Segir Útlendingastofnun ætla að senda Oscar úr landi eftir helgi

Íslenskur fóst­ur­faðir Oscars Andres Florez Bocanegra, 17 ára drengs frá Kólumbíu sem hefur verið synjað um alþjóð­lega vernd á Íslandi, segir að Útlend­inga­stofnun ætli sér að koma Oscari úr landi eftir helgi.

Segir Útlendingastofnun ætla að senda Oscar úr landi eftir helgi
Fjöldi fólks kom saman á Aust­ur­velli á mánu­dag til að mót­mæla brott­vísun Oscars. Séra Bjarni Karlsson er einn þeirra sem skrif­uðu undir kröfu um að Oscari verði veitt dval­ar­leyfi. Mynd: Golli

„Oscar er með stuðn­ing frá meiri­hluta þjóð­ar­innar og fjöld­anum öllum af sam­tökum,“ skrifar Svavar Jóhanns­son, fóst­ur­faðir Oscars Andres Florez Bocanegra, 17 ára drengs frá Kólumbíu, sem hefur verið synjað um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Svavar nefnir Presta­fé­lag Íslands og Félag fóst­ur­for­eldra sem dæmi um þau sam­tök sem styðja að Oscar fái að búa á Íslandi. 

„Útlend­inga­stofnun gefur hins vegar ekk­ert fyrir það og ætlar sér að koma honum úr landi eftir helgi, hvað sem tautar og raular! Þetta er frá­bæra Ísland í dag!“ skrifar hann á Facebooksíðu sína nú síð­degis.

Svavar hvetur einnig fólk til að skrifa nafn sitt á nýjan und­ir­skrift­ar­lista sem skorað er á rík­is­stjórn Íslands og Alþingi að Oscar fái var­an­legt leyfi til búsetu á Íslandi og verði ekki vísað úr landi.  Sonja Magn­ús­dóttir, fóst­ur­móðir Oscars og eig­in­kona Svavars, er ábyrgð­ar­maður list­ans. 

Fjölmenn mótmæli

Fjöldi mót­mæl­enda kom sam­an á Aust­ur­velli á mánu­dag til þess að mót­mæla úr­skurð­i kæru­nefndar útlend­inga­mála. Skila­boð­in voru skýr: „Oscar á heima hér!"

Einn þeirra sem mættu á mót­mælin sagði þá í sam­tali við Heim­ild­ina: „Mér finnst þetta mjög órétt­látt að það sé verið að senda hann úr landi. Þetta er bara ógeðs­legt í raun og veru að horfa upp á þetta og maður fær illt í hjartað að sjá þetta.“

„Mér finnst þetta mjög órétt­látt að það sé verið að senda hann úr landi. Þetta er bara ógeðs­legt í raun og veru að horfa upp á þetta og maður fær illt í hjartað að sjá þetta,” sagði annar. 

Lögmaður Oscars, Helga Vala Helga­dóttir, var við­stödd mót­mælin og á meðal ræðu­manna. Spurð út í nið­ur­stöðu úrskurð­ar­ins sagði Helga Vala: „Mér finnst þetta bara efn­is­lega rangt. Ég get ekki séð af hverju er ekki hægt að skjóta skjóls­húsi yfir hann, það liggur alveg fyrir að hans félags­legu aðstæður í heima­land­inu eru gríð­ar­lega flóknar. Það liggur líka fyrir að barna­vernd­ar­yf­ir­völd á Íslandi brutu á rétt­indum hans á sínum tíma þegar hann var hérna.” En þá vísar Helga Vala til þess þegar Oscar var sendur til Bógóta í októ­ber síð­ast­liðin með föður sínum og var í kjöl­farið skil­inn eftir á flug­vell­inum þar. 

Endaði á götunni í Bógóta

Útlend­inga­stofnun synj­aði Oscari, föður hans og systrum um alþjóð­lega vernd og dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum og var þeim jafn­framt brott­vísað frá land­inu 15. októ­ber í fyrra. Oscar end­aði í kjöl­farið á göt­unni í Bógóta en Svavar, fóst­ur­faðir hans, sótti hann til Kólumbíu um miðjan nóv­em­ber. 

Oscar lagði fram end­ur­tekna umsókn um alþjóð­lega vernd 10. febr­úar síð­ast­liðin eftir að Útlend­inga­stofnun hafði synjað honum, föður hans og systrum í októ­ber í fyrra. Nú lagði hann fram umsókn á þeim grund­velli að hann væri fylgd­ar­laust barn en Útlend­inga­stofnun vís­aði umsókn­inni frá þar sem ástæðan þótti ekki auka líkur á því að fall­ist yrði á fyrri umsókn hans skv. 1. mgr. 35. gr. laga um útlend­inga. 

Í apríl kærði Oscar ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar til kæru­nefndar og gerði grein fyrir því að hann hefði búið við lík­am­legt og and­legt ofbeldi af hálfu föður síns og ekki notið verndar móður sinnar en hún og faðir hans eru skilin. Oscar hafi þurft að flýja frá föður sínum og fékk skjól hjá Svavari Jóhanns­syni og Sonju Magn­ús­dóttur, sem berj­ast með honum fyrir því að hann fái að búa á Íslandi.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Xenophobia everywhere is a strong force!
    0
  • MLS
    Magnús Líndal Sigurgeirsson skrifaði
    Barnaverndar yfirvöld eru enn og aftur til skammar, ennþá lifir vonin um að ríkisstjórnin sem ætlar að láta verkin tala geri það.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hvað er eiginlega að þessum stjórnvöldum hér?
    Mannvonskan virðist sitja í fyrirrúmi !
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár