Sviptur atvinnuleyfi og læknisþjónustu og sagður hafa beðið um að vera fluttur úr landi

Albönsk fjöl­skylda, sem flutt var með lög­reglu­fylgd af heim­ili sínu í nótt og send úr landi, bað sjálf um að vera flutt burt, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu Útlend­inga­stofn­unar. Hins vegar hafði fjöl­skyld­unni þegar verið til­kynnt um að hún yrði flutt úr landi. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn hafði verið sviptur atvinnu­leyfi og gert að greiða hámarks­kostnað fyrir lækn­is­hjálp fyrir lang­veikan son, að sögn fjöl­skyldu­vinar.

Sviptur atvinnuleyfi og læknisþjónustu og sagður hafa beðið um að vera fluttur úr landi
Fjöl­skyldan flutt úr landi í nótt Lög­reglu­menn komu á rútu og sóttu fjöl­skyld­una um klukkan eitt í nótt. Mynd: Kristinn Magnússon

Útlend­inga­stofnun lýsir því yfir í dag að albönsku fjöl­skyld­urnar, sem fluttar voru úr landi í gær með lang­veik börn, hafi sjálfar óskað eftir brott­flutn­ingnum. Hermann Ragn­ars­son, vinnu­veit­andi og félagi ann­ars fjöl­skyldu­föð­ur­ins, segir að yfir­lýs­ing stofn­un­ar­innar gefi ein­fald­aða og vill­andi mynd af raun­veru­leik­anum. 

Í nótt var Kastri­jot Pepoj og fjöl­skylda hans sótt á heim­ili þeirra í Barma­hlíð og flutt í lög­reglu­fylgd í Leifs­stöð. Þau höfðu flutt til Íslands vegna þess að Kastri­jot varð fyrir skotárás og vegna veik­inda þriggja ára sonar þeirra, Kevi, sem glímir við slím­s­eigju­sjúk­dóm. Ósk þeirra var að verða full­gildir borg­arar á Íslandi og fá lækn­is­að­stoð fyrir Kevi.

Ólöf Nordal
Ólöf Nordal Inn­an­rík­is­ráð­herra er far­inn úr landi. Ekki hefur náðst sam­band við upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins.

Þótt Útlend­inga­stofnun segi að fjöl­skyldan hafi sjálf beðið um að vera flutt úr landi segir það aðeins hluta af sög­unni. Fjöl­skyldan stóð frammi fyrir þeirri stöðu að Útlend­inga­stofnun var búin að til­kynna um brott­vísun hennar úr landi og Kastri­jot hafði verið sviptur atvinnu­leyfi.

Hermann, sem hjálp­aði fjöl­skyld­unni að koma undir sig fót­unum á Íslandi og reyndi að sann­færa Útlend­inga­stofnun um að leyfa Kastri­jot að starfa áfram hjá honum, segir að yfir­lýs­ing Útlend­inga­stofn­unar sé vill­andi. Kastri­jot hafði atvinnu- og dval­ar­leyfi til 15. nóv­em­ber síð­ast­lið­ins.

Fjölskyldan bíður lögreglu
Fjöl­skyldan bíður lög­reglu „Ég er búin að gráta í þrjá daga,“ sagði Xhulia í nótt þar sem hún beið lög­regl­unnar.

„Þau hefðu ekki neitt leyfi til að vinna eða neitt. Hann var búinn að missa atvinnu­leyfið og fékk því ekki fram­lengt. Ég gat ekk­ert haft hann í vinnu, þótt ég vildi það og þótt ég hefði talað við Útlend­inga­stofnun. Ég gat ekki skilað stað­greiðsl­unni af honum, því kennitalan var orðin óvirk. Hann var neyddur til að fara úr landi.“

Yfirlýsing Útlendingastofnunar
Yfir­lýs­ing Útlend­inga­stofn­unar Mbl.is birti yfir­lýs­ingu Útlend­inga­stofn­unar fyrr í dag.

Útlend­inga­stofnun útskýrir í yfir­lýs­ingu sinni hvers vegna fjöl­skyld­unni, og annarri albanskri fjöl­skyldu í sam­bæri­legri aðstöðu, hefði verið synjað um hæli. „Til þess að eiga rétt á alþjóð­legri vernd og eiga rétt á hæli að lögum og sam­kvæmt alþjóða­sátt­málum þarf fólk að vera í ein­hvers konar hættu og eiga ekki mögu­leika á við­un­andi vernd og úrræðum í heima­landi sínu. Þetta leiðir bæði af Flótta­manna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og íslenskum lögum sem sett eru á grund­velli hans. Efna­hags­legar aðstæður fela ekki í sér aðsteðj­andi hættu, um það eru alþjóða­sátt­málar og lög skýr. Því geta slíkar aðstæður ekki verið grund­völlur verndar.“

Ekki tókst að ná sam­bandi við Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra í dag eða í gær­kvöldi, eða aðstoð­ar­mann hennar, eða upp­lýs­inga­full­trúa inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. 

Lýsingu á brott­flutn­ingi fjöl­skyld­unnar má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár