„Það er búið að henda rammaáætlun“

Síðari umræða um til­lögu atvinnu­vega­nefndar um að færa fimm virkj­ana­kosti úr bið­flokki í nýt­ing­ar­flokk fer fram á Alþingi í dag.

„Það er búið að henda rammaáætlun“
Guð­bjartur Hann­es­son

„Það er búið að henda ramma­á­ætlun. Hún er bara farin,“ sagði Guð­bjartur Hann­es­son, þing­maður Sam­fylk­ingar rétt í þessu en nú stendur yfir á Alþingi síð­ari umræða um áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða. Lagt er til að alls fimm virkj­ana­kostir verði færðir úr bið­flokki ramma­á­ætl­unar í nýt­ing­ar­flokk, en þetta eru Hvamms­virkjun, Holta­virkjun, Urriða­foss­virkjun, Skrokköldu­virkjun og Haga­vatns­virkjun. Stjórn­ar­and­staðan lagði í upp­hafi þings fram til­lögu um að taka málið af dag­skrá en sú til­laga var felld. Einar Kr. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, byrj­aði á því að kynna úrskurð sinn, byggðan á lög­fræði­á­liti, um að málið stæð­ist lög. Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar brugð­ust illa við og sögðu ekki við­un­andi að lesið sé upp álit við upp­haf umræð­unnar án þess að stjórn­ar­and­stöð­unni gæf­ist færi til að taka álitið til umfjöll­unar. „Algjör skrípa­leikur,“ sagði Björt Ólafs­dóttir þing­maður Bjartrar fram­tíðar. 

Báðu um flýtimeðferð á ákveðnum virkjanakostum

Forsaga máls­ins er sú að í júní 2013, eftir að ný rík­is­stjórn tók við, fékk verk­efna­stjórn um ramma­á­ætlun sendan við­auka við erind­is­bréf sitt þar sem verk­efna­stjórn var beðin um setja átta til­tekna virkj­ana­kosti í ákveðna flýti­með­ferð. Þar á meðal voru þessir fimm virkj­ana­kostir sem eru til umræðu á Alþingi í dag. Hins vegar tókst verk­efna­stjórn ekki að ljúka þess­ari flýti­með­ferð heldur afgreiddi ein­ungis Hvamms­virkjun. Samkvæmt til­lög­unni átti að færa Hvamms­virkjun yfir í nýt­ing­ar­flokk, en að fjalla þyrfti nánar um aðrar virkj­ana­hug­myndir. „Tillagan um Hvamms­virkjun er í takt við það sem við vorum búin að leggja til, en hitt ekki,“ segir Stefán.

Í kjöl­farið lagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, fram til­lögu um að færa Hvamms­virkjun úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk. Fyrri umræða um málið á Alþingi snéri því ein­vörð­ungu um Hvamms­virkjun en Katrín Júl­í­us­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, viðr­aði strax efa­semdir sínar um að svo yrði enda hafi alltaf verið talað um virkj­an­irnar þrjár í neðri hluta Þjórsár sem seríu. 

Gengur gegn tilgangi laganna

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason Formaður verk­efna­stjórnar um ramma­á­ætlun telur að breyt­ing­ar­til­lagan fari gegn til­gangi lag­anna.

Málinu var síðan vísað til atvinnu­vega­nefndar og skil­aði meiri hluti nefnd­ar­innar áliti ásamt breyt­ing­ar­til­lögu í lok mars. Meiri hlut­inn lagði þá til að fjórir virkj­un­ar­kostir til við­bótar við Hvamms­virkjun fær­ist í nýt­ing­ar­flokk, það er Haga­vatns­virkjun, Holta­virkjun, Urriða­foss­virkjun og Skrokköldu­virkjun. 

Hvamms­virkjun, Urriða­foss­virkjun, Skrokköldu­virkjun og  Holta­virkjun voru settar í nýt­ing­ar­flokk af verk­efna­stjórn ann­ars áfanga ramma­á­ætl­unar en því var breytt í með­förum umhverf­is­ráðu­neytis og Alþingis því talin var þörf á að skoða ákveðna þætti betur. Haga­vatns­virkjun hefur hins vegar aldrei verið í nýt­ing­ar­flokki. „Ég tel að það að leggja til að Haga­vatns­virkjun fari í nýt­ing­ar­flokk gangi gegn til­gangi lag­anna um ramma­á­ætlun því umfjöllun um hana hefur sann­ar­lega aldrei lokið í verk­efna­stjórn,“ segir Stefán Gíslason for­maður verk­efn­is­stjórnar í sam­tali við Stundina.  

Afgreiðsla nefnd­ar­innar vakti einnig hörð við­brögð meðal þing­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar. Svandís Svav­ars­dóttir þing­maður Vinstri grænna, og fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, sagði til­lög­una óþing­tæka því hún byggir ekki á gild­andi lögum um ramma­á­ætlun. „Til að til­laga af þessu tagi fái hér úrvinnslu og afgreiðslu þarf stjórn­ar­meiri­hlut­inn að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögu á lögum um ramma­á­ætlun og breyta ferl­inu því að þetta byggir ekki á gild­andi lögum,“ sagði hún meðal ann­ars. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, tók í sama streng. „Það hlýtur að vera eðli­leg krafa þings­ins að það liggi fyrir og verði lagt fram lög­fræði­á­lit hvort þessi afgreiðsla stand­ist lög um ramma­á­ætlun. Það er ekki hægt að ljúka mál­inu meðan þessi efi er uppi. Mér er til efs að atvinnu­vega­nefnd hafi aflað full­nægj­andi gagna til að sýna fram á að þetta stand­ist lög,“ sagði hún. 

Jón Gunn­ars­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar, sagði hins vegar í sam­tali við RÚV að verið væri að fylgja máls­með­ferð sem gert væri ráð fyrir í lögum. Alþing­is­menn hafi fulla heim­ild til þess sam­kvæmt lögum að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögur um mál.

Nefndarálit byggt á áliti eins fulltrúa

Nefnd­ar­á­lit meiri hluta atvinnu­vega­nefndar, sem lagði til að fjórir virkj­un­ar­kostir til við­bótar við Hvamms­virkjun fær­ist í nýt­ing­ar­flokk, er byggt á áliti eins full­trúa í verk­efna­stjórn um ramma­á­ætlun. Í nefnd­ar­á­lit­inu kemur fram að ástæðan fyrir því að virkj­ana­kostir í neðri hluta Þjórsár voru færðir í bið­flokk á sínum tíma voru upp­lýs­ingar um nei­kvæð áhrif á laxa­stofn árinnar. „Nið­ur­staða verk­efn­is­stjórnar nú var ekki ein­róma en einn full­trúi í henni lagði til að allar þrjár virkj­an­irnar í neðri hluta Þjórsár færð­ust í nýt­ing­ar­flokk,“ segir orð­rétt í álit­inu. Þessi eini full­trúi verk­efn­is­stjórnar er Elín R. Líndal sem situr í stjórn­inni fyrir hönd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga. Elín er jafn­framt fyrr­ver­andi vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Forsvars ehf. en Kastljós fjall­aði ítar­lega um fyr­ir­tækið fyrr á þessu ári. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár