Verðbólga á evrusvæðinu lækkar skarpt – fer niður í 1,9 prósent

Verð­bólga í evru­svæð­inu lækk­aði í 1,9 pró­sent í maí og fór undir mark­mið Seðla­bank­ans. Á Íslandi mælist hún 3,8 pró­sent, einkum vegna hærra mat­ar­verðs og reikn­aðrar húsa­leigu.

Verðbólga á evrusvæðinu lækkar skarpt – fer niður í 1,9 prósent
Evru­svæðið Evru­svæðið er sam­heiti yfir þau tutt­ugu lönd innan Evr­ópu­sam­bands­ins sem nota sam­eig­in­lega gjald­mið­il­inn evru. Þessi ríki hafa sam­eig­in­lega pen­inga­stefnu sem er stýrt af Seðla­banka Evrópu. Mynd: Shutterstock

V

erð­bólga á evru­svæð­inu lækk­aði í 1,9 pró­sent í maí og hefur ekki verið jafn lág síðan í sept­em­ber árið 2024, sam­kvæmt opin­berum gögnum sem birt voru á þriðju­dag. Lækkunin er að mestu rakin til hæg­ari verð­hækk­ana í þjón­ustu­geir­anum.

Samkvæmt tölum frá hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins hjaðn­aði hækkun neyslu­verðs í ríkjum evru­svæð­is­ins umfram spár grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins FactSet. Í apríl mæld­ist verð­bólgan 2,2 pró­sent en fór nú aftur niður fyrir tveggja pró­senta verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Evrópu.

Á sama tíma mælist verð­bólga á Íslandi 3,8 pró­sent, sem er enn tölu­vert frá mark­miði Seðla­banka Íslands. Ver­bólgu­mark­mið bank­ans er 2,5 pró­sent.

tærstu áhrifa­þættir verð­bólgu á Íslandi er verð á mat og drykkj­ar­vörum, sem hækk­aði í maí 0,69 pró­sent og kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði, svokölluð reiknuð húsa­leiga, sem hækk­aði hækk­aði um 0,73 pró­sent.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár