Segir Samfylkinguna hafa lært af mistökum

Sam­fylk­ingin er „miðju­sæk­inn rót­tækur umbóta­flokkur“ að sögn Árna Páls Árna­sonar. Hann sæk­ist eftir end­ur­kjöri og seg­ist hafa skoðað sig og feril sinn í nýju ljósi. „Ef vop­na­glamrið yfir­gnæfir allt, heyr­ist ekk­ert í flokki hinna skyn­sömu lausna.“

Segir Samfylkinguna hafa lært af mistökum

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur ákveðið að sækj­ast eftir end­ur­kjöri og til­kynnti um það á blaða­manna­fundi í þing­hús­inu í dag. 

Áður hafa boðið sig fram þau Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, Helgi Hjörvar, Magnús Orri Schram og Oddný G. Harð­ar­dóttir. Oddný nýtur mests stuðn­ings sam­kvæmt skoð­ana­könnun sem nýverið var gerð og hefur Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður, lýst yfir stuðn­ingi við hana.

„Ný rík­is­stjórn mun taka við stjórn­ar­taumunum í haust. Ég vil leiða og þjóna Sam­fylk­ing­unni í því ferli,“ segir í kynn­ing­arplaggi sem Árni Páll afhenti eftir að hann hafði svarað spurn­ingum frétta­manna og til­kynnt um ákvörðun sína í dag. Sem kunn­ugt er hefur fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar verið í algjöru lág­marki um langa hríð.

Þegar Árni Páll vann sigur í for­manns­kjöri árið 2013 var hann málsvari sam­vinnu­stjórn­mála og tal­aði mjög gegn skot­grafa­hern­aði og átaka­stjórn­málum gam­alla tíma. Sams konar áherslna gætir í mál­flutn­ingi hans nú, bæði á blaða­manna­fund­inum í dag og í fram­boðspistl­inum sem hann afhenti. Árni telur að Sam­fylk­ingin hafi slæma reynslu af átaka­stjórn­málum. Flokk­ur­inn hafi gert mis­tök en jafn­framt lært af þeim. Því sé flokk­ur­inn trausts­ins verður. Þá seg­ist hann hafa spurt sig spurn­inga um sjálfan sig og stjórn­mála­feril sinn; sumt hafi verið mis­tök en af öðru geti hann verið stoltur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár