Aðferðir Daníels „milljarðamærings“ kenndar við svikamyllu

Daníel Auð­uns­son kom fram í Ísfólk­inu á Rúv og seg­ist vera millj­arða­mær­ingur sem hefur gert það gott á net­versl­un­inni Amazon og nám­skeið­inu Amazing Selling Machine. Washington Post hefur fjallað um sam­bæri­legar aðferðir og Daníel notar sem sagðar voru svika­mylla.

Daníel Auðunsson
Daníel Auð­uns­son Við­skipta­hættir Daníel vekja upp margar spurn­ingar.

S

Saga Daníels Auð­uns­sonar hefur nú birst víða í íslenskum fjöl­miðlum, allt frá fyrstu frétt um hann á Frétta­net­inu til nær­myndar í Ísfólkarþætti Ragn­hildar Stein­unnar Jóns­dóttur. Daníel seg­ist vera millj­arða­mær­ingur sem hefur gert það gott á net­versl­un­inni Amazon. Við nán­ari skoðun stemmir ekki allt sem hann heldur fram.

Hvers vegna leggur maður sem seg­ist hala inn milljón doll­ara á mán­uði mesta áherslu á að kenna öðrum list sína? Hvers vegna skilur hann eftir sig slóð rusl­síða sem aðeins nokkrum mán­uðum síðar eru óvirkar? Hvers vegna getur hann ekki nefnt eitt ein­asta dæmi um vöru sem hann selur?

Ástæðan er sú að við­skipta­hættir eins og þeir sem Daníel stundar eru á gráu svæði og hefur þeim verið líkt við svika­myllu. Daníel er búsettur á Fil­ipps­eyjum en að hans sögn starfa þar fimm­tíu manns hjá fyr­ir­tæki hans.

Gervigagnrýni

Daníel hefur sjálfur sagt að við­skipti hans á Amazon hafi byrjað með því að hann keypti og svo end­ur­seldi bækur. „Ég keypti svona stuttar e-bækur af fólki út um allan heim, sem ég borg­aði kannski fimm til tíu þús­und kall til að skrifa svona litla bók um ein­hvern heilsu­diet og svo­leiðis. Svo gaf ég þær út á Kindle og mark­að­setti á Amazon. Þær seld­ust og ég byrj­aði að græða,“ sagði Daníel í við­tali við útvarps­þátt­inn Harma­geddon í apríl. Í þætt­inum Ísfólkið orð­aði hann þetta svo: „Basically, þá hönnum við okkar eigin vöru­merki og kaupum vör­urnar í vöru­merkin frá fram­leið­endum í Kína og Banda­ríkj­unum. Svo setjum við þær á netið og mark­aðs­setjum.“

Það sem Daníel lýsir þarna er nokk­urs konar svika­mylla sem banda­ríska dag­blaðið Washington Post gerði ítar­lega úttekt á í októ­ber. Umfjöllun dag­blaðs­ins snýr að nokk­urs konar svika­hrappi sem gefur út nýja bók á fimm daga fresti. „Rit­höf­und­ur­inn“ kallar sig Dagný Taggart, líkt og aðal­sögu­hetjan í frjáls­hyggju­rit­inu Und­ir­stöð­unni, eða Atlas Shrugged eftir Ayn Rand, en er raunar argent­ínskur maður að nafni Alexis Pablo Marrocco.

Lýsing blaðs­ins á svika­myllu Marrocco hljómar nær nákvæm­lega eins og lýs­ing Daníels utan ákveð­ins lyk­il­at­riðis: kaup og sala á gagn­rýni. Blaðið kallar verkn­að­inn að leggja gervi­gras (e. astrot­urf­ing), menn í brans­anum skipt­ast á að gefa hvor öðrum góðar ein­kunn, hafa jafn­vel fólk í vinnu við það, sem svo veldur því að þrátt fyrir mjög lítin gæði vör­unnar þá flýtur hún ofar­lega á vöru­lista Amazon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár