varlega yrði farið í að brjóta upp grunninn í viðskipta­sambandi þessara risa­vöxnum markaðs­svæða, og þá hafi þau sjónarmið einnig komið fram að Evrópu­sambandið yrði tilbúið að grípa til aðgerða sem það þyrfti, til að vernda mikilvæga hagsmuni Evrópu­sambands­ríkja.

Eins og kunnugt er, þá hefur Donald Trump Bandaríkja­forseti þegar ákveðið að setja 25 prósent toll á innflutt stál og 10 prósent toll á innflutt ál. Kanada og Mexíkó munu fá undanþágu frá þessum tollum, með lengri aðlögunar­tíma. Er markmiðið að örva bandarískt efnahagslíf.

Gary Cohn, efnahags­ráðgjafi Trumps, sagði af sér vegna þessa máls, þar sem hann var í grundvallar­atriðum ósammála Trump.

Fulltrúar hagsmuna­samtaka bíla­iðnaðarins í Banda­ríkjunum og hergagna­fram­leiðenda líka, hafa mótmælt fyrir­huguðum hækknum á þessar mikilvægu vörur. Telja þeir að samkeppnis­hæfni bandarísks efnahags­lífs geti skaðast með þessum breytingum, og að alþjóða­væddur heimur viðskipta muni gera það sömuleiðis, til lengdar litið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár