Rasismi er geðveiki

Geð­lækn­ir­inn Alvin F. Poussaint segir að kyn­þátta­for­dómar séu veru­leikafirr­ing og ein­kenni geð­rænna vanda­mála.

Rasismi er geðveiki
Veru­leikafirr­ing „Hver sá sem úti­lokar hóp af fólki og notar hann sem blóra­böggul sinna eigin innri átaka og vanda­mála sýnir öll ein­kenni veru­leika rösk­unar.“ Mynd:

Alvin F. Poussaint, pró­fessor í geð­lækn­ingum, segir að kyn­þátta­for­dómar ættu að flokk­ast sem geð­sjúk­dómur og að for­dóma­fullt fólk ætti að nálg­ast eins og sjúk­linga sem þurfa á hjálp að halda.

Gerðar hafa verið ítrek­aðar til­raunir til þess að fá sam­tök geð­lækna í Banda­ríkj­unum [e. The American Psychiatric Association] til að við­ur­kenna ras­isma sem geð­sjúk­dóm, en án árang­urs. Ástæðan er sú að full­trúar sam­tak­anna segja að vegna þess hversu útbreiddur ras­ismi er í land­inu sé um sam­fé­lags­legt og menn­ing­ar­legt mein að ræða, mun frekar en geð­veilu.

„Ef við höldum áfram að líta á öfga­fullan ras­isma sem eðli­legan en ekki sjúk­legan gefum við honum til­veru­rétt.“

Segir geð­lækn­ir­inn Alvin F. Poussant í grein sinni í hinu virta lækn­is­fræði­tíma­riti Western Journal of Medicine að sökum þess að félagið vilji ekki við­ur­kenna sjúk­dóm­inn sé ómögu­legt fyrir geð­lækna að takast á við og reyna að lækna hann í sjúk­lingum sínum. „Ef við höldum áfram að líta á öfga­fullan ras­isma sem eðli­legan en ekki sjúk­legan gefum við honum til­veru­rétt. Hver sá sem úti­lokar hóp af fólki og notar hann sem blóra­böggul sinna eigin innri átaka og vanda­mála sýnir öll ein­kenni veru­leika rösk­unar, sem er grafal­var­legur geð­rænn sjúk­dómur,“ skrifar Poussant.

Alvin F Poussant
Alvin F Poussant Poussant er gríð­ar­lega virtur geð­læknir í Banda­ríkj­unum og hefur skrifað fjölda rit­gerða og bóka í grein­inni.

Hegðun ras­ista, segir Poussant, ætti að skoða með hlið­sjón af 5 stiga skala geð­lækn­is­ins Gordon W. Allport, sem birt­ist í bók hans The Nature of Prejudice, sem er ein áhrifa­mesta bók sögu í sögu geð­lækn­inga. Skali lýsir sífellt hættu­legri, stig­vax­andi hegðun. Fyrsta stigið er andúð tjáð í orði, annað stigið er að forð­ast með­limi hóps­ins sem for­dóm­arnir bein­ast gegn, þriðja stigið er virk mis­munun gegn hópnum, fjórða eru árásir gegn þeim, og fimmta stigið er útrým­ing (heng­ingar, fjöldamorð, þjóð­ar­morð.)

Bendir hann einnig á að geð­lækn­arnir Sullaway og Dunbar rann­sök­uðu nýverið auknar líkur á því að fólk sem er gríð­ar­lega for­dóma­fullt sé einnig að kljást við aðra geð­sjúk­dóma eins og til dæmis sjúk­lega væn­is­sýki og veru­leik­a­rof.

Í grein­inni leggur Poussant svo til að und­ir­teg­und sjúk­legrar veru­leikafirr­ingar sé bætt við í DMS grein­ing­ar­bók geð­lækna. [e. Diagnostic and Statistical Manual of Mental Dis­orders.]

Fordómafull týpa: Ranghugmynd hvers meginþema er að hópur einstaklinga í umhverfi viðkomandi, sem deila sameiginlegum einkennum, hafi sérstakt og óvenjulegt vægi. Þessar ranghugmyndir eru yfirleitt af neikvæðu og niðrandi tagi, en geta einnig verið miklandi í eðli sínu. Þegar þessar ranghugmyndir fara út í öfga getur viðkomandi brugðist við með því að reyna að skaða eða jafnvel myrða meðlimi hópsins sem litið er niður á.

Öfga­fullar rasískar skoð­anir geti einnig birsts sem ein­kenni ann­arra geð­rænna veik­inda, til dæmis geð­klofa og geð­hvarfa­sýki. Mann­eskjur sem þjá­ist af veru­leikafirr­ingu eigi yfir­leitt við alvara­lega félags­lega kvilla að stríða sem aftri því að þær geti átt í eðli­legum sam­böndum við annað fólk og haldið vinnu.

„Mann­eskjur sem eru haldnar þessum rang­hug­myndum er gríð­ar­lega hættu­legar sjálfum sér og öðrum.“

„Sem klínískur geð­læknir hef ég fengið til með­ferðar nokkra sjúk­linga sem vörp­uðu sinni eigin óásætt­an­legu hegðun og átta sínum á aðra kyn­þætti og minni­hluta­hópa og gerðu þá ábyrga fyrir vanda­málum sam­fé­lags­ins. Einarðar rasístar til­finn­ingar þeirra, sem þau trúðu svo ræki­lega að engin rök fengu breytt, voru ein­kenni alvar­legs and­legs afbrigði­leika. Þegar þessir sjúk­lingar urðu svo meira varir um sín eigin vanda­mál, minnk­aði væn­is­sýki þeirra og for­dóm­arnir í leið­inni.“

Heldur Poussant því fram að gríð­ar­lega mik­il­vægt sé að félag geð­lækna í Banda­ríkj­unum við­ur­kenni kyn­þátta­for­dóma sem geð­sjúk­dóm. „Mann­eskjur sem eru haldnar þessum rang­hug­myndum eru gríð­ar­lega hættu­legar sjálfum sér og öðrum.“ Geð­læknar þurfi ráð­gjöf um það hvernig eigi að takast á við ras­isma í öllum sínum myndum svo þeir geti boðið upp á með­ferð við hæfi. „Að öðrum kosti munu veru­leikafirrtir ras­istar halda áfram að verða útundan í geð­heil­brigð­is­kerf­inu, og við getum búist við því að þeir bug­ist og láti verða af ban­vænum hug­myndum sínum.“

Hér má lesa grein Alvin F. Poussant

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Andleg málefni

Ayahuasca-athafnir æ vinsælli á Íslandi: „Þetta brýtur á þér heilann“
ÚttektAndleg málefni

Ayahuasca-athafnir æ vin­sælli á Íslandi: „Þetta brýtur á þér heil­ann“

Stundin ræddi við fólk sem sótt hefur athafnir á Íslandi þar sem hug­víkk­andi efnis frá Suður-Ameríku er neytt. Tugir manns koma saman undir hand­leiðslu erlends „shaman“ sem leiðir þau í gegnum reynsl­una sem er lík­am­lega og and­lega krefj­andi. Við­mæl­endur lýsa upp­lifun­inni sem dauða og end­ur­fæð­ingu sem gjör­breyti raun­veru­leik­anum, en varað er við því að þau geti verið hættu­leg.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár