Útlendingastofnun hótar hælisleitendum ákæru

Aðeins rík­is­sak­sókn­ari, hér­aðs­sak­sókn­ari og lög­reglu­stjóra­emb­ætti fara með ákæru­vald á Íslandi. Það virð­ist hafa gleymst á Kjal­ar­nesi.

Útlendingastofnun hótar hælisleitendum ákæru
For­stjóri Útlend­inga­stofn­unar Kristín Völ­und­ar­dóttir er for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar. Hæl­is­leit­endum er hótað ákæru í til­kynn­ingu sem þeim er birt í hús­næði sem stofn­unin útvegar þeim. Mynd: Skjáskot

Skjól­stæð­ingum Útlend­inga­stofn­unar, sem óska eftir alþjóð­legri vernd á Íslandi, er hótað ákæru verði þeim á þau mis­tök að ganga inn á einka­lóðir í nágrenni heim­ilis síns. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem hangir uppi á vegg á heim­ili hæl­is­leit­enda í Arn­ar­holti á Kjal­ar­nesi þar sem Útlend­inga­stofnun sér þeim fyrir hús­næði.

Á til­kynn­ing­unni má sjá loft­mynd af svæð­inu í kringum Arn­ar­holt og rauða línu sem liggur eftir veg­inum frá heim­il­inu og að næsta strætó­skýli sem er við Olís-stöð í um hálf­tíma göngu­fjar­lægð. Eru íbúar beðnir um að fylgja rauðu lín­unni og þeim jafn­framt til­kynnt að þeir verði ákærðir verði þeir gripnir inni á einka­lóðum.

„Takið eftir. Fylgið rauðu lín­unni þegar þið gangið að strætó­skýl­inu (Olís) og stígið ekki inn á einka­lóðir – hver sá sem stað­inn er að því fara inn á einka­lóð verður ákærður,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Fylgið rauðu línunni
Fylgið rauðu lín­unni „Takið eftir. Fylgið rauðu lín­unni þegar þið gangið að strætó­skýl­inu (Olís) og stígið ekki inn á einka­lóðir – hver sá sem stað­inn er að því fara inn á einka­lóð verður ákærður.“
 

Skila­boðin eru afdrátt­ar­laus. Því er slegið föstu að hver sá sem fari inn á einka­lóð, hvort sem það er fyrir mis­tök eður ei, verði ákærður. Hvernig Útlend­inga­stofnun hyggst fram­fylgja þess­ari hótun er óljóst en stofn­unin fer ekki með ákæru­vald enda sak­sókn­arar og lög­reglu­stjórar þau emb­ætti á Íslandi sem fara með slíkt vald. „Ákærendur eru rík­is­sak­sókn­ari, hér­aðs­sak­sókn­ari og lög­reglu­stjórar,“ segir í 18. gr. laga um með­ferð saka­mála þar sem fjallað er um ákæru­vald á Íslandi.

Á loft­mynd­inni af Arn­ar­holti og nágrenni, sem fylgir umræddri til­kynn­ingu, sést í nokkur hús, rækt­ar­land sem og óræktað land. Í fjórða kafla laga um nátt­úru­vernd er fjallað um almanna­rétt og 17. gr. kveður á um að almenn­ingi sé „heimil för um landið og dvöl þar í lög­mætum til­gangi“. 

Samkvæmt 231. gr. almennra hegn­ing­ar­laga getur varðað sektum eða fang­elsi að ryðj­ast heim­ild­ar­laust inn í hús eða skip eða að neita að fara þaðan þegar þess er kraf­ist. Í 242. gr. sömu laga kemur hins vegar fram að brot gegn 231. gr. geti ein­ungis sætt ákæru eftir að sá sem mis­gert er við krefst þess. Eftir því sem Stundin kemst næst eru þó almennt ekki gefnar út ákærur þegar fólk fer inn á einka­lóð nema hún sé vel afgirt og við­kom­andi neiti að yfir­gefa stað­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár