Hvað ef ... þriðja heimsstyrjöldin lítur svona út?

Valur Gunn­ars­son sagn­fræð­ingur skrifar um þriðju heims­styrj­öld­ina og yfir­töku Trump­ista á Íslandi. Valur er höf­undur bók­ar­innar Hvað ef? sem fjallar um hlið­stæða mann­kyns­sögu. Hér fjallar hann um hvernig fram­tíðin gæti litið út. Eft­ir­far­andi grein ber að lesa sem bók­mennta­verk en ekki beina for­spá.

Hvað ef ... þriðja heimsstyrjöldin lítur svona út?

Hver hefði búist við því að her­menn­irnir kæmu hingað aftur? Ég man þegar ég lék mér í Öskju­hlíð­inni sem barn, í gömlum virkjum frá síð­ustu heims­styrj­öld, með indíána­boga og pílur í hönd sem kannski tón­uðu illa við stein­steypuna, en betri leik­völlur var ekki til hér í borg, ekki einu sinni á bygg­ing­ar­svæð­unum. „Howitzer Hill“ köll­uðu þeir þetta þegar þeir voru hérna síð­ast og settu upp fall­byssur sem voru reiðu­búnar til að taka á móti þýsku inn­rás­ar­liði sem aldrei kom. Og nú von­uðu margir að Þjóð­verjar kæmu okkur til bjargar.

Í þess­ari heims­styrj­öld gera allir öfugt við það sem þeir gerðu síð­ast. Þýska­land og Japan eru góðu gæj­arnir. Banda­ríkin og Rússland þeir vondu. Senni­lega munu Frakkar berj­ast til síð­asta manns. Kín­verjar breiða úr sér og Bretar hafa strax gef­ist upp. Aðeins Ítalir eru trúir sjálfum sér og styðja þann sem virð­ist vera …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    'Make Orwell Fiction Again' ... sem þýðir að Orwell var einn besti spámaður framtíðarinnar. Ég held að það sem margir sakna, þar á meðal í þessari grein, er að til að berjast þarftu mat, vatn, skjól, heilsu. Við erum meira á leiðinni til að klárast einfaldlega.
    0
  • AÓ
    Anna Ólafsdóttir skrifaði
    Þetta er hárbeitt saga hjá Val Gunnarssyni, fyndin líka, en óþægileg vegna þess að hún getur svo vel raungerst.
    3
  • Valborg E Baldvinsdóttir skrifaði
    Mig langar til að þakka fyrir áhugavert blað, sem alltaf er fróðlegt að lesa.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár