„Þú getur keyrt helvíti mikið fyrir tólf milljónir“

Hákon Sæmunds­son keypti sér nýverið ein­býl­is­hús á Ólafs­firði. Fast­eigna­sali seg­ist finna fyrir auk­inni ásókn ungs fólks í hús­næði í sveit­ar­fé­lög­unum í kringum Akureyri. Hákon keyrir í einn og hálfan tíma á dag til og frá vinnu.

„Þú getur keyrt helvíti mikið fyrir tólf milljónir“
Keyrir frá Ólafs­firði Hákon Sæmunds­son keyrir í einn og hálfan tíma á dag til vinnu á Akureyri. Hann segir lang­keyrsl­una mun skárri en umferð­ar­þung­ann í Reykja­vík.

„Mörgum finnst þetta mik­ill tími sem fer í keyrslu, en ég hef rætt við smið í Reykja­vík sem seg­ist vera í 45 mín­útur á leið­inni heim úr vinn­unni,“ segir Hákon Sæmunds­son, mat­reiðslu­maður á Bautanum á Akureyri. Hann keypti sér nýverið fast­eign á Ólafs­firði og keyrir til vinnu á hverjum degi. Ferða­lagið tekur 45 mín­útur, eða einn og hálfan tíma á dag. „Þetta er allt öðru­vísi keyrsla. Hann pirrar sig á næsta manni á rauðu ljósi á meðan ég nýt nátt­úr­unnar, horfi í kringum mig og slappa af á meðan ég keyri heim,” segir Hákon. Þá bendir hann á að tím­inn sem fari nú í ferða­lag hafi áður farið í að púsla saman deg­inum á Akureyri. Þau hjónin eigi þrjú börn og það fjórða sé á leið­inni. Mikill tími hafi því farið í keyrlu á milli dag­vist­unar, skóla og tóm­stunda. „Á Ólafs­firði býðst börnum til dæmis leik­skóla­pláss frá tólf mán­aða aldri og vega­lengd­irnar eru mun styttri.“ 

Hákon segir að þau séu fyrst og fremst að sækja í nálægð við fjöl­skyldu þó svo að lægra fast­eigna­verð hafi verið ákveð­inn vendi­punktur í ákvörð­un­inni um að flytja. Fjöl­skyldan flytur úr 177 fer­metra ein­býl­is­húsi á Akur­eyrir í 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár