Vonast til að þessi breyting á ríkisstjórninni lægi óánægjuraddirnar

Bjarni Bene­dikts­son vill halda rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu áfram. Segir Sigmund Davíð hafa gefið sér tvo kosti; stuðn­ing eða þing­rof.

Vonast til að þessi breyting á ríkisstjórninni lægi óánægjuraddirnar

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill halda rík­is­stjórn­ar­sam­starfi við Fram­sóknar áfram. Þetta til­kynnti hann á blaða­manna­fundi á Bessa­stöðum í dag. Hann muni ræða áfram­hald­andi sam­starf við Sigurð Inga Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, á næstu dögum. Meðal þess sem þeir muni ræða er hvenær á end­anum verði kosið, það er hvort kjör­tíma­bilið verði látið renna sitt skeið eða ekki. Hann seg­ist ekki gera neina kröfu um að verða for­sæt­is­ráð­herra. 

Segir Sigmundur hafa boðið afarkosti

Bjarni sagði for­seta Íslands hafa gert rétt í því að hafna beiðni Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um þing­rof enda hafi málið verið algjör­lega órætt milli rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Hann hafi hins vegar til­kynnt Sigmundi að það yrði ekki unað við óbreytt ástand. Aðspurður hvort útspil Sig­mundar Davíðs í morgun hafi komið honum á óvart sagði Bjarni: „Sig­mundur Davíð var skýr á því við mig að hann teldi bara tvo kosti í stöð­unni. Annað hvort óskor­aðan stuðn­ing við rík­is­stjórn­ina undir hans for­ystu eða þing­rof. Ég tjáði honum þá skoðun mína að ég teldi fleiri kosti í boði og það má segja að einn af þeim kostum sé mögu­lega í fæð­ingu núna.“

Hann sagð­ist hins vegar ekki hræð­ast kosn­ingar. 

Bjarni segir að sam­talið við Fram­sókn­ar­flokk­inn gæti tekið nokkra daga, en að það ætti ekki að taka langan tíma að leiða fram nið­ur­stöðu. 

Vonast til að komast til móts við óánægju

Aðspurður hvort hann telji að þetta sé nóg til að lægja óánægju­radd­irnar segir Bjarni: „Ég von­ast til að þessi breyt­ing á rík­is­stjórn­inni komi til móts við þá óánægju sem hefur orðið.“

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sem mælist með lang­mestan stuðn­ing hjá almenn­ingi í skoð­ana­könn­unum, segir hins vegar að eng­inn á mót­mæl­unum hafi farið fram á að Sigurður Ingi Jóhanns­son yrði for­sæt­is­ráð­herra, eins og nú virð­ist standa til.  

Sigurður Ingi hefur verið gagn­rýndur fyrir margar umdeildar ákvarð­anir á ferli sínum sem umhverf­is­ráð­herra og síðar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Hann studdi Sigmund Davíð ein­dregið og gagn­rýndi þá harð­lega sem leyfðu sér að setja út á leynda hags­muni Sig­mundar í gegnum eig­in­konu hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár