Þegar Evrópa varð til

Á næstu miss­erum munu Íslend­ingar greiða atkvæði um hvort þeir vilja ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Til að geta tekið upp­lýsta ákvörðun er nauð­syn­legt að þekkja sögu Evrópu. Hér verður sú saga rakin og byrjað á byrj­un­inni!

Þegar Evrópa varð til
Þekkingu á for­sögu Jarðar, þar á meðal heims­álf­anna, hefur fleygt mjög fram síð­ustu árin og ára­tug­ina. Margt er þó enn á huldu og hvorki frá­sögn text­ans né kortið ber að taka sem heilagan sann­leik. Mynd: Kort / Davíð Þór

Fyrir tæpum tveimur millj­örðum ára runnu þrjár stórar eyjar saman við mið­baug um það bil 2.000 kíló­metra norð­austur af þeim stað þar sem Ástralía lúrir nú. Köllum nýju, sam­ein­uðu eyj­una Balticu, því það gera vís­inda­menn.

Ef við skiptum allri hinni 4,5 millj­arða ára sögu Jarðar niður í eitt ár, þá gerð­ist þetta þann 23. júlí, um hálf­átta­leytið að morgni.

Jörðin var þá harla ólík því sem við þekkjum nú.

Hún sner­ist til dæmis mun hraðar um möndul sinn svo sól­ar­hring­ur­inn var aðeins 18–20 tíma langur. Það þýddi að nærri 450 dagar voru í árinu.

Tunglið var mun nær en núna; það var um 25 pró­sent stærra á himn­inum en við eigum að venj­ast. Munur á flóði og fjöru hefur verið 2–3 sinnum meiri en nú og víða munað mörgum metrum.

Hitinn á yfir­borð­inu var 30–40 gráður á Celsíus. Ástæðan fyrir hit­anum lá í miklu …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár