VG mælist stærsti flokkur landsins

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er aðeins 32,6% í nýrri könnun.

VG mælist stærsti flokkur landsins
Katrín Jak­obs­dóttir Er for­maður Vinstri grænna. Mynd: Kristinn Magnússon

Vinstri hreyf­ingin - Grænt fram­boð mælist með mesta fylgi í nýrri skoð­ana­könnun MMR. 

VG fær 27 pró­sent fylgi í könn­un­inni og hækkar um fimm pró­sent á milli kann­ana, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kemur næstur með 23,8 pró­sent fylgi. 

Þetta er í fyrsta skiptið frá árinu 2009 sem VG mælist með meira fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­innn. Breyt­ingin er mikil frá síð­ustu könnun þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist með 24,6 pró­sent og VG með 22 pró­sent.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, mælist ennþá lágur, eða 32,6 pró­sent. Hann mæld­ist 35 pró­sent í fyrri könnun MMR 26. jan­úar.

Fylgi flokka í könnun MMR

Vinstri grænir 27%

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 23,8%

Píratar 13,5%

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 9,7%

Sam­fylk­ingin 7,8%

Viðreisn 5,6%

Björt fram­tíð 5,3%

Flokkur fólks­ins 3,6%

Dögun 1,7%

Alþýðu­fylk­ingin 0,7%

Aðrir 1,1%

Munur á könnunum

Nokkur munur er á könnun MMR og nið­ur­stöðum í þjóð­ar­púlsi Gallup sem birtar voru í fyrra­dag. Þar kom fram að 44% styddu rík­is­stjórn­ina, sem þó er það minnsta sem mælst hefur hjá nýrri rík­is­stjórn, og að 28 pró­sent styddu Sjálf­stæð­is­flokk­inn, en 23 pró­sent Vinstri græn.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár