Segir stjórnarflokkana fjársvelta heilbrigðiskerfið og „skapa gerviþörf fyrir einkarekstur“

Katrín Jak­obs­dóttir fór hörðum orðum um sitj­andi rík­is­stjórn á flokks­ráðs­fundi Vinstri grænna og sagði tals­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafa „keypt sér sós­íal­ískar sauð­ar­gærur á afslætti fyrir kosn­ingar“.

Segir stjórnarflokkana fjársvelta heilbrigðiskerfið og „skapa gerviþörf fyrir einkarekstur“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir tals­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafa „keypt sér sós­íal­ískar sauð­ar­gærur á afslætti“ fyrir kom­andi þing­kosn­ingar.

Þetta kom fram í ræðu hennar á flokks­ráðs­fundi sem fram fór fyrir helgi. Sagði hún að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins hefði van­rækt upp­bygg­ingu inn­viða og fjársvelt heil­brigð­is­kerfið.

„Í góð­ær­inu fyrir hrun voru það sömu flokkar og nú sem van­ræktu heil­brigð­is­kerfið með hörmu­legum afleið­ingum. Rík­is­stjórnin virð­ist stað­ráðin í að end­ur­taka sömu mis­tök: Að fjársvelta heil­brigð­is­kerfið í góð­æri. Mark­miðið kannski það að fá fólk til að van­treysta hinu opin­bera kerfi, skapa gervi­þörf fyrir einka­rekstur,“ sagði Katrín.

„Nú kepp­ast ráð­herrar og þing­menn hver um annan þveran að lofa bót og betrun í heil­brigð­is­málum, í mál­efnum aldr­aðra og öryrkja, mennta­málum, hús­næð­is­málum og svo mætti lengi telja. Sann­ar­lega líta þeir betur út í þess­ari gæru en í þeim auð­manna­fötum sem við höfum hingað til séð. En hvað er bak við gæruna?“ spurði Katrín og rifj­aði upp að sitj­andi rík­is­stjórn ætl­aði í fyrstu fjár­lögum sínum að leggja komu­gjöld á sjúk­linga en hætti við í kjöl­far mik­illar and­stöðu. Auk þess hefðu stjórn­ar­liðar hefðu ítrekað fellt til­lögur stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna um kjara­bætur fyrir aldr­aða og öryrkja. „Hvaða gildi eru þetta önnur en auð­þekkt hægri­stefna þar sem ofur­kapp hefur verið lagt á að lækka skatta og skorið niður á móti?“

Þá full­yrti Katrín að rík­is­stjórnin hefði glutrað niður tæki­færum á kjör­tíma­bil­inu. „Hún hefur ein­beitt sér að því að lækka skatta og gjöld á þá rík­ustu en hún hefur van­rækt upp­bygg­ingu inn­viða, hvort sem er í heil­brigð­is­þjón­ustu, menntun, sam­göngum, fjar­skiptum eða öðru. Hún hefur sólundað opin­beru fé í skulda­leið­rétt­ingu sem breytti litlu fyrir raun­veru­legan efna­hag heim­il­anna og hefur reynst illa lág- og milli­tekju­fólki sem allt í einu áttar sig á að vaxta- og barna­bætur hafa verið skertar á móti. Hún hefur látið breyt­ingar á stjórn­ar­skránni reka á reið­anum, hún hefur lítið frum­kvæði sýnt í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum. Og hún hefur svo sann­ar­lega glatað niður tæki­fær­inu til að byggja upp traust almenn­ings á stjórn­mál­unum. Það gufaði upp í vor þegar í ljós kom að ráð­herrar rík­i­s­tjórn­ar­innar búa ekki í sama hag­kerfi og við hin.“

Sagði Katrín að heil­brigð­is­kerfið hefði verið fjársvelt í heilan ald­ar­fjórð­ung og um leið hefði greiðslu­þátt­taka almenn­ings auk­ist jafnt og þétt. „Rík­is­stjórnir Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks hafa grafið undan heil­brigð­is­þjón­ustu hins opin­bera og aukið einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu,“ sagði hún og benti á að hlut­fall heil­brigðis­út­gjalda af vergri lands­fram­leiðslu hefði dreg­ist saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár