Fjármálaráðherra hefur setið á skýrslu um skattaskjólseignir frá því fyrir kosningar

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur enn ekki kynnt Alþingi skýrslu um umfang skatta­skjóls­eigna Íslend­inga þrátt fyrir að hún hafi verið til­búin tæpum mán­uði fyrir kosn­ingar meðan þing var enn að störfum. Bjarni kemur sjálfur fyrir í skatta­skjóls­gögnum.

Fjármálaráðherra hefur setið á skýrslu um skattaskjólseignir frá því fyrir kosningar

Skýrsla um umfang skatta­skjóls­eigna Íslend­inga hefur legið fyrir í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu frá því í byrjun októ­ber, um mán­uði áður en gengið var til þing­kosn­inga. Skýrslan hefur þó hvorki verið kynnt Alþingi né almenn­ingi.

Kjarninn greinir frá mál­inu í dag og segir skýrsl­una til­búna og þegar hafa verið kynnta innan ráðu­neyt­is­ins. Þing var að störfum allt til 13. októ­ber, en Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kynnti skýrsl­una ekki undir lok þess þings né þegar þing kom aftur saman í des­em­ber. Stundin hefur sent fjár­mála­ráðu­neyt­inu upp­lýs­inga­beiðni og óskað eftir aðgangi að skýrsl­unni auk skýr­inga á því að hún hafi ekki verið birt.

Um er að ræða afrakst­ur­inn af vinnu sér­staks starfs­hóps sem fjár­mála­ráð­herra skip­aði eftir að mál­efni skatta­skjóla komust í hámæli. Hópnum var falið að meta umfang fjár­magnstil­færslna og eigna­um­sýslu Íslend­inga á aflands­svæðum. 

Eins og Panama-skjölin vörp­uðu ljósi á átti fjár­mála­ráð­herra sjálfur hlut í aflands­fé­lagi og jafn­framt Benedikt Sveins­son, faðir hans. Báðir eru frændur og fyrr­ver­andi við­skipta­fé­lagar Bene­dikts Jóhann­es­sonar, for­manns Við­reisnar sem útlit er fyrir að verði næsti fjár­mála­ráð­herra. 

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata sem situr í fjár­laga­nefnd fyrir hönd flokks­ins, tjáir sig um málið á Facebook og veltir því upp hvort leyndin yfir skýrsl­unni kunni að hafa haft áhrif á úrslit þing­kosn­ing­anna þann 29. októ­ber.

„Jæja, skyldi þetta vera eitt­hvað sem hefði haft áhrif á það hvernig fólk hag­aði atkvæði sínu? Ef svo, þá er Alþingi mögu­lega umboðs­laust. Aftur,“ skrifar hann og bætir við: „Af hverju? Upp­lýs­ing­arnar liggja fyrir tæpum mán­uði fyrir kosn­ingar en ein­hver tekur ákvörðun um að geyma skýrsl­una. Ef við­kom­andi er núver­andi fjár­mála­ráð­herra þá myndi ég telja það vera til­efni til van­trausts þar sem hann hafði mögu­lega mik­inn hag af því að upp­lýs­ing­arnar færu ekki í umræðu fyrir kosn­ingar.“

Bjarni Bene­dikts­son átti þriðj­ungs­hlut í aflands­fé­lag­inu Falson & Co á Seychelles-eyjum fyrir hrun og geymdi þar 40 millj­ónir króna vegna íbúða­fjár­fest­inga erlendis. Hann gaf skatta­yf­ir­völdum þær röngu upp­lýs­ingar að félagið væri skráð í Lúx­em­borg en full­yrti síðar í við­tali að hann hefði ekki vitað betur á þeim tíma.

Falson & Co var aldrei skráð í hags­muna­skrá Alþingis og lá í þagn­ar­gildi á þeim tíma sem Bjarni átti aðkomu að máli er varð­aði kaup skatt­rann­sókn­ar­stjóra á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga. Í þessum gögnum var meðal ann­ars að finna upp­lýs­ingar um Bjarna sjálfan og við­skipta­fé­laga hans og föður, Benedikt Sveins­son.

Eins og Stundin hefur fjallað ítar­lega um setti ráðu­neyti Bjarna kaupum á gögn­unum skil­yrði sem skatt­rann­sókn­ar­stjóra reynd­ist erfitt að upp­fylla. Fyrir vikið var ekki hægt að hafa eins hraðar hendur og þing­menn og margir innan stjórn­sýsl­unnar hefðu viljað. Bjarni gaf engu að síður rang­lega í skyn í fjöl­miðlum að það væri skatt­rann­sókn­ar­stjóri sem drægi lapp­irnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skattamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár