„Við munum mæta í nótt og standa við bakið á starfsmanninum okkar“

Maður sem hefur atvinnu- og dval­ar­leyfi og hefur starfað á veit­inga­hús­inu Lækj­ar­brekku við góðan orðstír, verður hand­tek­inn í nótt og fluttur úr landi. Eigandi Lækj­ar­brekku ætlar að standa með honum.

„Við munum mæta í nótt og standa við bakið á starfsmanninum okkar“
Christian og Jón Tryggvi Christian hefur starfað á forn­fræga veit­inga­hús­inu Lækj­ar­brekku við góðan orðstír, en verður hand­tek­inn í nótt og fluttur úr landi. Mynd: Kristinn Magnússon

Þrír hæl­is­leit­endur verða hand­teknir og sendir úr landi í nótt þrátt fyrir að vera með atvinnu- og dval­ar­leyfi þar til í júní. Einn af þeim er Christian Boadi sem hefur unnið sam­visku­sam­lega hér á landi frá því í júlí. Hann er aðstoð­ar­kokkur á Lækj­ar­brekku.
 
„Christian hefur starfað hjá mér frá því í ágúst á síð­asta ári og hefur staðið sig frá­bær­lega. Það er því þyngra en tárum taki að vita til þess að hann verði hand­tek­inn í nótt og fluttur til Ítalíu,“ segir Jón Tryggvi Jónsson, eig­andi veit­inga­stað­ar­ins Lækj­ar­brekku í Banka­stræti.

Þrír verða handteknir og sendir út

Christian Kwaku Boadi er frá Ghana en hann er einn af þremur hæl­is­leit­endum sem sendir verða úr landi í nótt en þeim barst til­kynn­ing þess efnis frá lög­regl­unni seinni­part­inn í gær.
 
„Ég fékk sím­tal frá lög­regl­unni um klukkan fjögur í gær en þá var búið að loka hjá bæði inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og Útlend­inga­stofnun þannig að mér gafst ekk­ert færi á að afla mér upp­lýs­inga um þessa ákvörðun. Ég er búinn að bíða í mörg ár eftir nið­ur­stöðu og á þeim tíma hef ég reynt að aðlag­ast líf­inu á Íslandi. Í dag er ég með góða vinnu, er að reyna að læra íslensku og á hér fullt af vinum sem mig þykir vænt um,“ segir Christian sem var í miklu upp­námi. Hann kom hingað til lands frá Ítalíu. Þar reik­aði hann um götur, alls­laus, og gisti á almenn­ings­sal­ernum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár