„Stundum talað eins og orkuframleiðsla sé syndsamleg“

Sig­mundur Davíð fagn­aði efna­hags­bat­anum í stefnu­ræðu sinni og sagði Íslend­inga geta veitt öðrum þjóðum leið­sögn í umhverfis- og sjáv­ar­út­vegs­málum.

„Stundum talað eins og orkuframleiðsla sé syndsamleg“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, telur að Íslend­ingar geti veitt öðrum þjóðum leið­sögn á sviði umhverf­is­mála og sjáv­ar­út­vegs­mála. Við­ur­kenna verði það sem vel er gert svo Íslend­ingar geti gert enn betur. Þær fréttir utan úr heimi sem birt­ast í fjöl­miðlum þessa dag­ana eigi að minna okkur á að vera þakk­lát fyrir hvað við höfum það gott. 

Þetta er á meðal þess sem fram kom í stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra á Alþingi áðan.

Hér að neðan má horfa og hlusta á umræður um stefnuræðu forsætisráðherra sem standa nú yfir:

 

Í upp­hafi ræðu sinnar vék for­sæt­is­ráð­herra að þróun efna­hags­mála. „Fá dæmi eru um að lönd hafi náð sér jafn vel á strik efna­hags­lega og Ísland hefur gert á und­an­förnum tveimur árum,“ sagði hann og benti á að Ísland hefði vaxið hrað­ast Evr­ópu­þjóða frá 2013. 

Að sögn Sig­mundar ætlar rík­is­stjórnin að hækka líf­eyri öryrkja og elli­líf­eyr­is­þega meira en gert hefur verið nokkurn tím­ann áður. „Framlög til heil­brigð­is­mála hafa aldrei verið jafn mikil,“ sagði hann enn fremur og bætti við: „Það má því með sanni segja að rík­is­stjórnin sé að kynna vel­ferð­ar­fjár­lög.“ Sig­mundur fjall­aði einnig um þróun á vinnu­mark­aði og sagði mik­il­vægt að sporna við því að launa­hækk­anir færu beint út í verð­lagið.

Að sögn Sig­mundar geta Íslend­ingar veitt öðrum þjóðum leið­sögn um umhverf­is­mál og sjáv­ar­út­vegs­mál. „Nær öll íslensk orka er fram­leidd með umhverf­is­vænum end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum. Ekkert annað land kemst nálægt því að ná sama hlut­falli grænnar orku. Nú er unnið að því að fjölga raf­magns­bílum og öðrum umhverf­is­vænum bif­reiðum og meira að segja skip gætu verið knúin raf­magni í fram­tíð­inni,“ sagði Sig­mundur og bætti við: „Það skýtur því skökku við að hér á landi sé stundum talað eins og orku­fram­leiðsla sé synd­sam­leg, svo ekki sé minnst á iðn­að­inn sem nýtir ork­una.“

Næst vék hann að sjáv­ar­út­veg­inum og benti á að víða í heim­inum er óveiddur fiskur lít­ils virði og sjáv­ar­út­veg­ur­inn rík­is­styrktur. „Hér á landi hefur tek­ist að hafa málum þannig að sjáv­ar­út­vegur skilar þjóð­ar­bú­inu veru­legum tekjum á sama tíma og stofn­arnir eru nýttir á sjálf­bæran hátt og greinin hefur orðið und­ir­staða mik­illar nýsköp­unar,“ sagði hann. „Við­ur­kennum að ísland stendur sig vel á sviði umhverf­is­mála og sjáv­ar­út­vegs­mála og látum það vera okkur hvatn­ingu til að gera enn betur.“

Hér að neðan má lesa ræðu Sigmundar í heild:

Virðu­legur for­seti, góðir lands­menn.
Við höfum að und­an­förnu fylgst náið með fréttum af atburðum sem minna okkur á hve þakk­lát við getum verið fyrir það líf sem okkar góða land og frið­sama sam­fé­lag hefur búið okkur, svo langt frá heims­ins víga­slóð.

Þessar  aðstæður setja á herðar okkar skyldu til að koma þeim sem eru í neyð til hjálpar á þann hátt sem við best getum, eins og ég mun koma að síðar. 

Við búum í góðu landi þar sem sterkt sam­fé­lag, inn­viðir og auð­lindir eru slíkar að eng­inn á að þurfa að líða skort. Auðvitað er margt enn óunnið og því miður búa allt of margir við erf­iðar aðstæður. Sá dagur mun aldrei koma að hægt verði að segja að öllum verk­efnum stjórn­mála sé lokið. En með bjart­sýni og vilja til að gera betur, fyrir alla íbúa lands­ins, má samt ná langt.

Mögu­leikar okkar á að leysa ókláruð verk­efni vel og takast á við áskor­anir verða þeim mun meiri ef við áttum okkur á því hvaða árangri við höfum náð nú þegar og látum hann verða okkur hvatn­ingu til að gera enn betur.

Fá dæmi eru um að lönd hafi náð sér jafn­hratt á strik efna­hags­lega og Ísland á síð­ustu tveimur árum. Það hefur gerst á sama tíma og nágranna­þjóð­irnar, í við­skipta­löndum okkar, glíma áfram við miklar efna­hags­þreng­ingar sem ekki sér fyrir end­ann á.

Efna­hags­lega hefur Ísland vaxið hrað­ast Evr­ópu­þjóða frá 2013. Kaup­máttur launa hefur auk­ist um 10% frá því að rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks tók við. Þetta er ein­stakur árangur í alþjóð­legum sam­an­burði.

Öll alþjóð­legu mats­fyr­ir­tækin hækk­uðu láns­hæf­is­ein­kunnir Íslands í sumar eftir kynn­ingu á losun fjár­magns­hafta. Slík hækkun mun leiða til betri láns­kjara og lækk­unar á vaxta­gjöldum.

Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016, sem fjár­mála­ráð­herra kynnti fyrr í dag verður íslenska ríkið rekið með afgangi þriðja árið í röð og rekstr­ar­af­gang­ur­inn verður lík­lega hlut­falls­lega meiri en nokk­urs staðar ann­ars staðar í Evrópu að Noregi und­an­skildum.

Þetta skiptir gríð­ar­miklu máli því það þýðir að við, ólíkt flestum Evr­ópu­löndum, erum hætt að safna skuldum, við erum að greiða þær niður.

Í stað þess að ýta vand­anum á undan okkur og leggja auknar byrðar á fram­tíð­ar­kyn­slóðir erum við að búa í hag­inn fyrir fram­tíð­ina og gera okkur kleift að nýta meira fjár­magn í það sem mestu máli skiptir, vel­ferð­ar­kerfið og sterka inn­viði.

En jafn­vel þótt íslenska ríkið sé rekið með afgangi munum við auka fram­lög til allra mik­il­væg­ustu mála­flokk­anna, ekki bara í krónu­tölu, heldur í raun­veru­legum verð­mætum.

Gera má ráð fyrir að líf­eyrir eldri borg­ara og öryrkja hækki meira á næsta ári en hann hefur nokkurn tíman gert áður. Þó eru stjórn­völd með­vituð um að þar megi ekki láta staðar numið.

Framlög til heil­brigð­is­mála hafa aldrei verið jafn­mikil, það sama á við um fram­lög til nán­ast allra vel­ferð­ar­mála, félags­mála og almanna­trygg­inga.

Sem dæmi má nefna að hrein aukn­ing fram­laga til heil­brigðis- og félags­mála á kjör­tíma­bil­inu nemur 26 millj­örðum króna og er þá bæði búið að und­an­skilja launa­hækk­anir og verð­lags­hækk­anir.

Þetta sam­svarar því að hálfur Lands­spít­ali hafi bæst við vel­ferð­ar­út­gjöldin á kjör­tíma­bil­inu. Allar líkur eru á því að svig­rúm verði til að gera en betur á næstu árum.

Það má því með sanni segja að rík­is­stjórnin sé nú að kynna vel­ferð­ar­fjár­lög.

Fjár­laga­frum­varp­inu fylgir reyndar mjög stór og óvenju­legur fyr­ir­vari,  en líka mjög jákvæður. 

Með losun fjár­magns­hafta og upp­gjöri slita­búa bank­anna mun staða rík­is­sjóðs og mögu­leik­inn til að standa undir grunn­þjón­ustu batna til mik­illa muna.

Þótt þau hund­ruð millj­arða sem stöð­ug­leika­fram­lag eða stöð­ug­leika­skattur mun  skila verði ekki nýtt í fram­kvæmdir mun leið­rétt­ing á stöðu rík­is­sjóðs þýða að við getum byggt upp hraðar, þar sem vaxta­gjöld munu minnka.

Þetta tökum við ekki með í reikn­ing­inn fyrr en það er orð­inn hlutur. Þess vegna má gera ráð fyrir að hægt verði að ráð­ast hraðar í þjóðrifa­mál á borð við ljós­leið­ara­væð­ingu lands­ins en und­ir­bún­ingi þess stór­átaks er nú lokið.

Kjör Íslend­inga hafa batnað hraðar en nokk­urs staðar ann­ars staðar og tak­ist okkur að koma í veg fyrir að verð­bólgan fari á skrið má búast við áfram­hald­andi kjara­bótum. Aldrei hefur jafn­mikið verið á bak við jafn­miklar launa­hækk­anir og í síð­ustu samn­ingum.

Engu að síður er ástæða til að hafa áhyggjur af því að launa­hækk­an­irnar fari út í verð­lagið með þeim afleið­ingum að þær skili sér ekki með þeim hætti sem til var stofnað.

Það er því mik­il­vægt að við vinnum saman að því að auka fram­leiðni og verð­mæta­sköpun svo að launa­hækk­anir missi ekki marks  með hækkun verð­lags.

Hraður vöxtur efna­hags­lífs­ins og miklar launa­hækk­anir leiða því miður oft til auk­innar mis­skipt­ingar. En það á ekki við hér, ekki núna.

Nú hefur það gerst á Íslandi, á sama tíma og hag­vöxtur eykst og laun hækka, að tek­ist hefur að ná meiri jöfn­uði en dæmi eru um í sögu lands­ins. Árið 2014 varð tekju­dreif­ing jafn­ari en áður og tekju­jöfn­uður á Íslandi er nú meiri en í öðrum löndum.

Í mörgum löndum er nú mikið rætt hvernig hægt sé að  bregð­ast við auk­inni mis­skipt­ingu. Þar setja menn sér mark­mið um að kom­ast í svip­aða stöðu og við höfum þegar náð á mörgum árum eða ára­tugum. 

Stærstu aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar hafa allar miðað að því að rétta stöðu heim­il­anna og bæta kjörin í land­inu. Fjár­laga­frum­varpið er mik­il­vægur liður í fram­haldi þeirrar vinnu.

Með því er ráð­ist í veru­legar breyt­ingar á skatt­lagn­ingu og gjald­töku rík­is­ins með það að mark­miði að styrkja heim­il­is­bók­hald fólks með milli­tekjur og lægri tekjur.

Það má því áfram gera ráð fyrir að kjör allra batni, en þó sér­stak­lega milli­tekju- og lág­tekju­fólks, og þannig batni lífs­kjör á Íslandi áfram en um leið auk­ist jöfn­uður áfram.

Tekju­skattur lægri- og  milli­tekju­hópa lækkar og tollar verða afnumdir á yfir 1600 vöru­flokkum en með því styrkjum við stöðu íslenskra neyt­enda og íslenskrar versl­unar.

Innlend mat­væli hafa árum saman haldið aftur af verð­bólgu á Íslandi. Nú á lækkun ann­arra vara að skila því sama.

Þar skiptir þó öllu máli að versl­anir skili þeim miklu lækk­unum sem fylgja munu afnámi tolla áfram til neyt­enda. Þar þarf almenn­ingur að vera vel á verði.

Efna­hags­leg staða Íslands hefur styrkst mikið að und­an­förnu og ein­kenn­ist nú af stöð­ug­leika með lágri verð­bólgu, litlu atvinnu­leysi, auknum kaup­mætti, lækkun skulda og halla­lausum rík­is­rekstri.

Gangi hag­spár eftir munum við upp­lifa lengsta sam­fellda hag­vaxt­ar­skeiðið í seinni tíma hag­sögu Íslands. 

Sagan kennir okkur að við þurfum að fara að öllu með gát þegar jákvæðir hag­straumar leika um okkur. Sér­stak­lega er ástandið á vinnu­mark­aði tví­sýnt og hefur nú verið um langt skeið.

Mik­il­vægt er að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins, bæði á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði, taki af skarið og sníði þá agnúa af umgjörð­inni, sem þeir telja versta.

Að öðrum kosti er ólík­legt að við náum þeirri festu í umgjörð vinnu­mark­aðar sem nauð­syn­leg er og verð­bólga verði við­var­andi vanda­mál, líkt og hún hefur verið stærsta hluta lýð­veld­is­tím­ans.

Aðilar vinnu­mark­að­ar­ins þurfa líka að nota tæki­færið sem nú gefst til að vinna með stjórn­völdum að því að bæta fjár­mála­kerfi lands­ins fremur en að standa vörð um óbreytt kerfi verð­trygg­ingar.

Í yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar um hús­næð­is­mál í tengslum við  kjara­samn­inga í lok maí síð­ast­lið­ins kemur fram að ráð­ist verði í átak með bygg­ingu allt að 2300 félags­legra leigu­í­búða á árunum 2016-2019, þó að hámarki 600 íbúðir á ári.

Það er jafn­mik­ill fjöldi íbúða og allar íbúðir á Egils­stöðum og Ísafirði sam­an­lagt. Ef stofnað væri sér­stakt sveit­ar­fé­lag um íbúð­irnar, sem stendur ekki til, yrði það 10.stærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins. 

Með nýju íbúð­unum verður einkum komið til móts við fólk í lægstu tveimur tekju­fimmt­ung­unum.  Þannig verður tekju­lágum fjöl­skyldum veittur aðgangur að ódýru og öruggu leigu­hús­næði.

Einnig er unnið að nýju hús­næð­is­bóta­kerfi sem felur í sér veru­lega auk­inn stuðn­ing við leigj­endur.

Virðu­legur for­seti
Framlög til Land­spít­al­ans hafa stór­auk­ist á kjör­tíma­bil­inu og munu gera það áfram á næsta ári.

En um leið er mik­il­vægt að gleyma því ekki að heil­brigð­is­þjón­ustan er stærri en bara Land­spít­al­inn og víða um land hafa heil­brigð­is­stofn­anir ekki enn end­ur­heimt fyrri styrk.

Við því munum við þurfa að bregð­ast. Jafn­framt þurfum við að halda áfram að fjölga hjúkr­un­ar­rýmum en nú er verið að ljúka við áætlun um bygg­ingu þriggja hjúkr­un­ar­heim­ila með um 200 ný hjúkr­un­ar­rými.

Heilsu­gæslan verður styrkt sem fyrsti við­komu­staður sjúk­linga og greiðslu­þátt­töku sjúk­linga verður breytt til að verja þá sér­stak­lega sem þurfa á mik­illi heil­brigð­is­þjón­ustu að halda þannig að þeir greiði ekk­ert umfram ákveðið hámark árlega.

Verið er að hrinda af stað stór­felldri aðgerð til að stytta biðlista eftir verk­föll og með kjara­samn­ingum og nið­ur­stöðu gerð­ar­dóms eru störf í íslenskri heil­brigð­is­þjón­ustu orðin sam­keppn­is­hæf við sam­bæri­leg störf ann­ars staðar á Norð­ur­löndum.

Skil­virkasta fjár­fest­ingin sem hægt er að ráð­ast í á sviði heil­brigð­is­þjón­ustu felst í for­vörnum. Það á alveg sér­stak­lega við hjá þjóð þar sem með­al­ald­ur­inn mun fara hækk­andi á kom­andi árum og ára­tugum.

Þess vegna vinnur ráð­herra­nefnd um lýð­heilsu nú að því að und­ir­búa og inn­leiða átak til að bæta heilsu og lífs­gæði lands­manna á öllum aldri.

En huga þarf að fleiru til að auka lífs­gæði í land­inu. Þar skiptir menntun sköpum.  Fram­tíð­ar­ár­angur okkar sem þjóðar mun velta á því hvernig til tekst með menntun, rann­sóknir og vís­indi.

Vís­bend­ingar eru um að Íslend­ingar hafi á und­an­förnum árum dreg­ist aftur úr sam­an­burð­ar­þjóðum á ýmsum sviðum mennta­mála, meðal ann­ars í grunn­menntun barna, í lestri og stærð­fræði.

Mennta­mála­ráð­herra og rík­is­stjórnin bregð­ast nú við þessu með átaki til að efla læsi og bæta árangur mennta­kerf­is­ins allt frá leik­skóla að háskóla.

Framlög til vís­inda, rann­sóknar- og þró­un­ar­starfs verða áfram stór­aukin en um leið mun ein­földun reglu­verks, jákvæðir hvatar í skatt­kerf­inu og aukin áhersla atvinnu­lífs­ins á nýsköpun verða til þess að ótal hug­myndir munu verða að veru­leika og skapa mikil verð­mæti fyrir sam­fé­lagið til fram­tíðar.

Um leið er unnið að því að styrkja rekstur helstu menn­ing­ar­stofn­ana eftir mik­inn nið­ur­skurð und­an­far­inna ára, ásamt því að efla sjóði á sviði menn­ingar og lista. Sér­stak­lega verður hugað að barna­menn­ingu.

Árangur íslenskra íþrótta­manna að und­an­förnu er stór­kost­legur og mik­il­vægt er að muna að hann er afrakstur þrot­lausrar vinnu íþrótta­mann­ana sjálfra, aðstand­enda þeirra, íþrótta­hreyf­ing­ar­innar og upp­bygg­ingar lið­inna ára.

Í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mál­ann verður stuðn­ingur við félaga­sam­tök á sviði íþrótta- og æsku­lýðs­mála auk­inn, sem og sjálf­boða­liða­hreyf­ingar á borð við björg­un­ar­sveit­irnar og önnur hjálp­ar­sam­tök.

Gíf­ur­legur vöxtur í ferða­þjón­ustu hefur ekki orðið til af sjálfum sér. Við þurfum að haga aðstæðum þannig að ávinn­ingur verði sem mestur af þess­ari stærstu útflutn­ings­grein lands­ins, og því að góður árangur nú skili sér í upp­bygg­ingu til fram­tíðar.

Þar má ekki ráða för ein­föld hagn­að­ar­von til skamms tíma með ódýrum og óaðl­að­andi bygg­ingum og nið­ur­troð­inni nátt­úru.

Unnið er að sam­ræmdri stefnu í ferða­málum. Fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða hefur verið efldur til muna og rík­is­stjórnin leggur áherslu á ein­földun reglu­verks fyrir grein­ina og atvinnu­lífið almennt.

Fjölmörg smærri fyr­ir­tæki hafa þurft að eyða óþarf­lega miklum tíma og fyr­ir­höfn í flókið reglu­verk. Slíkt dregur úr nýsköpun og skapar hættu á neð­an­jarð­ar­starf­semi.

Unnið er að því að koma upp einni gátt svo að hægt verði að sækja um öll leyfi og skila öllum gögnum á einum stað.

Þessar breyt­ingar munu ekki síður hafa jákvæð áhrif á stærri rekstur og iðnað. Það er reyndar sér­stakt ánægju­efni hversu mörg stór iðn­að­ar­verk­efni eru í burð­ar­liðnum á Íslandi  um þessar mundir. Fjár­festar, inn­lendir sem erlendir hafa öðl­ast mikla trú á fram­tíð lands­ins.

Til að verja þann árangur sem náðst hefur, og halda áfram að sækja fram, er mik­il­vægt að kunna að meta árang­ur­inn.

Íslend­ingar hafa náð árangri á mörgum sviðum en tvennt er nefnt umfram annað sem dæmi um svið þar sem Ísland getur veitt öðrum þjóðum leið­sögn.

Það eru umhverf­is­mál og sjáv­ar­út­vegur.

Nær öll íslensk orka er fram­leidd með umhverf­is­vænum, end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum.

Ekkert annað land kemst nálægt því að ná sama hlut­falli grænnar orku.

Nú er unnið að því að fjölga raf­magns­bílum og öðrum umhverf­is­vænum bif­reiðum og meira að segja skip gætu verið knúin raf­orku í fram­tíð­inni eins og Norð­ur­sigl­ing á Húsavík hefur þegar sýnt fram á.

Það skýtur því skökku við að hér á landi sé stundum talað eins og orku­fram­leiðsla sé synda­sam­leg, svo ekki sé minnst á iðnað sem nýtir orku.

Hitt sviðið er sjáv­ar­út­vegur.

Víðast hvar er óveiddur fiskur lít­ils virði og sjáv­ar­út­vegur í sam­an­burð­ar­lönd­unum rík­is­styrktur á sama tíma og fisk­stofnar eru ofveiddur.

Hér á landi hefur tek­ist að haga málum þannig að sjáv­ar­út­vegur skilar þjóð­ar­bú­inu veru­legum tekjum á sama tíma og stofn­arnir eru nýttir á sjálf­bæran hátt og greinin hefur orðið und­ir­staða mik­illar nýsköp­unar og fjöl­margra árang­urs­ríkra nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja.

Við­ur­kennum að Ísland stendur sig vel á sviðum umhverf­is­mála og sjáv­ar­út­vegs­mála og látum það verða okkur hvatn­ingu til að gera enn betur.

Ný nátt­úru­vend­ar­lög og  lands­skipu­lags­stefna og aukin fram­lög til skóg­ræktar og land­græðslu eru meðal þess sem mun hjálpa okkur að vernda umhverfið enn betur en áður.

Í sjáv­ar­út­vegi munum við leggja áherslu á að halda áfram að byggja upp fisk­stofna og stuðla að auk­inni verð­mæta­sköpun en vinna um leið gegn sam­þjöppun í grein­inni og því að við­halda störfum í byggð­ar­lögum um allt land.

Virðu­legur for­seti.
Vinnu nefndar um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar miðar vel og útlit er fyrir að sam­staða geti náðst um veiga­miklar og mik­il­vægar breyt­ingar -með ákvæði um auð­lindir og sögu­legar breyt­ingar í átt að stór­auknu beinu lýð­ræði.

Ég hvet til góðrar sam­vinnu allra flokka um fram­haldið.

Á haust­þingi er stefnt að fram­lögn frum­varps um stofnun milli­dóm­stigs með það að mark­miði að treysta dóms­kerfi og tryggja réttar­ör­yggi.

Á næstu vikum birt­ist jafn­framt nýtt hags­muna­mat vegna tæki­færa og úrlausn­ar­efna á norð­ur­slóðum.

Gríð­ar­lega miklu máli skiptir að okkur auðn­ist að nýta vel þau tæki­færi sem fyrir okkur liggja vegna þró­un­ar­innar þar. 

Góðir lands­menn.
Margt gengur vel á Íslandi þessa dag­ana og við höfum ástæðu til að vera bjart­sýn á fram­tíð­ina en það þýðir líka að við höfum bæði mögu­leika á, og skyldu til, að láta gott af okkur leiða fyrir þjóðir sem búa við kröpp kjör.

Stríðið í Sýrlandi hefur nú staðið í fjögur ár og talið er að meira en helm­ingur lands­manna hafi yfir­gefið heim­ili sín, eða um 12 millj­ónir manna.

Alls er talið að í heim­inum séu um 60 millj­ónir flótta­manna. Þótt straumur flótta­manna til Evrópu sé ekki ný-til­kom­inn hefur hann auk­ist hratt að und­an­förnu og um leið hefur vit­und fólks og umræða um vand­ann auk­ist til mik­illa muna.

Íslensk stjórn­völd telja gríð­ar­lega mik­il­vægt að við og aðrar þjóðir bregð­umst eins vel við þessum vanda og kostur er.

Þess vegna var ráð­herra­nefnd um mál­efni flótta­manna og inn­flytj­enda komið á til að sam­ræma vinnu ráðu­neyta og stofn­ana svo að hún megi verða sem árang­urs­rík­ust.

Við höfum líka séð mikla góð­vild og hjálp­fýsi almenn­ings á Íslandi og víða um lönd, og mik­inn vilja til að láta gott af sér leiða. Það skiptir miklu máli.

Vandinn er svo stór að það mun þurfa alþjóð­lega sam­vinnu til að bregð­ast við honum. Þetta er alþjóð­legt vanda­mál og stjórn­völd í ólíkum löndum þurfa að koma sér saman um við­brögð, stefnu og mark­mið.

Úrlausn­ar­efnið er gríð­ar­lega umfangs­mikið. Við munum þurfa að auka fram­lög til mála­flokks­ins umtals­vert og aðlaga und­ir­bún­ings­vinnu þró­un­inni að und­an­förnu, en við þurfum líka að meta hluti á borð við hvort hægt sé að ein­falda ætt­leið­ingu barna frá Sýrlandi og öðrum stríðs­hrjáðum löndum. Þúsundir sýr­lenskra barna eru nú mun­að­ar­laus og búa við erf­iðar aðstæður. 

Í öllum sínum aðgerðum verða Ísland og önnur Evr­ópu­lönd að gæta þess að senda ekki út þau skila­boð að þau aðstoði fólk ein­göngu ef það leitar á náðir glæpa­manna og hættir lífi sínu til að kom­ast til Evrópu.

Þess vegna verðum við líka að huga að þeim mikla fjölda flótta­fólks sem býr við afar erf­iðar aðstæður í lönd­unum í kringum Sýrland.

Við erum eflaust öll sam­mála um að við eigum að leggja áherslu á að nýta mögu­leika okkar til að fram­kvæma sem best skyldu okkar og vilja til að aðstoða fólk í neyð eftir bestu getu.

Virðu­legi for­seti.
Ísland er gott land. Það er betra í dag en í gær og verður enn betra á morgun. Lífskjör batna hratt. Efna­hags­legur jöfn­uður er hvergi meiri og hann er enn að aukast. Við búum við öryggi í fal­legu, hreinu og heil­næmu umhverfi. Með hverjum degi eykst nýsköpun og ný fram­sækin fyr­ir­tæki eru stofnuð. Ríkið leit­ast líka við að bæta rekstur sinn og þjón­usta borg­ar­ana betur og um leið viljum við aðstoða aðrar þjóðir í neyð.

Á Íslandi blasa hvar­vetna við upp­bygg­ing og fram­farir. Við stöndum enn frammi fyrir stórum úrlausn­ar­efnum. En reynslan sýnir að við getum leyst vanda­málin og nýtt tæki­færin. Til þess að okkur auðn­ist að gera það þurfum við kunna að meta það sem vel hefur gengið og láta það verða okkur hvatn­ingu til að gera enn betur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár