Vill ekki að fólk lesi ritgerðina sína: „Ég ætla ekki að láta hana frá mér“

Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, skrif­aði meist­ara­rit­gerð um Rík­is­út­varpið undir hand­leiðslu Brynjars Níels­sonar og læsti henni til árs­ins 2045. Stundin komst yfir rit­gerð­ina.

Vill ekki að fólk lesi ritgerðina sína: „Ég ætla ekki að láta hana frá mér“

Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist ekki vilja að masters­rit­gerð sín í lög­fræði sé öllum aðgengi­leg.

Titill verks­ins er: „Rík­is­út­varpið  – þróun þess og lagaum­gjörð. Nauð­syn­legur fjöl­mið­ill í almanna­þágu eða tíma­skekkja?“ og skrif­aði hann rit­gerð­ina með­fram þing­störfum.

Leið­bein­andi Karls var Brynjar Níelsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og kollegi hans á Alþingi. 

Vill hafa hana læsta

Stundin hafði sam­band við Karl Garð­ars­son á mið­viku­dag og óskaði eftir því að fá að lesa rit­gerð­ina. Karl bað um umhugs­un­ar­frest. Þegar blaða­maður sló aftur á þráð­inn til Karls og spurði hvort hann hefði gert upp hug sinn áttu eft­ir­far­andi sam­skipti sér stað:

Karl: „Ég ætla ekki að láta hana frá mér. Þá verður þetta að ein­hverju póli­tísku bit­beini sem ég nenni ekki. Ég þyrfti þá líka að opna hana fyrir öllum sem ég vil ekki gera, svo ég ætla bara að hafa þetta eins og þetta er.“

Blaða­maður: „En ég skil ekki alveg, nú ert þú þing­maður og þú ert að skrifa um rík­is­rek­inn fjöl­miðil. Finnst þér ekki rétt að almenn­ingur fái að lesa þetta?“

Karl: „Nei ekk­ert frekar en aðrar rit­gerðir sem eru læstar, og það er mik­ill meiri­hluti þeirra læstur.“

Blaða­maður: „En regl­urnar hjá HR virð­ast þó gera ráð fyrir að rit­gerðir séu opnar, nema þegar það eru trún­að­ar­upp­lýs­ingar í þeim eða ein­hverjar sér­stakar ástæður.“

Karl: „Ég hef nú ekki heyrt það. Allavega er engin ástæða til þess að vera að birta þetta sér­stak­lega.“

„Ég þyrfti þá líka að opna hana fyrir
öllum sem ég vil ekki gera“

Læst til 2045

Samkvæmt reglum um skil á loka­rit­gerðum og loka­verk­efnum við Háskól­ann í Reykja­vík skulu loka­verk­efni „almennt vera aðgengi­leg þeim sem áhuga hafa á að kynna sér efni þeirra.“ Í regl­unum segir einnig: „Höfundur loka­rit­gerðar/verk­efnis hefur þó rétt til að loka fyrir aðgang að því á bóka­safni og á Skemm­unni, svo sem ef það hefur að geyma trún­að­ar­upp­lýs­ingar.“ Mikill fjöldi nem­enda nýtir sér þessa heim­ild.

Fram kemur að ef höf­undur láti loka fyrir aðgang að loka­verk­efni sínu skuli hann til­greina við skil þess á bóka­safn og í Skemmuna hvenær opna skuli fyrir aðgang að því. Karl ákvað að læsa rit­gerð sinni til 15. maí árið 2045. Þegar rit­gerðin verður aðgengi­leg á net­inu verða meira en 84 ár liðin frá fæð­ingu Karls Garð­ars­sonar.

Karl hefur ekki viljað gefa upp hvaða ein­kunn hann fékk fyrir rit­gerð­ina. „Við unnum að þessu á útmán­uðum og Karl hafði nátt­úr­lega óvenju góðan aðgang að leið­bein­and­anum. Við vinnum á sama stað,“ var haft eftir Brynjari Níels­syni, leið­bein­anda Karls á Vísi.is í síð­ustu viku. 

Stundin hafði sam­band við Háskól­ann í Reykja­vík og spurði hvort það tíðk­að­ist að nem­andi og leið­bein­andi væru vinnu­fé­lagar utan háskóla. Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem fyrst feng­ust frá laga­deild HR eru slík til­vik skoðuð og metin sér­stak­lega, hvert fyrir sig. 

For­stöðu­maður mark­aðs- og sam­skipta­sviðs HR segir þó í tölvu­pósti til Stund­ar­innar: „Ég vísa í regl­urnar þar sem sem m.a. kemur fram að sé leið­bein­andi ekki starfs­maður háskól­ans sé skip­aður próf­dóm­ari. Það eru ekki reglur um að nem­andi og leið­bein­andi megi ekki vinna á sama vinnu­stað.“ Samkvæmt verk­lags­reglum HR um ritun ML-rit­gerða gefur bæði próf­dóm­ari og leibein­andi nem­and­anum ein­kunn og vegur ein­kunna­gjöfin jafnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Háskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir tilboð ráðherra hafa gert erfiða fjárhagsstöðu skólans verri
FréttirHáskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir til­boð ráð­herra hafa gert erf­iða fjár­hags­stöðu skól­ans verri

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir að til­boð háskóla­ráð­herra til sjálf­stætt starf­andi háskóla vera umfangs­mikla stefnu­breyt­ingu í fjár­mögnun háskóla­kerf­is­ins. Ekkert sam­ráð hafi verið haft við stjórn­endur skól­ans en ljóst þykir að breyt­ingin muni að óbreyttu hafa nei­kvæð áhrif á fjár­hags­stöðu skól­ans sem sé nú þegar erfið. HÍ sé far­inn að hug­leiða að leggja niður náms­leiðir.
Viðmiðum alþjóðastofnana ekki fylgt í samningi háskólans og Útlendingastofnunar um aldursgreiningar
Fréttir

Viðmiðum alþjóða­stofn­ana ekki fylgt í samn­ingi háskól­ans og Útlend­inga­stofn­unar um ald­urs­grein­ingar

Háskóli Íslands hyggst festa í sessi umdeildar lík­ams­rann­sóknir á hæl­is­leit­endum sem stand­ast ekki kröfur Evr­ópu­ráðs­ins, Barna­rétt­ar­nefndar SÞ og UNICEF um þver­fag­legt mat á aldri og þroska. Tann­læknar munu fá 100 þús­und krónur fyrir hvern hæl­is­leit­anda sem þeir ald­urs­greina sam­kvæmt drögum að verk­samn­ingi sem Stundin hefur undir höndum.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár