Segir samstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins „óhugsandi“

Svandís Svav­ars­dóttir, odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, segir alvana­legt að miðju­flokkar setji af stað orðróm um að vinstri­flokk­ur­inn á hverjum tíma ætli í sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Segir samstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins „óhugsandi“

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna og odd­viti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, segir að stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé „óhugs­andi við núver­andi kring­um­stæður“. Alvana­legt sé að miðju­flokkar setji af stað orðróm um að vinstri­flokk­ur­inn á hverjum tíma ætli í sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

„Slík her­ferð er nú farin af stað í þessum anda. Vera kann að sam­starf af þessu tagi hafi ein­hvern tíma verið á dag­skrá hér fyrr á árum. Hins vegar er það óhugs­andi við núver­andi kring­um­stæður eftir aðdrag­anda kosn­ing­anna, upp­ljóstr­an­irnar úr Panama-skjöl­unum og við­brögð for­ystu­manna stjórn­ar­flokk­anna. Þetta hljóta allir að sjá,“ skrifar Svandís á Facebook-síðu sinni. Þetta er í takt við ummæli Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, fyrrum for­manns Vinstri grænna, frá því í gær um að sú saga að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn ætli í stjórn­ar­sam­starf sé „upp­spuni og lygi frá rótum“. 

Forsagan er sú að Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, full­yrti á Facebook að Stein­grímur J. Sig­fús­son, fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna, hefði „ljóstrað upp um það í Grímsey að fyr­ir­hugað sé að mynda stjórn VG og Sjálf­stæð­is­flokks“. Deildi hann grein þar sem þetta er stað­hæft á Veggnum.is, síðu sem haldið er úti af sjálf­stæð­is­mann­inum Viðari Garð­ars­syni, sem stofnað hefur stuðn­ings­síður fyrir Sigmund Davíð og beitt sér fyrir hags­munum stór­iðj­unnar í gegnum Facebook-síð­una Auð­lind­irnar okkar. 

Benedikt Jóhann­es­son segir í sam­tali við Stundina að hann hafi gert ráð fyrir að rétt væri eftir haft Stein­grími á vefnum en ekki kannað sér­stak­lega hver stæði á bak við síð­una. Hann rengi ekki þau orð Stein­gríms að frá­sögnin eigi sér ekki stoð í raun­veru­leik­anum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár