Meirihluti Íslendinga undir meðallaunum

Regluleg laun í fullu starfi voru að með­al­tali 845 þús­und krónur á mán­uði árið 2024 en nærri tveir af hverjum þremur launa­mönnum eru með lægri laun en það. Hæstu launin eru nærri fimm­falt hærri en þau lægstu, og kyn­bund­inn munur enn aug­ljós.

Meirihluti Íslendinga undir meðallaunum

Ný gögn Hagstofu Íslands um laun árs­ins 2024 sýna að reglu­leg mán­að­ar­laun, þegar horft er til allra launa­manna óháð starfs­hlut­falli, voru að með­al­tali 758 þús­und krónur. Fyrir þá sem vinna í fullu starfi hækkar með­al­talið í 845 þús­und, en mið­gildi launa – sem segir meira um raun­veru­lega dreif­ingu – er 753 þús­und krónur.

Það þýðir að 65 pró­sent fólks í fullu starfi eru með reglu­leg laun undir með­al­tali. Skýr­ing­una má rekja til þess að hæstu launin teygja sig langt upp og draga með­al­talið upp en lægstu launin dreifast á þrengra bili.

Launamunur á kynjum

Heild­ar­laun karla í fullu starfi voru 984 þús­und á mán­uði að með­al­tali. Þeir unnu að jafn­aði 177,9 greiddar stundir á mán­uði, sam­an­borið við 172 hjá konum. Heild­ar­laun kvenna voru lægri; að með­al­tali 826 þús­und. Munurinn á greiddum stundum skýrir hluta launa­mun­ar­ins, en Hag­stofan bendir einnig á kyn­skiptan vinnu­markað: aðeins 14 pró­sent karla starfa hjá hinu opin­bera, en 38 pró­sent kvenna. Opinber störf eru yfir­leitt lægra launuð en störf á almennum mark­aði, að því er segir í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar. 

-158
þús­und
munur heild­ar­launa karla og kvenna í fullu starfi.

For­stjórar og aðal­fram­kvæmda­stjórar voru með hæstu með­al­launin árið 2024 – að jafn­aði um 2,4 millj­ónir króna á mán­uði. Einnig voru fleiri sér­fræði­störf, svo sem læknar, dóm­arar og yfir­menn tölvu­deilda, með mán­að­ar­laun yfir 1,7 millj­ónum.

Á hinn bóg­inn voru lægstu launin skráð í störfum sem lúta að barna­gæslu, 605 þús­und krónur, hand­þvotti og pressun, 578 þús­und, og skjala­vörslu eða póst­flokkun, 573 þús­und. Með öðrum orðum: for­stjóri fær að jafn­aði meira en fjór­falt hærri laun en starfs­maður í barna­gæslu.

Mikil launadreifing innan stétta

Þrátt fyrir til­tölu­lega skýra stétta­skipt­ingu í með­al­launum sýna gögnin að dreif­ing launa er víða innan stétta. Sér­fræð­ingar og iðn­að­ar­fólk eru með fjöl­breytt­ustu dreif­ing­una – sumir með undir 750 þús­und á mán­uði, aðrir með rúm­lega milljón.

Þjónustu- og umönn­un­ar­stéttin stendur þó neð­ar­lega: nærri 62 pró­sent starfs­fólks í þessum hópi fær greidd heild­ar­laun undir 750 þús­und krónum á mán­uði. Hjá skrif­stofu­fólki voru um 67 pró­sent með laun á bil­inu 550 til 850 þús­und.

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár