Reyktu þitt eigið beikon

Beikon er ein­fald­lega reykt svína­síða, sneidd og steikt á pönnu. Til eru margar aðferðir til að reykja mat, en þær skipt­ast í tvo flokka; heitreyk­ing og kaldreyk­ing.

Reyktu þitt eigið beikon

Beikon vekur mikla gleði. Fólk verður almennt ham­ingju­samt þegar það heyrir að það er beikon í mat­inn. Hér á Íslandi er meira að segja haldin stór beikon-hátíð á hverju sumri sem nefn­ist Beikon-Festival, þar sem fólk kemur saman og til­biður beikonið. 

Heitreyking eða kaldreyking?

Beikon er ein­fald­lega reykt svína­síða, sneidd og steikt á pönnu. Menn hafa verið að reykja mat frá örófi alda, yfir­leitt til að auka geymslu­þol en eins til að bragð­bæta mat­inn með ýmsum við­ar­teg­undum. Til eru margar aðferðir til að reykja mat, en þær skipt­ast í tvo flokka; heitreyk­ing og kaldreyk­ing. 

Heitreyk­ing er ein­föld og örugg leið til að reykja mat. Maturinn er eld­aður um leið og reyk er bætt við mat­inn, með því að strá reyk­sagi eða birki­greinum ofan á kolin á meðan grillað er. Eins er hægt að vefja te í álp­appír, til dæmis ceylon eða earl­grey, og leggja í ofn með kjúklingi eða fiski. Teið brennur hægt og rólega og bragð­bætir mat­inn um leið og hann er eld­aður. Ef mat­ur­inn er heitreyktur geym­ist hann ekki til lengri tíma, eins og þegar maður kaldreykir.  

Að kaldreykja er ein­föld aðgerð, en flókin í útfærslu. Þegar maður kaldreykir vill maður fá reyk en ekki hita, þannig að mat­ur­inn má ekki vera í sama rými og hita­gjaf­inn. Yfir­leitt er það leyst með því að leiða reyk­inn burt frá hit­anum með járn­röri, yfir í til dæmis tré­kassa þar sem mat­ur­inn er reyktur. Á Íslandi er sterk hefð fyrir því að kaldreykja kjöt og fisk í þar til gerðum reykkofum, sem eru yfir­leitt hlaðnir úr torfi. Í veiði­búðum er hægt að kaupa dýrar reyk­vélar, eða við­bætur á úti­grill sem kosta einnig skild­ing­inn.

Þegar ég ákvað að reykja mitt eigið beikon í fyrsta sinn fyrir nokkrum árum kom á óvart hversu flókið það er að smíða reykofn sem virk­aði og var öruggur. En ég fann leið sem ég hef notað síðan.

Að forðast matareitrun

Maturinn er yfir­leitt settur í pækil með salti og sykri og ýmsum kryddum. Sodium nitrate (NaNO2), Sodium Nitrite (NaNO2), eða Sodium Chloride (NaNI) er gjarnan bætt við til þess að varð­veita lit­inn á kjöt­inu og breyta áferð þess, en það er óþarfi.

Reyktur matur geym­ist auð­veld­lega. Ég hef það sjálfur fyrir reglu að elda allt kjöt sem ég reyki, þótt ég borði reyktan fisk óeld­aðan.

Að forðast eldsvoða

Að reykja mat tekur allt frá fjórum tímum og upp í margra daga. Það er auð­velt að gleyma matnum og þarf lítið til að það kvikni í út frá eld­inum. Þess vegna er ráð­lagt að nota klukku til að minna sig á reykofn­inn, en það þarf að athuga með hann á hálf­tíma til klukku­tíma fresti. 

Oft þarf að hrista aðeins upp í kol­unum eða færa kjöt­stykkið til á grill­inu. Eins er mik­il­vægt að halda­reykofn­inum frá börnum að leik, sem gleyma honum auð­veld­lega og geta velt honum um koll. 

Svona gerir þú reykofn

Hægt er að nota ofn­inn til að reykja hvers kyns mat og upp­lagt er að reykja nokkrar teg­undir í einu. Mér finnst gott að reykja ost­stykki og gróft sjáv­ar­salt.

Klefi

Best er að nota venju­legt grill fyrir reykofn­inn, en það er einnig hægt að nota skápa eða klefa. Gaman er að smíða lít­inn reyk­kofa úr gömlum við á stærð við ísskáp ef ætl­unin er að gera þetta oft og mikið í einu. Annars er hægt að nota hvað sem er til að halda reyknum inni. Einu sinni not­aði ég gamlan bað­her­berg­is­skáp frá IKEA.

Hita­gjaf­inn

Í þess­ari útfærslu er hita­gjaf­inn ónot­aður raf­magns­lóð­bolti, sem fæst á 1.500 kr. í flestum bygg­ing­ar­vöru­versl­unum. Það má alls ekki nota not­aðan lóð­bolta. Gott er að nota tóma nið­ur­suðu­dós sem ílát fyrir reyk­sagið, en hún má ekki vera með plast­filmu sem getur gefið frá sér eit­ur­efni. Best er að brenna dós­ina á litlu eld­báli, á grill­inu eða í ofni í góðan klukku­tíma áður en hún er notuð svo hún sé vel heit og laus við öll eit­ur­efni.

Reyk­sagið

Hægt er að kaupa reyk­sag í flestum veiði­versl­unum, úti­vist­ar­búðum og bens­ín­stöðum. Gott er að nota hikkoría­við, kissu­berja­við eða epla­við til þess að reykja beikonið, birki­sag eða asp­ar­sag. Það er ekki gott að nota furusag eða greni, þótt eini­berja­greinar og furu­nálar gefi skemmti­legan keim. Ef sagið er ekki keypt í versl­unum þarf að ganga úr skuggum að það sé not­hæft. Hægt er að búa til eigin blöndur og blanda birki­laufum eða blóð­bergi út í sagið.

Uppskrift

Hráefni
1 svína­síða (500 gr – 1 kg)
250 g af grófu salti
250 g af sykri
10-20 eini­ber
3-4 mulin lár­við­ar­lauf
10 g af pip­ar­kornum

Ath: Þeir sem vilja geta bætt við fenn­el­fræjum, hvann­ar­fræjum, blóð­bergi eða öðrum krydd­jurtum.

Pækill

Svína­síða fæst í flestum kjöt­borðum og gott er að biðja kjöt­af­greiðslu­mann­inn um að fjar­lægja beinin, þótt það sé líka hægt að gera það sjálfur með beittum hnífi. Blandið salti, sykri og kryddi vel saman í skál en passið að mylja ekki salt­kornin. Ef saltið verður of fínt gefur það of mikið bragð. Nuddið salt­blönd­unni vel við svína­síð­una og sjáið til þess að hún þekji kjötið nokkuð jafnt.  

Lokið í plast­í­láti eða poka og geymið í ísskáp í 3-5 daga. Hellið vökv­anum frá á hverjum degi og nuddið svína­síð­una aftur með salt­blönd­unni. Daginn áður en kjötið er reykt er það þvegið vel upp úr köldu vatni. Kjötið þarf að standa til þerris þannig að skinnið snúi niður, inni í ísskáp eða á köldum stað, án þess að nokkuð sé yfir því. Eftir nokkra klukku­tíma hefur þurr klístruð filma mynd­ast yfir kjöt­inu, sem er nauð­syn­leg til að reyk­ur­inn fest­ist við það.

Hér væri hægt að hætta, geyma kjötið í viku til við­bótar á köldum stað og borða það síðan sem pancetta, í þykkum sneiðum eða bitum og steikt á pönnu, með fersku pasta og rjómasósu.

Reykað­ferð

Stað­setjið grillið úti. Takið lúku af reyk­sagi og troðið vel ofan í dós­ina. Leggið dós­ina á hlið neðst í grill­inu og stingið lóð­bolt­anum í dós­ina. Passið að plast­skaftið kom­ist ekki í snert­ingu við dós­ina. Setjið svína­síð­una ekki fyrir ofan dós­ina, því dósin gæti hitnað örlítið og farið að létt­steikja kjötið.

Stingið lóð­bolt­anum í sam­band og lokið grill­inu. Á innan við 20 mín­útum er reyk­ur­inn far­inn að ber­ast úr grill­inu og ferlið komið vel af stað. Fylgist vel með því að þegar reyk­ur­inn fer að minnka er nauð­syn­legt að hrista dós­ina aðeins, eða bæta meira sagi við. Ef reyk­ur­inn verður of mik­ill eða það kviknar í sag­inu er gott að nota raf­magns­tíma­stilli sem slekkur á sér af og til. Reykið í 3-6 tíma.

Þegar beikonið er reykt geym­ist það óskorið inni í ísskáp í að minnsta kosti viku, jafn­vel lengur. Hægt er að stinga gat á kjötið, binda snæri í gegn og hengja það upp á köldum stað. Nauð­syn­legt er að fylgj­ast vel með því að það mynd­ist ekki græn eða svört mygla í kjöt­inu, en hvít mygla er bara af hinu góða, rétt eins og á sala­mipylsum. Óæski­lega myglu má þvo af með ediki og blautum klút.

Beikonið er sneitt eftir smekk, en þegar það hefur verið skorið má frysta það til að auka end­ing­una.

Njótið vel!

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár