Bjarni Benediktsson neitaði einn að svara spurningunum

Formenn eða for­svars­menn allra stjórn­mála­flokka í fram­boði til Alþingis svör­uðu spurn­ingum Stund­ar­innar, nema Bjarni Bene­dikts­son, sem hafn­aði því að svara spurn­ing­unum. Stundin birtir því spurn­ing­arnar án svara.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var eini for­svars­maður stjórn­mála­flokks í fram­boði til Alþingis sem neit­aði að svara spurn­ingum Stund­ar­innar í kosn­inga­um­fjöllun blaðs­ins sem kom út í dag. 

Stundin sendi spurn­ingar á for­menn allra flokka sem nú bjóða fram til Alþingis. Allir for­menn tóku vel í erindi Stund­ar­innar og svör­uðu spurn­ing­unum, nema Bjarni, sem hafn­aði því að svara spurn­ingum Stund­ar­innar.

Svör þess efnis bár­ust frá Svan­hildi Hólm Vals­dóttur, aðstoð­ar­manni Bjarna. Hún svar­aði ekki spurn­ingu um hverjar skýr­ing­arnar væru. Stundin bauð Bjarna að gera athuga­semdir við spurn­ing­arnar, eða svara ein­ungis hluta þeirra, þótt allar yrðu birtar, en því til­boði var ekki tekið. Því birt­ast í umfjöllun Stund­ar­innar svör frá for­mönnum eða for­svars­mönnum allra flokka í fram­boði til Alþingis, nema Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Lesa má spurn­ingar og svör til ann­arra flokks­for­manna í Stund­inni. Spurn­ing­arnar voru tví­skiptar. Hluta spurn­ing­anna var beint til allra for­manna og annar hluti þeirra sam­an­stóð af gagn­rýnum, sér­tækum spurn­ingum um feril og stefnu við­kom­andi flokka.

Að auki voru flokk­arnir beðnir að svara nítján spurn­ingum um grund­vall­ar­stefnu­mál neit­andi eða ját­andi. Allir flokkar svör­uðu þeim fyrir utan Sjálf­stæð­is­flokk­inn. 

Sértækar spurningar Stundarinnar til formanns Sjálfstæðisflokksins

  • Hvernig tel­urðu Sjálf­stæð­is­flokk­inn hafa stuðlað að efna­hags­bata á Íslandi síð­asta kjör­tíma­bilið?
  • Ertu til­bú­inn til að stuðla að því að haldin verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um áfram­hald­andi aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið ef þú verður áfram í rík­is­stjórn?
  • Hvað þyrfti til þess að þú myndir fara í stjórn­ar­sam­starf með Pírötum?
  • Sérðu eftir því að hafa staðið með samn­inga­leið­inni í Icesave-mál­inu?
  • Þótti þér Davíð Oddsson standa sig vel sem seðla­banka­stjóri?
  • Hvers vegna er lögð svona lítil áhersla á fjár­fest­ingu á vegum opin­berra aðila í rík­is­fjár­mála­á­ætlun þinni?
  • Hvers vegna vilduð þið hækka skatt á mat úr 7 í 11 pró­sent, þegar annar skattur er lækk­aður? Kemur til greina að lækka hann aftur?
  • Hefurðu þá skoðun að verð á sykruðum matælum hafi ekki áhrif á neyslu þeirra, sam­an­ber rök­stuðn­ingur í frum­varpi sem fól í sér afnám syk­ur­skatts?
  • Hvers vegna hefur þú ekki, á sama hátt og Sig­mundur Davíð, þurft að bera ábyrgð á því að hafa bæði átt félag í aflandseyjum og sagt rangt til um það?
  • Finnst þér í lagi að ráð­herrar eigi eða hafi átt aflands­fé­lög? 
  • Aðilar tengdir þér fjöl­skyldu­böndum hafa á kjör­tíma­bil­inu hlotið rík­is­styrki og skattaí­viln­anir, þegar kemur að verk­smiðju Thorsil, og fengið for­gang að kaupum á hlut rík­is­ins í Borgun. Hefurðu engar áhyggjur af því að fjöl­skyldu- og hags­muna­tengsl þín skapi van­traust?
  • Hafa fjöl­skyldu­tengsl haft áhrif á þinn póli­tíska feril? 
  • Árið 2009 vild­irðu taka upp evru með hjálp Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Hvers vegna viltu núna halda krón­unni?
  • Telur þú að ráð­herra sem stað­inn er að því að leyna hags­muna­á­rekstrum ætti að segja af sér?
  • Finnst þér að rík­is­stjórnin eigi að virða nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu?
  • Í for­ystu­sæt­inu á RÚV sagð­istu vilja aukna einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu. Hvernig?
  • Nú hefur þú kvartað undan fjöl­miðlaum­hverf­inu hér á landi, munt þú beita þér fyrir því að styrkja stöðu fjöl­miðla?
  • Af hverju skrif­aðir þú ekki undir mót­mæla­bréf til pólska þings­ins vegna fyr­ir­hug­aðrar laga­setn­ingar um skil­yrð­is­laust bann við fóst­ur­eyð­ingum þar í landi? 
  • Finnst þér rétt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé í Evr­ópu­sam­tökum íhalds­manna og umbóta­sinna (AECR)?
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár