Húsnæðisskortur: Erlendir verkamenn búa á hótelum

Fast­eigna­verð hefur ekki hækkað jafn­mikið frá árinu 2007.

Húsnæðisskortur: Erlendir verkamenn búa á hótelum
Ekkert í boði Örfáar íbúðir eru lausar til leigu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nær­liggj­andi sveit­ar­fé­lögum. Mynd: Shutterstock

Dæmi eru um að íslensk verk­taka­fyr­ir­tæki þurfi að borga með erlendum verka­mönnum sem hingað koma til lands. Ástæðan er sú að nán­ast ekk­ert gisti­rými er á lausu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða nær­liggj­andi sveit­ar­fé­lögum og hafa því ein­hver verk­taka­fyr­ir­tæki þurft að leigja hót­el­her­bergi undir starfs­menn­ina. Hót­el­her­bergi á þessum tíma árs eru ekki þau ódýr­ustu en fram­kvæmda­stjóri verk­taka­fyr­ir­tækis sem Stundin ræddi við segir þetta það eina í stöð­unni á meðan ástandið er svona á leigu­mark­aði.

„Það er allt fullt alls staðar. Við höfum leitað að leigu­í­búðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Reykja­nesbæ, Hvera­gerði, Selfossi og Akranesi. Það er lítið sem ekk­ert í boði og á sumum stöðum bók­staf­lega ekki neitt í boði. Við höfum því þurft að leita til gisti­heim­ila og í ein­hverjum til­fellum hót­ela til þess að hýsa mann­skap­inn sem kemur að utan til að vinna fyrir okkur. Við höfum ekki undan bygg­inga­verk­efn­unum en á sama tíma er algjör skortur á starfs­fólki og því lendum við í þess­ari stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár