Urgur í baklandi Bjartrar framtíðar: Áhrifafólk furðar sig á hægri beygjunni

„Ég er ekki viss um að þeir sem kusu Bjarta fram­tíð hafi endi­lega vitað að þeir væru líka að kjósa Benedikt,“ segir einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar. Hið nána sam­band við Viðreisn er umdeilt.

Urgur í baklandi Bjartrar framtíðar: Áhrifafólk furðar sig á hægri beygjunni

Skiptar skoð­anir eru í bak­landi Bjartrar fram­tíðar um hið nána sam­starf Óttars Proppé við Viðreisn og fyr­ir­hugað stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Stundin hefur rætt við áhrifa­fólk í Bjartri fram­tíð und­an­farna daga sem furðar sig á því sem kallað er „síam­st­ví­bura­sam­band“ Óttars Proppé og Bene­dikts Jóhann­es­sonar, for­manns Við­reisnar. 

Þótt mörgum hugn­ist illa stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Viðreisn er bent á að fyrst fimm­flokka­við­ræð­urnar við VG, Sam­fylk­ing­una, Pírata og Viðreisn hafi tví­vegis runnið út í sand­inn sé eðli­legt að Óttarr Proppé spreyti sig í við­ræðum við hægri­flokk­ana. Hins vegar sé ekki sjálf­gefið að stjórn Bjartrar fram­tíðar fall­ist á myndun slíkrar rík­is­stjórnar. Til þess þurfi að gull­tryggja að flokk­ur­inn nái mik­il­vægum málum fram í slíku stjórn­ar­sam­starfi. 

Stjórn­ar­menn í Bjartri fram­tíð og fyrrum þing­menn hafa furðað sig á því hvernig Óttarr límdi sig við Benedikt Jóhann­es­son eftir kosn­ing­arnar. „Ég er ekki viss um að þeir sem kusu Bjarta fram­tíð hafi endi­lega vitað að þeir væru líka að kjósa Benedikt,“ segir einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar. 

Annar heim­ild­ar­maður Stund­ar­innar bendir á að Björt fram­tíð sé félags­hyggju­flokkur að nafn­inu til. Þótt Viðreisn gefi sig út fyrir að vera frjáls­lyndur miðju­flokkur hafi flokk­ur­inn sýnt á sér hægri­s­inn­aðar hliðar eftir kosn­ingar, beitt sér gegn hug­myndum um prógressífa skatt­lagn­ingu og bakkað frá eigin útgjalda­lof­orðum. Félags­hyggju­fólk sem kaus Bjarta fram­tíð sé fjarri Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokknum á hinu póli­tíska lit­rófi og það komi á óvart hve til­búnir þing­menn Bjartrar fram­tíðar voru að styðja umdeild og jafn­vel van­reifuð mál ættuð frá starf­andi starfs­stjórn á des­em­ber­þingi. 

Frétta­stofa RÚV greindi frá því í morgun að Róbert Marshall og Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, fyrr­ver­andi þing­menn Bjartrar fram­tíðar, hefðu bæði ákveðið að segja sig úr flokknum. Haft var eftir þeim að ákvörð­unin hefði ekk­ert með yfir­stand­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður að gera, heldur ein­ungis það að þau ætli að snúa sér að öðru en stjórn­málum. Ýmislegt er þó lesið í úrsagn­irnar og tíma­setn­ing­una þeirra innan flokks­ins, enda hófust form­legar við­ræður Bjartrar fram­tíðar við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Viðreisn einmitt í dag. 

Óánægja innan Bjartrar fram­tíðar hefur stöku sinnum komið upp á yfir­borðið eftir kosn­ingar. Þannig hafði Frétta­blaðið t.d. eftir Páli Val Björns­syni, fyrr­ver­andi þing­manni flokks­ins, um miðjan nóv­em­ber að hann efað­ist um að myndun rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar tæk­ist. „Ég tel að við eigum enga sam­leið,“ sagði hann. Freyja Har­alds­dóttir, vara­þing­kona Bjartrar fram­tíðar á síð­asta kjör­tíma­bili, gagn­rýndi svo Alþingi og flokks­fé­laga sína harð­lega í stöðu­upp­færslu á Facebook um helg­ina vegna laga um breyt­ingu á lög­um um mál­efni fatl­aðs fólks sem keyrð voru í gegnum þingið á sóla­hring án þess að haft væri sam­ráð við hags­muna­sam­tök fatl­aðra. „Hvernig stendur á því að fólk, þ.m.t. sam­flokks­fólk mitt, sem hefur gefið sig út fyrir það að styðja NPA og lög­fest­ingu og veit hvaða mann­rétt­inda­brot fel­ast í því að þetta sé ekki lög­fest komi svona fram við fatlað fólk? Hvernig í ósköp­unum eigum við að geta unnið með ykkur án tor­tryggni þegar við erum stungin svona í bakið?“ skrif­aði Freyja. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár