„Fólk er að bjóða lækningar fyrir ólæknandi sjúkdóma“

Guðjón Sigurðarson fór með falda myndavél á fund manns sem reyndi að selja honum jónað vatn. Lögmaður mannsins krefst lögbanns á umfjöllun Kast­ljóssins. IMMI hvetur sýslumann til að hafna kröfunni.

Vill fá lögbann
Vill fá lög­bann Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður manns sem fjalla á um í Kast­ljósi í kvöld, hefur til­kynnt rit­stjórn frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins að hún ætli að fara fram á lög­bann á þátt­inn. Mynd: Kristinn Magnússon

Helga Vala Helga­dóttir, lögmaður manns sem fjalla á um í Kastljósi í kvöld, hefur tilkynnt ritstjórn frétta­skýringa­þáttarins að hún ætli að fara fram á lögbann á þáttinn. Í honum verður fjallað um hversu langt sölumenn eru tilbúnir að ganga í því að selja varning sem ekki er viðurkenndur. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Sigmar Guðmundsson, ritstjóri Kastljóss, segir í samtali við Stundina að maðurinn sé, ásamt fleirum, til umræðu í þættinum. Lögmaður hans, Helga Vala, hafi haft samband við þátta­stjórnendur í dag. „Fyrst var reynt að semja við okkur á þá vegu að við myndum sleppa honum alveg úr þættinum. Við sættum okkur ekki við það enda teljum við efnið eiga brýnt erindi við almenning. Þá var okkur sagt að farið yrði fram á lögbann,“ segir Sigmar og stað­festir að krafan hafi þegar verið send sýslu­manni. Hún hafi hins vegar ekki enn borist þættinum en þegar það gerist fullyrðir Sigmar að henni verði mótmælt harðlega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár