Lýsir eineltishegðun á fundum með Vigdísi Hauksdóttur

Davíð Stef­áns­son, fyrr­ver­andi vara­þing­maður vinstri grænna, lýsir því að Vigdís Hauks­dóttir hafi stundað að gera lítið úr nær­stöddum á nefnd­ar­fundum. Vigdís kvartar undan and­legu ofbeldi gegn sér. „Hneyksli“ að hún sé for­maður valda­mestu nefndar lands­ins, segir Davíð.

Lýsir eineltishegðun á fundum með Vigdísi Hauksdóttur
Davíð Stef­áns­son Var vara­þing­maður VG á síð­asta kjör­tíma­bili og sat fundi með Vigdísi Hauks­dóttur. Mynd: Davíð Stefánsson

Fyrr­ver­andi vara­þing­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs, Davíð Stef­áns­son, segir að Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, hegði sér „ein­elt­is­lega“ gagn­vart nær­stöddum á fundum Alþingis. 

Davíð lýsti hegðun hennar á fundum á Facebook-síðu sinni í dag í kjöl­far yfir­lýs­inga Vigdísar um and­legt ofbeldi gegn sér, í til­efni af gagn­rýni for­stjóra Land­spít­al­ans á störf nefnd­ar­innar. „Það er algert hneyksli að þessi kona hafi fengið að vera for­maður í valda­mestu þing­nefnd lands­ins,“ segir hann.

Davíð segir að sér blöskri yfir­lýs­ing Vigdísar. „Oft hefur mér blöskrað en aldrei eins og núna, þegar hún talar um and­legt ofbeldi af hálfu starfs­manna Land­spít­al­ans vegna þess að þeir eru ítrekað að biðja um pen­ing.“

Hnussar, stynur, dæsir og ranghvolfir augunum

Hann lýsir því að Vigdís hafi gert lítið úr nær­stöddum, jafn­vel gestum. „Mér hefur blöskrað vegna þess að eng­inn þing­maður sem ég kynnt­ist á þessum tíma hegð­aði sér jafn óþægi­lega, fárán­lega og ein­elt­is­lega eins og Vigdís Hauks­dóttir. Ímyndum okkur níu manna þing­nefnd. Þar situr fólk í hálf­hring ásamt rit­ara nefndar eða starfs­manni. Yfir­leitt voru þetta fremur ágætir fundir og eig­in­lega það skásta við þing­set­una alla. En á hverjum ein­asta fundi sem ég sat með Vigdísi not­aði hún allar mögu­legar leiðir til að gera lítið úr við­stöddum, þeim sem átti orðið hverju sinni og skoð­unum ann­arra nefnd­ar­manna ... eða jafn­vel gesta. Hún hnuss­aði hástöfum, stundi, dæsti, fórn­aði höndum, greip fram í, rang­hvolfdi augum, hækk­aði mál­róm­inn þannig að hún beitti sér og trufl­aði ... hún not­aði öll þessi skít­a­trikk sem fantar nota til að gera nær­stadda óró­lega. Og það tókst. Því miður. Hún náði að stuða alveg fárán­lega mikið. Ég sá að vísu á reynd­ari þing­mönnum að þeir leiddu hana að mestu leyti hjá sér. En stað­reyndin er sú að félags­legur fantur nær oft undir skinnið á fólki á lúmskan hátt.“

Vigdís Hauksdóttir
Vigdís Hauks­dóttir Formaður fjár­laga­nefndar Alþingis kvartar undan and­legu ofbeldi í kjöl­far umkvört­unar for­stjóra Land­spít­al­ans um fram­komu hennar.

Vonbrigði með framkomu forystunnar

Vigdís kvart­aði undan and­legu ofbeldi eftir að Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, var­aði við því að fé skorti til óbreytts rekstrar Land­spít­al­ans og kvart­aði undan „fram­komu for­ystu fjár­laga­nefndar“. „Framkoma for­ystu fjár­laga­nefndar og skiln­ings­leysið á þörfum þeirrar grunn­þjón­ustu fyrir almenn­ing sem sjúkra­húsið veitir olli mér von­brigðum,“ skrif­aði Páll í pistli á vef­síðu spít­al­ans.

„Við lát­um ekki svona and­legt of­beldi ná til okk­ar“

Vigdís svar­aði með því að kvarta undan því að sótt væri að nefnd­inni úr öllum áttum. „Við skul­um at­huga að það er verið að sækja að okk­ur úr öll­um átt­um. En við lát­um ekki svona and­legt of­beldi ná til okk­ar.“

Vill inngrip 

Davíð Stef­áns­son lýkur lýs­ingum sínum á hegðun for­manns fjár­laga­nefndar með áskorun á for­ystu rík­is­stjórn­ar­innar um að grípa inn í.

„Það er algert hneyksli að þessi kona hafi fengið að vera for­maður í valda­mestu þing­nefnd lands­ins jafn lengi og raun ber vitni.
Ábyrgð­ina á því bera stjórn­ar­herr­arnir, SDG og BB. Þeim er í lófa lagið að setja hana til hliðar, því lík­lega vita þeir vel sjálfir að hún er óhæf. En lík­lega vita þeir líka að þeim yrði ekki líft eftir það. Eða hver vill eiga heift og hefnd Vigdísar Hauks­dóttur vof­andi yfir sér? Getum við ekki gert eitt­hvað? Það er nefni­lega löngu komið meira en nóg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár