Viðurkenna „like“-svindl í Grillsumrinu mikla

Óánægja er meðal kepp­enda í Grillsumr­inu mikla vegna þess að sig­ur­strang­leg­asta liðið fékk þjón­ustu „like for like“ síðu til að reyna að inn­sigla sig­ur­inn og vinna utan­lands­ferð. „Ódrengi­leg aðferð,“ sögðu for­svars­menn keppn­innar, en ákváðu að gera ekk­ert í mál­inu.

Viðurkenna „like“-svindl í Grillsumrinu mikla
Skjáskot úr þætti Liðs­maður Soho Grill­vina­fé­lags­ins við­ur­kennir að hafa notað svo­kall­aðar „like for like“ síður við atkvæða­smölun.

Nokkrir kepp­endur í Grillsumr­inu mikla, keppni á vegum fyr­ir­tæk­is­ins Innnes, vekja athygli á því á Facebook-síðum sínum að svo virð­ist sem tvö lið hafi svindlað í keppn­inni með því að kaupa sér læk (e. like). Umræddur leikur snýst um að mis­mun­andi lið sýndu takta sína á grill­inu með vörum frá Innnesi og það lið sem fékk flest læk átti að vinna utan­lands­ferð til Búdapest. Meðfram keppn­inni voru sýndir þættir á mbl.is þar sem kepp­endur grill­uðu eftir getu. Þátta­stjórn­andi var Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttur, fyrr­ver­andi for­maður Heimdallar og fyrr­ver­andi blaða­maður á Morg­un­blað­inu.

Atkvæða­greiðslu er ekki enn lokið í leiknum en nú er liðið Soho Grill­vina­fé­lagið með lang­flest læk eða um sex þús­und læk. Liðið Gaman að grilla er í öðru sæti með fjögur þús­und læk. Bæði lið eru grunuð um að hafa svindlað í keppn­inni með erlendum lækum. Liðið Grill­haus­arnir er svo í þriðja sæti með um 1700 læk.

Stundin ræddi við Garðar Örn Arnarson, liðs­mann Soho Grill­vina­fé­lags­ins, sem full­yrðir að lið sitt hafi ekki eytt krónu í læk. Liðið hafi hins vegar nýtt sér svo­kall­aðar læk fyrir læk síður (e. „Like for like“) þar sem aðilar skipt­ast á lækum.

Stundin ræddi enn fremur við liðs­menn úr öðrum liðum sem nýttu sér ekki þessar síður og telja þeir þessa hegðun vera svindl á keppn­inni þar sem þau hafi lagt mikla vinnu í að hala inn lækum á heið­ar­legri máta. Þeim blöskrar við­brögð Innnes vegna máls­ins. Tals­maður Innnes neit­aði að tjá sig um málið utan þess að segja að málið sé enn í skoðun. Sú stað­hæf­ing stemmir ekki við tölvu­pósta, sem Stundin hefur undir höndum, sem fyr­ir­tækið sendi á öll lið keppn­innar.

„Ekki drengileg keppni“

Stundin hefur undir höndum tölvu­pósta sem Innnes sendi á kepp­endur. Í fyrri tölvu­pósti sem var sendur á mánu­dags­morgni lýsir fyr­ir­tækið aðferð efstu lið­anna sem óheið­ar­legri. „Í ljósi atburða helg­ar­innar er varða atkvæða­greiðsl­una sáum við okkur knúin til að senda þetta bréf. Í atkvæða­söfnun hefur borið á „und­ar­legum“ fjölda atkvæða á stuttum tíma. Það gefur okkur vís­bend­ingar um að ekki hafi verið safnað atkvæðum á heið­ar­legan hátt og mögu­lega átt sér stað kaup á atkvæðum. Ef svo reyn­ist rétt, þá er það ekki drengi­leg keppni og veitir ekki sigur í Grillsumr­inu Mikla. Þetta mál er í skoðun. Við hvetjum ykkur til að halda áfram að safna atkvæðum á heið­ar­legan hátt!“ segir í fyrra tölvu­pósti til kepp­enda.

„Við viljum því hvetja öll liðin til að leita allra mögu­legra leiða til atkvæða­söfn­unnar.“ 

Algjör umpólun á sér í stað í afstöðu fyr­ir­tæk­is­ins í seinni tölvu­pósti til kepp­enda sem sendur var síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Í þeim pósti eru liðin raun hvött til að nýta sér allar leiðir til að hala inn lækum: „Í fram­haldi af tölvu­pósti okkar í gær þá er það ljóst að ein­hver lið hafa valið að fara óhefð­bundnar leiðir í atkvæða­söfun. Þegar lagt var af stað með þetta verk­efni áttum við engan veg­inn von á því að nokkur myndi fara í að safna atkvæðum í gegnum erlendar þar til gerðar læk söfn­un­ar­síður. Þar af leið­andi voru engar reglur hvað þetta varðar og hörmum við það.

Síðust tveir dagar hafa farið í það að finna eins far­sæla lausn og mögu­legt er og hefur málið verið skoðað frá öllum hliðum og margir hafðir með í ráðum. Nið­ur­staðan er hins vegar sú að engar reglur hafa verið brotnar og við teljum okkur ekki geta sett nýjar reglur í miðri keppni.

Við viljum því hvetja öll liðin til að leita allra mögu­legra leiða til atkvæða­söfn­unnar og höldum því okkar striki að það lið sem er með flest atkvæði kl 14 á fimmtu­dag vinnur keppn­ina.“

„Ríkasti grillarinn“

Lárus Jón Björns­son, liðs­maður Grill­haus­anna, er einn þeirra sem vakið hefur athygli á óheið­ar­legum aðferðum ann­arra liða. „Jæja þá er form­legri keppni Grill­haus­anna í Grill­sum­arið Mikla lokið. Markmið keppn­innar var greini­lega ekki að finna skemmti­leg­ustu og áhuga­verð­ustu grillar­ana. Þegar öllu var á botn­inn hvolft sner­ist þetta víst bara um það hvaða lið gat keypt sér flest like á net­inu og unnið hana þannig.

Við til­kynntum það á sunnu­deg­inum að önnur lið væru að sanka að sér atkvæðum á ansi grun­sam­legan hátt. Á mánu­deg­inum fengum við það svar frá Innnes ehf. að þetta væri ekki í lagi. Við héldum því áfram á fullu að safna atkvæðum á heið­ar­legan og „eðli­legan“ hátt en svo skiptu þeir allt í einu um skoðun í dag. Allar aðferðir leyfðar! Nið­ur­staðan er því sú að þeir sem eiga mestan pen­ing kom­ast til Búdapest. Gaman að því.

Ég vil alla­veg­anna þakka öllum sem kusu okkur og dreifðu boð­skapnum. Næsta sumar ætla þeir víst að hafa þetta aðeins opn­ara og halda keppn­ina „Ríkasti grill­ar­inn“ og hvet ég alla til fylgj­ast vel með því. Það verður örugg­lega svaka stuð,“ skrifar Lárus á Facebook-síðu sína í gær.

„Þetta eru algjör von­brigði.“

Í sam­tali við Stundina harmar Lárus ákvörðun Innnes að taka ekki á þess­ari óheið­ar­legu atkvæða­söfnun. Hann segir lið sitt hafa lagt mikið á sig til að smala lækum á heið­ar­legan máta. „Þetta eru algjör von­brigði. Við erum búin að vera að peppa þetta í allt sumar, leggja því­líka vinnu í þetta. Við ætl­uðum að kom­ast til Búdapest á heið­ar­legan og eðli­legan hátt eins og svona keppnir ganga fyrir sig vana­lega,“ segir Lárus.

Mörg þúsund læk á stuttum tíma

Keppandi í öðru liði, Svakanaggar, Siggeir F. Ævarsson, tók skjá­skot þar sem rúss­neskur aðili sem nefn­ist Viktor Krasnoperov eða Виктор Красноперов lækar Soho Grill­vina­fé­lagið. Við leit að þeim manni kemur í ljós að hann hefur engin aug­ljós tengsl við Ísland og heldur enn fremur úti svoköll­uðu fjöl­þrepa mark­aðs­kerfi (e. Multi-Level Mar­ket­ing).

Skjáskot af Twitter
Skjáskot af Twitter Hér má sjá brot af Twitter-streymi Viktor Krasnoperov.
 

Stundin ræddi við Siggeir sem segir það mikil von­brigði að lið í keppn­inni fái að kom­ast upp með svindl. Að hans sögn hafi Innnes ákveðið að aðhaf­ast ekk­ert í mál­inu þar sem engar reglur hafi verið settar fyrir keppn­ina. „Á sunnu­dag­inn varð ég var við að það var eitt­hvað mjög und­ar­legt í gangi og tók eftir því að þau höfðu að minnsta kosti tekið inn tvö þús­und atkvæði á tveimur klukku­tímum. Ég var að vinna allan dag­inn í tölv­unni og var að „refresh-a“ reglu­lega og ég sá töl­una þjóta upp, þannig að það var svo­lítið grun­sam­legt. Það voru tvö lið sem voru að fara und­ar­lega hratt upp. Annað liðið, Gaman að grilla, fór upp úr 800 lækum í 3000 fyrir hádegi á sunnu­degi. Þennan sama daga fór Soho Grill­vina­fé­lagið líka á stað,“ segir Siggeir.  

Þurftu að bregðast við

Stundin náði tali af Garðari Erni Arn­ar­syni, liðs­manni Soho Grill­vina­fé­lags­ins, og er á því máli að lið sitt hafi ekki svindlað í keppn­inni. „Við höfum ekki eytt krónu í þetta. Við höfum ekki keypt nein læk. Það er fullt af svona „like for like“ síður á Facebook sem eru með hund­ruð þús­und not­endur þar sem fólk skipt­ist á lækum,“ segir Garðar.

„Fyrst þessi keppni ætl­aði að vera svona þá fórum við að finna ein­hverja leið til að safna lækum.“

Garðar segir að lið sitt  hafi ein­ungis verið að bregð­ast við öðru liði sem hafi nýtt sér „like for like“ síður. „Við vorum efstir eftir einn dag og allt í einu skaust eitt lið upp í 3700 læk og þá vorum við í þús­und, svo við fórum bara og fundum ein­hverja leið. Fyrst þessi keppni ætl­aði að vera svona þá fórum við að finna ein­hverja leið til að safna lækum,“ segir Garðar.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár