Þingmaður framsóknar á fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

Alls eru 25 Íslend­ingar á fund­inum, en aðeins tveir karlar. Flestir eru full­trúar félaga­sam­taka, borg­ar­innar og lög­reglu­yf­ir­valda. Þor­steinn Sæmunds­son fór ásamt maka og greiddi ferð­ina úr eigin vasa.

Þingmaður framsóknar á fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

Ferð Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, ásamt íslenskri sendi­nefnd, til New York, á fund Kvenna­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna (SÞ) hefur vakið umtal vegna fjölda þeirra sem fund­inn sækja en alls fóru tutt­ugu og fimm manns frá Íslandi.  

Á meðal þeirra sem fund­inn sækja eru full­trúar félaga­sam­taka auk full­trúa borg­ar­innar og lög­reglu­yf­ir­valda. Aðeins tveir karlar eru með í för og greindi vísir.is frá því í gær að þeir væru jafn­framt í fylgd maka sinna. Þetta eru þeir Matthías Imsland, aðstoða­maður ráð­herra auk þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, Þor­steins Sæmunds­sonar.

Athygli vekur að Þor­steinn og eig­in­kona hans eru eina fólkið innan sendi­nefnd­ar­innar sem ekki hafa neina beina teng­ingu við mála­flokk­inn, en Alþingi sendi enga full­trúa á sínum vegum. Stundin hafði uppá Þor­steini nú rétt í þessu og kann­aði hver kæmi að greiðslu ferðar hans, ef ekki þingið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár