Sigmundur hneykslast á umfjöllun RÚV um Framsóknarflokkinn

Formanni Fram­sókn­ar­flokks­ins þykir Rík­is­út­varpið sýna stöðu hans og mögu­legu flokks­þingi flokks­ins of mik­inn áhuga og undr­ast að athyglin bein­ist ekki að „ein­stökum árangri“ flokks­ins og fram­tíð­ar­sigrum.

Sigmundur hneykslast á umfjöllun RÚV um Framsóknarflokkinn
Sig­mundur Davíð Fyrr­ver­andi spyrill RÚV hefur gert ítrek­aðar athuga­semdir við umfjöllun RÚV um stöðu hans í stjórn­málum. Mynd: Kristinn Magnússon

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kvartar undan tíðum umfjöll­unum Rík­is­út­varps­ins af stöðu hans sem for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og mögu­legu flokks­þingi á Facebook-síðu sinni í dag. 

Hann birtir sam­setta mynd af úrklippum af frétta­vef Rík­is­tú­varps­ins máli sínu til stuðn­ings og gerir athuga­semd við að áhugi á flokknum bein­ist ekki að „ein­stökum árangri“ hans.

„Sumir virð­ast hafa fengið stór­kost­legan áhuga á funda­dag­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins. Í gær­kvöldi var RÚV með beina útsend­ingu í kvöld­fréttum og 10-fréttum í sjón­varpi frá auka­kjör­dæm­is­þingi kjör­dæm­is­sam­bands fram­sókn­ar­manna í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Reyndar var ekki bein útsend­ing frá fund­inum heldur frá gang­stétt­inni fyrir utan hús í Linda­hverfi í Kópavogi þar sem fund­ur­inn fór fram,“ skrifar Sig­mundur.

Sig­mundur virð­ist telja að umfjöllun um Fram­sókn­ar­flokk­inn sé byggð á röngum for­sendum og að hún ætti rétti­lega að bein­ast að jákvæðum atriðum.

Úrklippur Sig­mundarSig­mundur hefur klippt út fréttir RÚV um Fram­sókn­ar­flokk­inn til að sýna fram á athuga­vert frétta­mat RÚV á flokknum.

 Áhuginn beinist ekki að einstökum árangri 

Hann vekur athygli á því að áhugi á Fram­sókn­ar­flokknum teng­ist ekki alltaf áhug­anum á „ein­stökum árangri“ flokks­ins og „hvernig sé best að vinna nýja sigra“.

„Í Framsókn er mik­ill áhugi á að yfir­fara hina geysi­sterku mál­efna­stöðu flokks­ins og hvernig sé best að vinna nýja sigra á grund­velli ein­staks árang­urs síð­ustu ára. Stundum læð­ist þó að manni sá grunur að sér­stakir áhuga­menn um flokks­þing utan flokks­ins séu áhuga­sam­ari um eitt­hvað annað.“

Þá undr­ast hann að ekki sé meiri athygli á flokks­þing ann­arra flokka.

„Hvernig gengur ann­ars und­ir­bún­ingur flokks­þinga og lands­funda í öðrum flokkum? Ætli það verði ekki farið yfir það í beinni í fréttum í kvöld og næstu daga.“

Ekki hefur verið ákveðið hvenær flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins verður haldið, og þar með hvort kosið verði um nýjan for­mann fyrir kosn­ingar eða ekki. Sig­mundur Davíð hefur lýst því yfir að hann muni halda áfram að vera for­maður flokks­ins þrátt fyrir að hafa sagt af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far þess að ósann­indi um stöðu hans í aflands­fé­lagi og um kröfur gegn þrota­búum íslensku bank­anna komu í ljós í frétta­skýr­ingu um leka frá pana­ma­ísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca.

„Álitamál“ hvort flokksþing sé gott fyrir flokkinn

Sig­mundur sendir þau skila­boð að best sé fyrir hann sjálfan ef haldið verður flokks­þing fyrir kosn­ingar, en að það sé flokknum í hag að haldið sé flokks­þing eftir kosn­ingar, út frá því að ann­ars færi athyglin í kringum flokks­þingið í annað en árangur og sterka mál­efna­stöðu flokks­ins. Í því felst að best sé fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn að hann leiði flokk­inn áfram í kosn­ing­unum.

„Sumir virð­ast gefa í skyn að það sé betra fyrir for­mann flokks að hafa flokks­þing eftir kosn­ingar en fyrir. Það ber ekki endi­lega vott um mik­inn póli­tískan skiln­ing. Aug­ljós­lega er best fyrir for­mann sem mæti málið ein­ungis út frá eigin stöðu að halda flokks­þing fyrir kosn­ingar og fara í kosn­inga­bar­áttu með nýend­ur­nýjað umboð fremur en að fara í kosn­ingar (sér­stak­lega í miklu óvissu­á­standi eins og núna) og mæta svo á flokks­þing í fram­hald­inu. Það á alveg sér­stak­lega við þegar annað for­ystu­fólk í sama flokki hefur gefið fyr­ir­heit um að það ætli ekki að fara gegn for­mann­inum. Það er hins vegar meira álita­mál hvort það hentar flokknum að verja kröftum og fjár­magni í flokks­þing rétt fyrir kosn­ingar, sér­stak­lega ef grunur reyn­ist réttur um það að áhuga­fólk um flokks­þing utan flokks hafi tak­mark­aðan áhuga á árangri og mál­efna­vinnu flokks­ins.“

Sig­mundur hefur ítrekað gert athuga­semdir við umfjöllun RÚV um flokk­inn og hann. Strax um mán­uði eftir að hann tók við völdum skrif­aði hann grein­ina „Fyrsti mán­uður loft­árása“ um það sem hann taldi vera ómak­legar árásir á hann, flokk­inn og rík­is­stjórn­ina: „Nú stendur yfir und­ir­skrifta­söfnun gegn því að gerðar verði breyt­ingar á hinum ófram­kvæm­an­legu og skað­legu veiði­gjalda­lögum síð­ustu rík­is­stjórnar. Minnugur þess hvernig gekk að fá suma fjöl­miðla til að segja frá því að fram færi und­ir­skrifta­söfnun gegn Icesave-samn­ing­unum er athygli vert að fylgj­ast með umfjöll­un­inni um und­ir­skrifta­söfnun gegn því að núver­andi rík­is­stjórn fram­fylgi stefnu sinni. Engu er lík­ara en að hafið sé söfn­unar­á­tak ald­ar­innar í þágu óum­deilds mál­staðar. Á fyrstu dögum und­ir­skrifta­söfn­un­ar­innar sagði Rík­is­út­varpið tugi frétta af söfn­un­inni. Í frétta­tíma eftir frétta­tíma voru birtar nýj­ustu tölur og rætt við réttu sér­fræð­ing­ana og for­ystu­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar. Nokkrum sinnum fjall­aði fyrsta frétt í aðal­frétta­tímum RÚV um að und­ir­skriftum fjölg­aði enn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár