Ráðherra svarar engu um rangfærslur sínar

Þor­steinn Víglunds­son, félags­mála­ráð­herra, var stað­inn að því að ýkja veru­lega raun­út­gjöld til Land­spít­al­ans. Hann svarar engu um málið og hefur ekki beðist afsök­unar á fram­göngu sinni gagn­vart stjórn­endum spít­al­ans sem hann sak­aði um „talna­leik­fimi“.

Þor­steinn Víglunds­son, félags­mála­ráð­herra, vill ekki útskýra rang­færslur sínar um fjár­mál Land­spít­al­ans né biðj­ast afsök­unar á fram­göngu sinni gagn­vart stjórn­endum stofn­un­ar­innar.

Þor­steinn var stað­inn að því í lok apríl og byrjun maí að hafa sett fram rangar tölur um útgjöld til Land­spít­al­ans í við­tali við Morg­un­blaðið og ýkt veru­lega fjár­fram­lög hins opin­bera til mála­flokks­ins. Þegar stjórn­endur gerðu athuga­semdir við mál­flutn­ing ráð­herra sak­aði hann þá um „talna­leik­fimi“. 

Stundin hefur tví­vegis sent ráð­herra og aðstoð­ar­mönnum hans fyr­ir­spurn, óskað eftir skýr­ingum og spurt hvort Þor­steinn ætli að biðj­ast afsök­unar á því að hafa sett fram rang­færslur um fjár­mál spít­al­ans. Engin svör hafa borist. 

Graf Þor­steinsLand­spít­al­inn kann­ast ekki við töl­urnar sem Þor­steinn Víglunds­son vís­aði á í Morg­un­blað­inu.

Þor­steinn steig fram í við­tali við Morg­un­blaðið þann 27. apríl, gagn­rýndi stjórn­endur Land­spít­al­ans og full­yrti að búið væri að end­ur­reisa fjár­mögnun spít­al­ans úr lægð eft­ir­hrunsár­anna. „Það hef­ur orðið veru­leg aukn­ing á raunút­gjöld­um til LSH á und­an­förn­um árum og stefnt er að því að svo verði áfram,“ sagði Þor­steinn.

Við­tal­inu fylgdi línu­rit sem byggði á tölum frá ráð­herra sjálfum. Vitnaði Þor­steinn sér­stak­lega til línu­rits­ins og til eigin „úttektar og áætl­ana“ og not­aði sem rök­stuðn­ing fyrir því að raun­út­gjöld til Land­spít­al­ans hefðu verið stór­aukin á und­an­förnum árum.

Í kjöl­far við­tals­ins birti Land­spít­al­inn athuga­semdir vegna stað­hæf­inga Þor­steins. Þar sagði meðal ann­ars: „Land­spít­ali kann­ast ekki við þær tölur sem lagðar eru til grund­vallar grein­ingu ráð­herra fyrir árin 2016 og 2017. Hin meinta hækkun rík­is­fram­lags til Land­spít­ala frá árinu 2015 hefur ekki átt sér stað.“ 

Í svari ráð­herr­ans á Facebook við athuga­semdum Land­spít­al­ans við­ur­kenndi Þor­steinn að línu­rit sitt hefði ekki sýnt raun­út­gjöld til LSH, eins og full­yrt var í Morg­un­blað­inu, heldur heild­ar­út­gjöld Land­spít­al­ans. „Spít­al­inn hefur gert athuga­semd við þessa fram­setn­ingu mína og seg­ist ekki kann­ast við þessar tölur, hvorki á und­an­förnum árum né í áætl­unum. Tölur áranna 2006 til 2016 eru fengnar úr árs­reikn­ingum Land­spít­al­ans sjálfs og er þar horft til heild­ar­út­gjalda en ekki rík­is­fram­lags eins og sér,“ skrif­aði hann.

Eins og bent var á í pistli Gunnars Jörgens Vigg­ós­sonar á Stund­inni þann 5. maí síð­ast­lið­inn stand­ast tölur ráð­herra ekki jafn­vel þótt skýr­ingar hans séu teknar gildar og horft sé til heild­ar­út­gjalda Land­spít­al­ans. Línu­ritið ýkir veru­lega aukn­ing­una á fjár­út­látum Land­spít­al­ans í seinni tíð og sýnir t.d. um 20% aukn­ingu milli áranna 2015 og 2017 þótt raun­veru­leg útgjalda­aukn­ing Land­spít­al­ans sé nær 10% núvirt með vísi­tölu neyslu­verðs og 12,5% þegar kostn­aði vegna bygg­ingar nýs Land­spít­ala er bætt við. 

Stjórn­endur Land­spít­al­ans hafa gagn­rýnt harð­lega fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar og varað við van­fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins. Þegar rætt var um fjár­mála­á­ætl­un­ina á Alþingi þann 24. maí sagði Nichole Leigh Mosty, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, for­stjóra Land­spít­al­ans stunda „póli­tíska bar­áttu“ og kall­aði eftir því að sett yrði stjórn yfir Land­spít­al­ann svo for­stjór­inn hætti að „betla pen­ing“ af fjár­veit­ing­ar­vald­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjárframlög til Landspítalans

Fréttir

Ráðherra vill að Land­spít­al­inn hag­ræði meira - Spít­al­inn leið­réttir full­yrð­ingar um „stór­aukin útgjöld“

Að sögn Land­spít­al­ans not­að­ist Þor­steinn Víglunds­son félags­mála­ráð­herra við rangar tölur í við­tali við Morg­un­blaðið, þar sem hann lýsti stór­auknum fjár­fram­lögum til spít­al­ans. Ráð­herr­ann segir að gera verði kröfur til stjórn­enda spít­al­ans, eins og stjórn­mála­manna, og segir þá þurfa að hag­ræða.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár