Ungur prins ógnar jafnvægi Sádi-Arabíu

Prinsinn Mohammed bin Salman er sonur nýs kon­ungs Sádi-Arabíu og hefur á örskömmum tíma náð hæstu met­orðum, þrátt fyrir litla menntun. Valda­jafn­vægi er að raskast innan kon­ung­dæm­is­ins og völd safn­ast á færri hendur. Prinsinn stendur í stafni í stríði Sáda gegn Jemen og hefur und­an­farið hitt bæði Hollande Frakk­lands­for­seta og Obama Banda­ríkja­for­seta.

Prinsinn rís
Prinsinn rís Mohammed bin Salman hefur hlotið skjótan frama þrátt fyrir að vera minna mennt­aður og með minni reynslu en aðrir prinsar sem þóttu koma til greina.

Fyrir um fjórum mán­uðum síðan var Mohammed bin Salman, 29 ára gam­all prins í Sádi-Arabíu, bara einn af fjöl­mörgum prinsum kon­ungs­rík­is­ins. Rétt eins og aðrir karl­kyns með­limir kon­ungs­fjöl­skyld­unnar var hann helst þekktur fyrir djörf verð­bréfa- og fast­eigna­við­skipti í Mið-Aust­ur­löndum. 

Prins Mohammed á þrjá eldri hálf­bræður sem allir eru með rík­ustu ein­stak­lingum Sádi-Arabíu en þeirra á meðal er ráð­herra olíu­mála rík­is­ins. En þetta var áður en faðir þeirra, Salman bin Abulaziz sem er 79 ára, varð kon­ungur Sádi-Arabíu. Nú er prins Mohammed, sem er elsti sonur þriðju og yngstu eig­in­konu kóngs­ins, rísandi stjarna innan stjórn- og her­afla kon­ungs­rík­is­ins. 

Gríðarlega mikil völd á einungis fjórum mánuðum

Á ein­ungis fjórum mán­uðum hefur hinn ungi prins sölsað undir sig meira valdi en nokkur annar prins Sádi Arabíu hefur nokkurn tíman haft. Erfða­hefð kon­ungs­fjöl­skyld­unnar hefur hingað til byggst á ákveðnu kerfi vald­dreif­ingar sem á að stuðla að ein­ingu innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar. Mohammed prins hefur nýtt þetta nýtil­komna vald sitt til að taka sér nokk­urs konar leið­toga­sæti innan stjórn­kerfis rík­is­ins, þar sem Sádi Arabía er orðin leið­andi – og ógn­andi – afl í Mið-Aust­ur­löndum. Hern­að­ar­á­tökin í Jemen eru einmitt gott dæmi um það.

Á þeim fjórum mán­uðum síðan Salman tók við emb­ætti kon­ungs Sádi-Arabíu hefur hann sett Mohammed prins yfir rík­is­rekin olíu­fyr­ir­tæki lands­ins sem og allar fjár­fest­ingar hins opin­bera. Einnig hefur hann skipað son sinn sem yfir­mann nýrrar nefndar sem hann kallar hag­stjórn Sádi Arabíu og síð­ast en ekki síst er Mohammed orð­inn ráð­herra varn­ar­mála. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár