Verkfallalandið

Franskir starfs­menn njóta mun meiri rétt­inda en aðrir í Vestur-Evrópu.

Hvers vegna eru verk­föll í Frakk­landi núna? Þessi spurn­ing hljómar eins og þegar barn spyr, hvers vegna er him­inn­inn blár? Frakkar eru sú þjóð sem er gjörn­ust á að fara í verk­föll og fyrir því liggja ýmsar félags­legar og efna­hags­legar ástæður. Í ár munu þó margir af þeim tug­þús­undum Íslend­inga sem stefna út á EM kynn­ast frönsku verk­falli af eigin raun. En hverju er verið að mót­mæla?

Umdeild vinnulöggjöf óvinsæls forseta

Eitt af stóru verk­efnum hvers ein­asta franska for­seta er að breyta vinnu­lög­gjöf­inni. Það virð­ist vera óháð því hvort hann sé úr sós­í­alista­flokknum, sem núver­andi for­seti, Francois Hollande er, eða íhalds­maður eins og sá síð­asti, Nicolas Sarkozy, var. (Sem lík­lega er á leið í fram­boð aftur.) Frakkar eru þekktir fyrir að berj­ast fyrir rétt­indum sínum og þegar atvinnu­vega­ráð­herr­ann, Myriam El Khomri, lagði fram nýja vinnu­lög­gjöf hófst löng verk­falls­hrina og óeirðir sem ekki sér enn fyrir end­ann á. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár