Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

Telur virkjunaráform á miðhálendinu samræmast vel stefnu ríkisstjórnarinnar um verndun miðhálendisins

„Mig lang­ar sér­stak­lega að fagna því að sú til­laga sem lögð er fram hérna er í góðu sam­ræmi við þá stefnu þess­ar­ar rík­is­stjórn­ar að vinna að vernd mið­há­lend­is­ins,“ sagði Nichole Leigh Mosty, þing­kona Bjartr­ar fram­tíð­ar, í um­ræð­um um ramm­a­áætl­un.

Telur virkjunaráform á miðhálendinu samræmast vel stefnu ríkisstjórnarinnar um verndun miðhálendisins

Nichole Leigh Mosty, þingkona Bjartrar framtíðar, telur að þingsályktunartillaga Bjartar Ólafsdóttur umhverfisráðherra um rammaáætlun samræmist vel markmiðum ríkisstjórnarinnar um vernd miðhálendisins. Á meðal þess sem lagt er til í rammaáætluninni er að Skrokkalda á Suðurlandi færist úr biðflokki yfir í orkunýtingarflokk svo unnt verði að ráðast þar í virkjanaframkvæmdir á næstu árum. Skrokkalda er á miðhálendinu og fyrirhuguðum virkjanaframkvæmdum á svæðinu munu fylgja 1 kílómetra skurður vestan við Sprengisandsleið, hlaðhús, spennir og jarðstrengur. 

„Mig langar sérstaklega að fagna því að sú tillaga sem lögð er fram hérna er í góðu samræmi við þá stefnu þessarar ríkisstjórnar að vinna að vernd miðhálendisins. Á miðhálendi Íslands eru einar stærstu óbyggðir Evrópu,“ sagði Nichole þegar rætt var um rammaáætlunina á Alþingi í síðustu viku.

„Verndar- og verðgildi óbyggða fer stöðugt vaxandi þar sem óbyggðum svæðum fer hratt fækkandi á heimsvísu. Hér er því um fágæta og takmarkaða auðlind að ræða.“ Fagnaði hún því sérstaklega að þrjú vatnasvið á hálendinu, Héraðsvötn, Skjálfandafljót og Skaftá, yrðu sett í verndarflokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an þeir dæmdu Arn­fríð­ar­mál

Arn­fríð­ur Ein­ars­dótt­ir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveim­ur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku af­stöðu um hæfi henn­ar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og mál­ið var til með­ferð­ar. Hinir þrír sem vald­ir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an Hæstirétt­ur tók fyr­ir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Siðferðisspurningar vakna vegna uppbyggingar Andra og Birgis
2
Fréttir

Sið­ferð­is­spurn­ing­ar vakna vegna upp­bygg­ing­ar Andra og Birg­is

Fjár­fest­ar sem eru sak­að­ir um að hafa milli­göngu um iðn­að­ar­njósn­ir fyr­ir millj­arða­mær­ing­inn Björgólf Thor Björgólfs­son vilja reisa þétt­býlt hverfi í um tveggja kíló­metra fjar­lægð frá vatns­vernd­ar­svæði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Svo virð­ist sem eng­in krafa sé uppi um sið­ferði fjár­festa þeg­ar kem­ur að Kópa­vogs­bæ.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Siðferðisspurningar vakna vegna uppbyggingar Andra og Birgis
5
Fréttir

Sið­ferð­is­spurn­ing­ar vakna vegna upp­bygg­ing­ar Andra og Birg­is

Fjár­fest­ar sem eru sak­að­ir um að hafa milli­göngu um iðn­að­ar­njósn­ir fyr­ir millj­arða­mær­ing­inn Björgólf Thor Björgólfs­son vilja reisa þétt­býlt hverfi í um tveggja kíló­metra fjar­lægð frá vatns­vernd­ar­svæði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Svo virð­ist sem eng­in krafa sé uppi um sið­ferði fjár­festa þeg­ar kem­ur að Kópa­vogs­bæ.

Mest lesið í mánuðinum

Margeir fær milljónir í bætur – Hafði áreitt samstarfskonu hjá lögreglunni
6
Fréttir

Mar­geir fær millj­ón­ir í bæt­ur – Hafði áreitt sam­starfs­konu hjá lög­regl­unni

Ís­lenska rík­ið þarf að greiða Mar­geiri Sveins­syni að­stoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóni miska­bæt­ur fyr­ir að hafa færð­ur til í starfi eft­ir að sam­starfs­kona hans sak­aði hann um of­beldi og áreitni. Lög­reglu­stjóri til­kynnti hér­aðssak­sókn­ara um hugs­an­lega refsi­verða hátt­semi Mar­geirs en mál­inu var vís­að frá.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár